Búnaðarrit - 01.01.1914, Blaðsíða 22
18
BÚNAÐARRIT
eru skýrslur þær, er eftirlitsmenn nautgripafélaganna
hafa sent Búnaðarfélagi íslands. Skýrslur þeirra eru
aftur bygðar á vikulegum mælingum á fóðri og mjólk
kúnna og 3 árlegum feitirannsóknum.
Um skýrslur eftirlitsmannanna mætti segja mjög
margt. Hér skal það eitt sagt að þessu sinni, að þó að
hætt sé við því, að villur séu í sumum skýrslunum,
sem eftirlitsmennirnir senda Búnaðarfélaginu, þá er nú
bæði, að allar skýrslurnar eru endurskoðaðar og leið-
réttar, og svo er hitt regla, að sleppa úr þeim þeim
kúm, sem líknr eru til að eitthvað sé skakt talið um,
svo að meðaltalið verði rétt. Af þessu leiðir, að óhætt
er að reiða sig á meðaltölin, og þó að þau ef til vill
gætu breyzt um fá kg. frá eða til við það, að fleiri kýr
væru taldar með, þá er þó hitt víst, að enn er ekki völ
á fleiri kúm til að taka meðaltal af, og allar þær kýr,
sem hægt var að hafa með í meðaltöl, eru það. Því
hyka eg ekki við að segja, að þau séu rétt og livernig
sem á er litið það réttasta, sem hœgt er að segja nú
um nythœð islenzhra kúa.'
Annars er við útreikning allra meðaltala fylgt þeirri
reglu:
1. Að taka enga 2 ára kú eða yngri með. Eg skoða hana
sem fyrsta kálfs kvígu, og sjaldnast eru þær alt
árið í skýrslu, og þó að svo sé, þá langt frá að
mjólka svo sem þær siðar gera.
2. Að taka eDga þá kú með, sem ekki er fult ár á
skýrslu. Sé kýr keypt, seld eða drepin á árinu, er
hún aldrei tekin með við útreikning meðaltala.
3. Að taka enga kú með, sem grunur er á að eitt-
hvað sé skakt talið um. Oft er t. d. svo mikill
munur á þessum þrem feitirannsóknum, að mikil
hkindi eru til, að eitthvað sé bogið við þær. Tölur
þær, er hér fara á eftir, sýna þetta nánara:
1. rannsókn 4,0%> 2. ranns. 2,7%, 3. ranns. 3,2%.
1.--------2,6%, 2. — 3,6%, 3. — 4,8%.