Búnaðarrit - 01.01.1914, Blaðsíða 27
BÚNAÐARRIT
23
Dálki um gjafatímann er slept. Gjafatíminn er mis-
jafn í félögunum, og eg er hræddur um, að það muni ekki
alstaðar fylgt sömu reglu um það, hvað sé skiiið við gjafa-
tíma. Styztur gjafalími er talinn 29 vikur, en lengstur 40.
Þessi munur stafar, að því er eg hygg, af því, að sum-
staðar er gjafatími og innistöðutími hafður eins á papp-
írnum, en vanalega er gjafatíminn lengri en innistöðu-
tíminn, því að kúm er gefið með beit bæði vor og haust.
Elclii hefi eg lagt í fóðureiningar. Bæði er nú það,
að eg álít þann samanburð valtan, og svo tel eg sjálf-
sagt, ef það á annað horð á að nota einliverjar ein-
ingar, sem fóðrinu er jafnað saman i, að leggja þar
til grundvallar einingu, sem hœndurnir þekkja og vita
hvernig er að fóðra með, eins og t. d. töðukílógrammið
eða töðutviþundið. En að seilast suður til Danmerkur
eftir kornpundi virðist mér langt sótt og óeðlilegt.
En þótt eg álíti tööukílógrammið þá einingu, er við
eigum að leggja fóðrið i, ef við viljum leggja það alt í
samskonar einingar, þá hefi eg þó ekki notað það að
þessu sinni. Kemur það til af því, að eg álít þann
samanburð fullnægjaudi, er fæst með mismun á verði
mjólkurinnar og fóðursins.
Verð mjólkurinnar hefi eg reiknað á tvennan hátt.
Kalla eg það 1. og 2. verð.
Við útreikning 1. verðs er öll mjólkin metin eins,
á 10 aura ldlógrammið eða lítrinn, sem er nærri
sama og pottur eða tvö pund.1) Við útreikning á verði
2. er smjörkílógrammið metið á kr. 1,60 og nýmjólkin
á 3 aura kíiógrammið. Ilefði verði 1. og 2. átt að bera
saman á meðalfeitri mjólk, var sanni næst að nota 9,2
aura verð á mjólkurkílógrammi í 1. verði, en til hægð-
arauka notaði eg 10, enda er samanburðurinn jafn-
glöggur hvort heldur sem notað er. Annars er verð 2.
1) 1 lítri af 15° heitri mjólk vegur 2,063 pund eða 1,0315
Kg., liafi mjólkin eðlisþyngdina 1,0315.