Búnaðarrit - 01.01.1914, Blaðsíða 148
144
BÚNAÐARRIT
•óhreÍDa í bing, heldur en iáta hana í poka. Yarast ætti
að troða henni fast, ef hún er látin í poka.
3. gr. Ullina ætti að flytja að læk eða rennandi
vatni, áður en hún er þvegin; þar á að vera eldstæði
til þess að hita þvælið. Ef pottur er brúkaður til þess
að hita í þvæli og þvæla i ull, verður að láta sér mjög
aDt um, að hann sé vel fægður og ryðblettalaus. Bezt
er að hafa tréker til þess að hella þvælinu í úr pott-
inum, því að þá má þvo meira í einu; verður miklu
rýmra á ullinni og hún þvæst betur. í slíku þvottakeri
á að vera trérist, sem fellur yfir allan botninn, og skal
hún vera 6—8 þuml. frá botninum. Á henni eiga að
vera smá-göt, svo að óhreinindi, sem leysast úr ullinni,
og sori úr þvælinu, fari undir ristina og geymist þar
þangað til kerið er hreinsað.
Þegar keita er notuð, skal blanda hana þannig, að
2 lítrar af vatni blandast saman við 1 lítra af keitu.
Þegar notað er ullarþvottaduft og ullarþvottasápa,
skal taka 1 pund af sápunni og 20 kvint af duftinu, og
hræra það út í 20 lítra af vatni.
Þvælið, hvort sem notað er, skal hita upp í 43—
50° C., ef ullin, sem á að þvo, er ekki mjög óhrein, og
vel undirbúin undir þvottinn; aldrei má hita löginn
meira en 57° C.
Ef keita er notuð, skal taka lítið eitt af almennum
þvottasóda og hræra hann út í þvælið, þegar það er
oiðið fullheitt; sódinn hreinsar sora, sem er í þvælinu
og er skaðlegur fyrir ullina. Sorinn sezt á botninn, og
kemst ekki í ullina, ef rist er höfð í þvælisílátinu.
Ef ullarþvottaduft og tilheyrandi sápa er notuð, skal
taka dálítið af vatninu í íötu, þegar það er vel heitt, og
hræra sápunni og duítinu vel út í það; því næst skal
hella þessari blöndu í þvottakerið og hræra vel í því.
Ef ullin er mjög óhrein, þarf hún að vera í þvælinu
20—30 mínútur, en skemur ef haft er rúmt á henni í
kerinu eða pottinum og hún hreyfð í þvælinu.