Búnaðarrit - 01.01.1914, Blaðsíða 301
BÚNAÐARRIT
295
Vestfiörðum, við Djúp og þar norður af, er veturinn talinn góð-
ur og frostalítill, stilt norðanátt með litilli snjókomu. í Stranda-
sýslu var óvanalega mildur vetur til sumarmála. Frost náðu þar
sjaldan 10° C. Snjóþyngsli lítil og hagar með bezta móti. Alls
voru á Kjörseyri 18 innistöðudagar frá ársbyrjun til aprílloka,
er fé var slept; 36 daga var fé gefin hálf gjöf eða minna, þar
af 12 daga ’/i gjafar tæplega, og 59 daga var fé gefin meir en
hálf gjöf, að "/< gjafar, 4 daga nokkuð meira og 2 daga siðast í
apríl ckkert.
Á Norðurlandi var tiðarfar gott, snjóalitið og Irostvægt,
oftast nógar jarðir. Helzt kom taisverður snjór og írostkafli á
Góu og fram á einmánuð. Úr páskum kom hláka og gerði öríst.
Við sjávarsíðuna kringum Öxarfjörð gengu lömb gjaflaust allan
veturinn.
Sama góða tíðarfarið á Austfjörðum, snjóaði helzt nokkuð
að ráði þriggja vikna tíma i marz.
í Skaftafellssýslu var umhleypingasöm vætutíð fyrstu tvo
mánuði ársins og i marzmánuði allmikil snjókoma af norðaustri,
svo jarðlaust var um nokkurn tíma, og yfirleitt notaðist jörð þar
illa vegna skakviðra.
V o r i ð . Um alt land ríkti blíðviðri fram um miðjan maí-
mánuð, en þá breyitist tíðarfarið, brá þá til norðanáttar með
þurviðri og frosti, er hélzt fram undir miðjan júní; hnekti það
mjög öllum gróðri, sem kominn var svo vel á veg þegar kulda-
kastið byrjaði.
S u m a r i ð. Frá því að tíðarfarið breyttist, um eða litlu
fyrir miðjan júní, hélzt óþurkatíð alt sumarið fram til 14. sept-
ember um alt Suðurland og Vesturland. Voru sárfáir dagar á
því tímabili svo að ekki rigndi einhverntíma sólarhringsins. Úr
Barðastrandarsýslu er skrifað, að elztu menn muni ekki jafn-
samfelt óþerrissumar. Sumarið 1880 liafi ekki verið eins óþerri-
samt.
Þegar kemur norður fyrir ísafjarðardjúp fer sumartíðin að
verða hagstæðari. í Strandasýslu byrjaði sláttur 11. júní. Vinda-
átt alt sumarið sunnan og suðvestan. Var sumarið í heild sinni
með allra hlýjustu sumrum, eftir því sem þar gerist, en oft held-
ur tæpt um þurka.
Á öllu Norður- og Austurlandi, frá Strandasýslu að Skeið-
arársandi, var hin æskilegasta heyskapartíð, sunnanátt og góð-