Búnaðarrit - 01.01.1914, Blaðsíða 24
20
BÚNAÐARRIT
Þetta skilja margir, sem betur fer, og því lifa félögin
enn. Og hinir, sem ekki hafa. skilið þetta enn þá, —
þeim iærist vonandi að skiija það, er fram liða stundir.
Og þegar þeim iærist að skilja það, þá rísa dauðu fé-
lögin upp aftur, alveg eins og afturgöngurnar forðum.
Afturgöngurnar lifðu góðu lífi, meðan þjóðin trúði á
þær. Þær störfuðu meðal manna, meðan menn trúðu
því, að verk þeirra sæjust, og eins gera féiögin. Þau
dauðu rísa upp aftur, þegar trúin á þau er orðin nógu
sterk, og þau starfa öll, ef bændurnir trúa því, að þau
starfi, og vinna með þeim í starfinu. Og eg vildi biðja
ykkur, bændur, að athuga það, hvenær þið getið vænzt
árangurs af nautgripafélögunum, og vita, hvort sú at-
hugun ekki getur leitt til þess, að einhver afturganga
rísi upp eða nýgervingur fæðist.
III.
Skýrsla II.
Skýrsla II. sýnir, hv.ersu mikill hluti af bændum
og kúm ianasins eru þátttakendur i nautgripafélögunum
þau 4 ár, sem hún nær yfir. Þeim hefir ekki fjöigað,
bændunum, í félögunum þessi árin, en þeir eiga að
jafnaði fleiri kýr síðasta árið en fyrsta. Þetta kemur af
því, að þá eru fleiri féiög á Suðurlandi, en þar eru
bændur að tiltölu kúaflestir.
Annars sýnir þessi skýrsia, hversu þátttaka bænda
er sorglega lítil í fólögunum, og hve fámennur sá hluti
bænda er, sem beint striðir við að bæta kúakyn sitt.
Það er í mínum augum alvarlegt umhiigsunarefni þetta,
live ftátttalcan í flestum umbótafélögum er lítil. Vildi eg
biðja lesendur þessara iína að athuga það rækilega.