Búnaðarrit - 01.01.1914, Blaðsíða 151
Rœktunarsjóðurinn 1913.
Lán. Umsóknir um þau voru 97, þar af 80 til
jarðabóta (68372 kr.) en 17 fil ábýliskaupa (18400 kr.).
Engri lánbeiðni var í þetta sinn synjað sökum fjárskorts
eins. Heimiluð voru 72 lán til jarðabóta, alls 55400 kr.,
og 9 lán lil ábýliskaupa, alls 4600 kr. Lán samtals
60000 kr. Af jarðabótalánunum voru til girðinga einna
53 lán, alls 43250 kr., en til ýmislegra jarðabóta—þar
á meðal girðinga— 19 lán, alls 12150 kr. Af lánunum
til girðinga voru 13 til samgirðinga, alls 17400 kr., en
til girðinga á einstökum jörðum 40 lán, alls 25850 kr.
Stærstu samgirðingalánin voru: til girðinga í Selvogi
3000 kr., f Fnjóskadal 2000 kr., í Miðdölum 1700 kr.,
í Kelduhverfi 1600 kr., á Síðu 1500 kr.
Styrlcur til Ufsábyrgdarkaupa til viðbótartryggingar
fyrir ábýliskaupaláni var veittur Kristjáni Eldjárni Krist-
jánssyni, búfræðing á Hellu i Eyjafliði, 300 kr. Aðrir
höfðu ekki sótt um þann styrk.
Verðlaun. Umsækjendur um þau voru 82, úr þess-
um sýslum: V.Skaftafells 13, Rangárvalla 10, Árness 14,
Gullbringu 1, Kjósar 1, Borgarfjarðar 6, Mýra 8, Snæ-
fellsness 2, Dala 7, Stranda 3, Húnavatns 3, Skaga-
fjarðar 5, Eyjafjarðar 1, S.Þingeyjar 6, N.Þingeyjar 1,
S.Múla 1. Verðiaun fengu 69, og var til þeirra varið
samtals 4750 kr. Af þeim, sem verðlaun fengu nú,
höfðu 17 fengið verðlaun áður, einu sinni eða tvisvar.
10*