Búnaðarrit - 01.01.1914, Blaðsíða 144
140
BÚNAÐARRIT
kveða þykt zinklagsins mældi eg líka gildleika þráðanna
bæði i sjálfum strengnum og í góddunum, ennfremur
millibilið milli gadda og lengd þeirra, og athugaði hvernig
þeir væru íestir.
Hér kemur þá á eftir skýrsla um rannsóknirnar A
hverri einstakri virtegund :
Nr. 1. Sýnishornið tók eg úr gaddavírssendingu,
er nýkomin var til handverksmanns í Reykjavík, sem
verzlar mikið með gaddavír. Þvermál strengjanna
2,65 mm., gaddanna 2,20 mm. Gaddarnir voru vafðir
að eins um annan þráðinn, 4 talsins á hverjum stað,
allvel hvassir og sneru rétt. Lengd þeirra 1,3 cm. og
millibilið milli þeirra 16,0 cm. Strengirnir þoldu að ligggja
í blásteinsupplausninni í 8 mín., en gaddarnir í 7 mín.
Nr. 2. Sýnishornið fékk eg af birgðum verzlunar
nokkurrar í Rvik.
Þvermál strengjanna 2,7 mm., gaddanna 2,3 mm.
Gaddarnir vaíðir um báða þræðina, og það fremur laus-
lega, lengd þeirra 1,2 cm., 4 að tölu, ekki hvassir.
Millibil milli gadda 16,5 cm. Strengirnir þoldu 5 mín.,
en gaddarnir 3 — 4 mín.
Nr. 3. Sýnishorn frá þýzkri verksmiðju, fengið hjá
umboðssala í Rvík. Sýnishorn þetta var sagt vera sama
tegund og landsjóðs-gaddavírinn.
Þvermál strengjanna 2,55 mm., gaddanna 2.3 mm.
Gaddarnir 4, fast vafðir um annan strenginn, oddhvassir
og snúa rétt, lengd 1,5 cm., og millibilið milli þeirra
7,5 cm. Strengirnir þoldu blásteinsupplausnina í 11 mín.,
en gaddarnir í 8 mín.
Nr. 4. Úr gaddavírssendingu til kaupfélags á
Suðurlandi.
Þvermál strengjanna 2,00—2,65 mm., gaddanna 2,s
mm. Gaddarnir 4, vafðir um annan strenginn og
nokkurn veginn hvassir. Lengd þeirra 1,0 cm. og milli-
bilið milli þeirra 8—9 cm. Strengir og gaddar þoldu
blásteinsupplausnina í 7 mín.