Búnaðarrit - 01.01.1914, Blaðsíða 280
274
BÚNAÐARRIT
Á bænum eru 3 kýr, sem bóndi vill eiga fóður
fyrir fram yfir fardaga eða í 11 vikur, og vil eg taka
frá fyrir þær; lít á töfluna og sé að 3 kýr í viku þurfa
9,99 eða 10 forðamál, eða 110 forðamál í 11 vikur.
Þá eru eftir 357 fm. og á því þarf að vera 123 sauð-
kindur og 11 hross. Þá er spurningin: hvað dugar heyið
fyrir þennan fónað? Taflan segir, að 100 kindur þurfi
21 fm., 23 kindur 1,83 =25,83 (geri brotið að heilum
á báðum stöðunum), og 11 hross 18,26, sem eg tel 44
forðamál, er svo deilast í 357 fm., er afgangs voru kún-
um. Yerða það þá rúmar 8 vikur. Hefði svo bóndi sagt,
að hestarnir þyrftu ekki fóður nema t. d. í 3 vikur, þá
hefði eg tekið frá fyrir þá: 11 hestar í 3 vikur er sama
sem 33 hestar i viku, og það segir taflan að só 54,78.
Þá er eftir 302 forðamál, deilt með 26; verða rúmar
11 vikur eða heldur lengur en fyrir kýrnar.
Eins er taflan þægileg við haustskoðanina. Á ein-
um bænum má gera ráð fyrir 17 vikna innistöðu, öðrum
20 og þeim þriðja 25 fyrir sauðfó t. d. Þá er nóg 3,57
forðamál fyrir kindina á 1. bænum, 4,2 á 2. bænum og
5,04 á 3. bænum. Þetta sóst fljótlega á töflunni, því
17 kindur i viku er sama sem 1 kind í 17 vikur o. s. frv.
Þannig má nota töfluna á marga vegu. Mestur er vand-
inn að leggja rétt í númerin, en það koma menn fljótt
til með að iæra. Eg held eg þori að staðhæfa það, að'
sé heyin metin rétt, þá sé óhætt að reiða sig á töfluna,
að eins vel dugi og þar er gert ráð fyrir, þó full gjöf sé..
Þá ætla eg að minnast lítið eitt á annað fóður en
hey, en um leið verð eg að geta þess, að þar er eg
enginn sórfræðingur. Byggi á því, sem aðrir hafa sagt
mér í því efni.
Eg tel og þykist hafa eigin reynslu fyrir því, að-
forðamál af heyi, hvort heldur er taða eða úthey, vigti
33—34 kg., og eftir því ættu 11 —12 kg. af rúg- og
maísmjöli og líkl. fleiri korntegundum að vera 1 forða-
mál, sömuleiðis af signum eða söltuðum hrognum og