Búnaðarrit - 01.01.1914, Blaðsíða 146
142
BÚNAÐARRIT
Þegar litið er yfir framanskráðar rannsóknir, sést
fljótlega, að munurinn á gaddavir getur verið ákaflega
mikill. Af framanskráðum gaddavirstegundum er nr. &
beztur. Bæði er zinkhúðin þykkust á honum og annar
frágangur, t. d. á göddunum, líka betri en á nokkrum
hinna. Því miður var það, sem eg hafði til athugunar,
að eins smá sýnishorn til að panta eftir, því engar birgðir
voru til af honum hér síðastliðið sumar. Næsti í röð-
inni er nr. 1. Það má heita ágætur gaddavír. Zink-
húðin þykk1) og allur frágangur góður. Hin sýnishornin
mega heita all-brúkleg nema að nr. 6 er óhæfilega þunt
zinkhúðað, og gaddarnir heldur ekki góðir. Á nr. 7 er sá
galli, að gaddarnir eru illa festir, og yfir höfuð ekki ve)
frá þeim gengið. Annars virðist það vera óheppilegt,
að vefja göddunum um báða strengina. Þeir eru miklu
lausari þannig, og endarnir líka mikið mislengri, en eí
þeir eru vafðir um að eins annan strenginn.. .
Að endingu vii eg taka það fram, að mér virðist
sjálfsagt., að menn komi sér saman um einhverjar al-
mennar reglur um það, hvernig gaddavír skuli vera,
eigi hann að teljast nothæfur til girðinga. Krefjast þess
að hann þyldi tiltekinn dýfufjölda t. d. 7—8 eftir framan-
greindri aðferð. Set.ja takmörk fyrir því, hve langt megi
vera milli gadda, t. d. 10—15 cm., og ákveða hve langir
þeir skuli vera, t. d. 1,2—1,6 cm., og að þeir skuli jafnan
vera 4 og helzt vafðir um annan strenginn en ekki um
þá báða. Yrðu einhverjar slikar reglur viðurkendar, mundi
kaupmönnum og öðrum, er verzlameð gaddavír, ekki hald-
ast uppi að selja nema góða vöru, og þá væri mikið unnið.
1) Til þess að gofa mönuum dálitla liugmynd um, hvers
krafist er í öðrum löndum af „galvaníseruðum11 vír, skal eg taka
til dæmis, að danski rikísritsíminn hoimtar, að járnvír, sem er að
þvermáli 4,5 mm. og stálvír, sem er að þvermáli 3,0 mm. þoli 7 dýfur
(mínútur) í framanskráðan vökva, og að vír, sem er 1,B mm., þoli
6 dýfur. Auk þess er krafist, að zinkhúðin ekki springi eða ílagni
af þótt vírinn sé vafinn í þéttum vindingum utan um tein, sem
er 10 sinnum gildari en vírinn.