Ný saga - 01.01.1996, Blaðsíða 63
Svipmyndir og frásagnir um fyrstu kröfugönguna á íslandi
Mynd 4. Kristinn Einarsson heildsali bjó við
Kirkjutorg. Er kröfugangan kont úr Vesturbæ
og gekk niður Túngötu skundaði hann til móts
við göngumenn og tókst að i'esta á filmu nokkr-
ar myndir er gangan fór um Kirkjustræti. Mörg
húsanna sem ber fyrir augu eru horfin. Uppsal-
ir, frægt hús á horni Aðalstrætis og Túngötu.
Verið er að mála Aðalstræti 16 (Andersen og
Söns, klæðskerar). Gamla Steinsenhúsið er Að-
alstræti 14, en hús Matthíasar Johannessen nr.
12. Skrúðgarðurinn sem girtur er timburgirð-
ingu er Bæjarfógetagarðurinn sem svo var
nefndur, garður sá er Schierbeck landlæknir
ræktaði á stæði gamla kirkjugarðsins við Kirkju-
stræti.
í fremstu röð er hópur verkakvenna og hús-
mæðra. Að baki fánabera er peysufatakona,
sem horfir í ált til lögregluþjóns á gangstétt
sunnan götunnar. Þar fer Þorbjörg Mensaldurs-
dóttir, eiginkona Eyjólfs Jónssonar múrara.
Með henni eru þrjú börn þeirra hjóna, Sólveig
(kona Eysteins Jónssonar ráðherra), Hólmfríð-
ur kaupkona í Vogue og Guðlaugur skrifstofu-
stjóri. Vinnuklæddur maður búinn ljósum jakka
og með ljósa derhúfu í miðjum hópi göngu-
manna er Pálmi Ólafsson verkamaður. Hann
stundaði eyrarvinnu við Reykjavíkurhöfn, iðk-
aði skák og var ákafur stuöningsmaöur Skaga-
manna á knattspyrnuvelli. Gullaldarliö þeirra
og skákfclagar af Borgarbílastöðinni báru hann
til grafar. Pálmi tók þátt í öllum kröfugöngum
sem farnar voru, allt frá öndverðu (1923) til árs-
ins 1989, en hann lést 27. október 1989. Við
samanburð á ljósmyndum, sem teknar cru á
Laugavegi og Hverfisgötu, má sjá að ntargir
hinir sömu eru þar á ferð og skipan svipuö.
61