Vera - 01.02.2005, Page 18
í UMRÆÐUM UM STÖOU FJÖLSKYLDUNNAR ER OFT RÆTT UM BREYTINGARNAR SEM ORÐIÐ HAFA Á ÞJÓÐFÉLAGINU SÍÐAST-
LIÐNA ÁRATUGI í KJÖLFAR BARÁTTU KVENNA FYRIR JAFNRÉTTI. KONUR ERU EKKI LENGUR HEIMAVINNANDI, ÞÆR ERU
FARNAR ÚT Á VINNUMARKAÐINN EINS OG KARLAR OG VIÐ ÞVÍ ÞARF ÞJÓÐFÉLAGI0 AÐ BREGAÐST. VERA BAÐ TVÆR
KVENNABARÁTTUKONUR AÐ META STÖÐUNA í ÞESSU LJÓSI OG HORFA FRAM Á VEGINN.
KRISTÍN ÁSTGEIRSDÓTTIR, FYRRUM FÉLAGI í RAUÐSOKKAHREYFINGUNNI OG
KVENNALISTANUM, NÚ í FEMÍNISTAFÉLAGI ÍSLANDS
Fjölskyldan þá og nú
Þegar róttækar kvennahreyfingar vöknuðu til lífsins aó
nýju á sjöunda áratug 20. aldar var fjölskyldan, staöa
hennar og hlutverk, eitt helsta viöfangsefni kvennabarátt-
unnar. Konur og líf þeirra var til skoðunar út frá öllum
hugsanlegum sjónarhornum og því eölilegt aö sjónir
beindust að fjölskyldunni og hlut hennar í að móta
ákveðna staðalmynd af konum og marka konum bás í sam-
félaginu. Orðræðan gekk út á aö koma lífi sem flestra
kvenna í farveg hjónabands og barneigna. Hin sanna kona
var gift og átti börn.
Innan fjölskyldunnar blasti við mjög
ákveðin verkaskipting og ófullnægja
kvenna með einhæít og oft innihaldslaust
líf húsmæðra í úthverfum. Þessi mynd
var t.d. áberandi í bókum sem skrifaðar
voru á þessum tíma og má t.d. minna á
fræga bók Betty Friedan The Feminine
Mystique sem kom út 1963 og skáldsögu
Marilyn French Kvennaklósettið sem vakti
heimsathygli, að ógleymdum sögum
Svövu Jakobsdóttur. Myndin sem dregin
var upp af fjölskyldunni var af kúgun og
þjónustuhlutverki kvenna. Fjölskyldan
var tæki sem beitt var til að halda konum
í ákveðnu hlutverki sem margar þeirra
voru vægast sagt ósáttar við. Fjölskyldan
tryggði völd karla úti en hélt konum inni.
í kjölfar róttækrar umræðu voru til-
raunir gerðar með alls konar ný sambýl-
isform og lífi kjarnafjölskyldunnar var
sagt stríð á hendur. Skiln-
aðartíðni óx og margar
konur viðurkenndu sam-
kynhneigð sína þegar and-
rúmsloftið leyfði. Þetta
tímabil gekk yfir og hefð-
bundnar fjölskyldur, kona,
karl og barn / börn voru
um sinn algengasta fjölskylduformið. Það
sem breyttist var að útivinna kvenna
jókst til muna, barneignum fækkaði jafnt
og þétt og nokkur breyting varð á verka-
skiptingu á heimilum, einkum þó hvað
varðar ferðrahlutverkið, t.d. hér á Noður-
löndum. Ofurkonan sem var í fínni
stöðu, átti glæsilegt heimili, mann og
börn og var alltaf eins og nýklippt út úr
tískublaði varð til.
Sprungur og skuggar í fjöl-
skylduspeglinum
Þá kom til sögunnar önnur umræða. I
fjölskylduspeglinum blöstu við sprungur
og skuggar. I ljós kom að fjölskyldan og
heimilið var hreint ekki sá griðastaður
sem látið var í veðri vaka. Rannsóknir
sýndu að ofbeldi gegn konum inni á
heimilum var miklu útbreiddara en
nokkurn óraði fyrir. Fjórða hver kona í
heiminum verður fyrir kynbundnu of-
beldi af hálfu maka síns og hefur ekkert
dregið úr því nema síður sé. Síðar tók
umræðan að beinast að börnum og kyn-
ferðislegri misnotkun á þeim sem leiddi í
ljós að fjölskyldan og heimilið geta verið
börnum og konum stórhættuleg.
Á síðustu árum hefur umræðan snúist
æ meira um rétt barna og nauðsyn þess
að styðja fjölskyldur, hvernig sem þær líta
út. Kröfur um að fólk geti samræmt
vinnu og einkalíf / fjölskyldulíf hafa orð-
ið æ háværari og eru nú orðnar hluti af
stefnu Evrópusambandsins. Slíka stefnu
er að finna í framkvæmdaáætlun ríkis-
stjórnarinnar í jafnréttismálum en lítið
ber á framkvæmdum. Fæðingarorlof
feðra er orðið að lögum en þar á móti
koma sívaxandi kröfur vinnumarkaðar-
ins um afköst og virkni. í stað þess að
vinnutími styttist er hann að lengjast. Sá
tími sem ætlaður er samvistum foreldra
og barna fer síminnkandi.
Fjölskyldugerðin hefur breyst
Á sama tíma hefur orðið mikil breyting á
fjölskyldugerðum á íslandi. Sífellt fleiri
kjósa að búa einir, með eða án barna, og
mikið er um pör án barna. Samkvæmt
nýjustu tölum Hagstofunnar (2003) eru
hjón án barna 34% fjölskyldna, hjón með
börn eru 33%, pör í óvígðri sambúð án
barna eru 4%, óvígð pör með börn eru
12% og mæður með börn eru 15%. Að-
eins 1% karla eru
einir með börn. Um
33% kvenna eru
ógiftar og barnlausar
og 42% karla. Fjöl-
skyldur þar sem er að
finna pabba, mömmu
og börn eru því í
Ofurkonan sem var í fínni stöðu, átti
glæsiJegt heimili, mann og börn og
var alltaf eins og nýklippt út úr tísku-
blaði varð til
18/1. tbl. / 2005 / vera