Vera - 01.02.2005, Side 51

Vera - 01.02.2005, Side 51
Á heimasíðu skrifstofu bresku ríkisstjórn- arinnar sem fer með þessi mál, er að finna lista yfir þau ríki heims sem náð hafa 30% markmiði Sameinuðu þjóðanna. Þar er að finna öll Norðurlöndin nema ísland vinnumarkaðslöggjöf við setningu sinnar fyrstu jafnréttislöggjafar þá á hún það sammerkt að leggja bann við mismunun vegna kynferðis og skilgreina úrræði eða leiðir fyrir þann sem telur sig sæta slíkri mismunun. Löggjöfm var almennt hlut- laus, tók jafnt til kvenna og karla og kall- aði ekki á neinar sérstakar aðgerðir í sam- félaginu. Um tíu árum síðar sjáum við hins veg- ar verulegar breytingar. í fyrsta lagi er löggjöfm ekki lengur kynhlutlaus heldur tekur mið af þeirri staðreynd að það hall- ar á konur og því sé aðgerða þörf. Ríkis- valdið ber nú skilgreinda, lagalega ábyrgð á að tryggja þróun í átt að markmiðinu. Á þessum tíma er samningur Sameinuðu þjóðanna um afnám allrar mismununar gagnvart konum orðinn að veruleika. Þann samning hafa öll ríki Evrópu sam- þykkt. Samningurinn leggur þær skyldur á aðildarríkin að „gera allar viðeigandi ráðstafanir á öllum sviðum, sérstaklega á sviði stjórnmála, félagsmála, efnahags og menningar, þ.á.m. með lagasetningu ....“ til að ábyrgjast fulla þróun og framfarir. Samningurinn tekur því til allra sviða samfélagsins. Hann byggir á þeirri stað- reynd að konur njóta ekki jafnréttis á við karla og hann skilgreinir tímabundnar aðgerðir sem miða að því að flýta raun- verulegu jafnrétti kynjanna sem hluta af jafnréttismarkmiðinu en ekki sem and- stæðu þess. Sérstök lagaákvæði á fleiri sviðum en vinnumarkaði Kvennasamningur SÞ sem og starf ýmissa fjölþjóðastofnana eins og Evrópuráðsins og Evrópusambandsins hafði án efa mik- il áhrif á þessa evrópsku lagaþróun. Á síðusta áratug eða svo sjáum við enn eina þróunina á lagasviðinu. Ríki Evrópu hafa í æ ríkara mæli sett sérstök lagaákvæði eða sérstök lög er varða jafnrétti kynja á öðrum sviðum samfélagsins en á vinnu- markaði. Slík lög/lagaákvæði varða m.a. ofbeldi gagnvart konum, heilbrigði kvenna og völd þeirra eða öllu heldur valdaleysi. Hér tel ég að við höfum verk að vinna. í því sambandi er áhugavert að íhuga hvað felist í 2. mgr. 65. gr. stjórnarskrár- innar um að konur og karlar skuli njóta jafnréttis í hvívetna. Skýrt er tekið fram í greinargerð með ákvæðinu að það komi ekki í veg fyrir að sérstökum tímabundn- um aðgerðum sé beitt enda væri slíkt í andstöðu við alþjóðlegar skuldbindingar okkar. Þó svo ákvæðið leggi ekki jákvæð- ar skyldur á ríkisvaldið til aðgerða þá bera stjórnvöld slíkar skyldur bæði á grundvelli stjórnarskrárinnar sjálfrar og á grundvelli alþjóðlegra mannréttinda- samninga ef fyrir liggur rökstuddur grunur um mismunun. Og ekki verður horft fram hjá því að hann er til staðar í samfélagi okkar. Hins vegar er erfítt um vik þegar síðan þessi sömu stjórnvöld horfa fram hjá ákvæðinu við röðun á lista eigin stjórnmálaflokka eða skipan í nefndir á þess vegum. Ég tel því nauðsyn- legt að hugað sé að útfærslu þessara skyldna í lögum. Haldlaust ákvæði í íslenskum jafnréttislögum Og vfkjum þá aftur að þátttöku kvenna í stjórnmálum. Nauðsynlegt er að huga að möguleikum kvenna til að gera sig gildandi í stjórnmálastarfi og þar með til að ná kosn- ingu. Eru þær jafn vel þekktar og karlarnir innan flokksins? Hverjir gegna trúnaðar- störfúnum? Hverjir veljast aðstoðarmenn ráðherra eða til annarra pólitískra starfa í ráðuneytunum? Hverjir veljast í nefndir sem ráðherrar skipa og fá þannig dýrmæta reynslu og möguleika til að kynna sig innan flokks sem utan? Og hvernig getur löggjöf tryggt hér framþróun? Frá árinu 1985 hefur verið neyðarlegt og haldlaust ákvæði í íslensku jafnrétt- islögunum um skipan í opinberar nefnd- ir, stjórnir og ráð. Segir í 20. gr. núgild- andi laga að í nefndum, ráðum og stjórn- um á vegum ríkis og sveitarfélaga skuli, þar sem því verði við komið, sitja sem næst jafnmargar konur og karlar og að ávallt skuli á það minnt þegar óskað er tilnefningar í hlutaðeigandi nefndir, ráð og stjórnir. Ákvæðinu er að því ég best veit ekki fylgt eftir. Er ekki kominn tími til að viðurkenna haldleysi þessa ákvæðis og líta til reynslu annarra þjóða? Danir hafa, svo dæmi sé tekið, verið með löggjöf um skipan í opinberar nefndir og ráð frá árinu 1985 og frá árinu 1990 um skipan í stjórnir ríkisstofnana. Núgildandi löggjöf þeirra er frá árinu 2000. Er þar kveðið á um jafnt hlutfall kynja í nefndum og ráð- um og svokölluð tilnefningaleið lögfest. Skyldan tekur bæði til ráðherraskipaðra nefnda, stjórna ríkisstofnana, stjórna hlutafélaga í eigu ríkisins, stjórna fyrir- tækja sem eru í meirihluta eigu ríkisins og stjórna stofnana sem starfa samkvæmt fjárframlögum frá ríkinu. Jafnréttisráð- herrann fær upplýsingar um fyrirhugað- ar skipanir og getur gert athugasemd sé þess talin þörf og jafnvel óskað breytinga. Frakkland og Belgía hafa, svo annað dæmi sé tekið, lögfest ákvæði um svokall- aða fléttulista við framboð til þings og sveitarstjórna. Belgía er nú eitt þeirra ríkja sem náð hefur 30% markinu á sínu þingi. Vegna galla í löggjöf Frakka geta stjórnmálaflokkar þar vikið frá ákvæðinu og því er árangur löggjafarinnar ekki eins verulegur. Slóvenía er eina land Evrópu, sem mér er kunnugt um, sem hefur í sín- um jafnréttislögum ákvæði um skyldur stjórnmálaflokka til að setja sér jafnréttis- áætlun til fjögurra ára í senn. Segir þar í 31. gr. að í áætluninni, sem ber að senda Jafnréttisstofu þess lands innan ákveð- inna tímamarka, skuli koma fram hlutfall kynja í trúnaðarstöðum innan flokksins, markmið flokksins skulu skilgreind og fyrirhuguðum aðgerðum til að ná því markmiði lýst. Lögin eru frá árinu 2002. Ég kom að samningu þeirra sem ráðgjafi við slóvensk stjórnvöld. Framangreint Slóvenía er eina land Evrópu, sem mér er kunnugt um, sem hefur í sínum jafnrétt- islögum ákvæði um skyldur stjórnmála- floklca til að setja sér jafnréttisáætlun til fjögurra ára í senn vcra / 1. tbl. / 2005 / 51

x

Vera

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vera
https://timarit.is/publication/858

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.