Árbók VFÍ/TFÍ - 01.06.2009, Síða 19
Stjórn STFÍ hafði samband við Opna háskólann í Háskólanum í Reykjavík, en það er
eining innan HR sem sinnir símenntun og þjónustu á sviði atvinnulífsins með fjölbreyttu
námskeiðahaldi og fyrirlestrum.
Fundað var með þeim Halldóru G. Hinriksdóttur forstöðukonu og Elínu M. Björnsdóttur
verkefnisstjóra og var ýmislegt í boði hjá þeim. Fljótlega var komist að þeirri niðurstöðu
að halda einn fyrirlestur til kynningar og svo tveggja daga námskeið undir yfirskriftinni
„Að leiða fólk til árangurs". Kynningarfyrirlesturinn var haldinn 16. október 2008, en
námskeiðið var haldið dagana 11. og 13. nóvember. Fyrirlesari var Kristinn Tryggvi
Gunnarsson frá Capacent. Óllum félagsmönnum TFÍ, SV og VFÍ var boðin þátttaka og
mættu 20 áhugasamir félagsmenn á báða námskeiðsdagana.
Stjórn STFÍ er að vonum mjög ánægð með hvernig til tókst og fékk góðar þakkir fyrir frá
þátttakendum í lok námskeiðsins.
Á stjórnarfundi STFÍ þann 3. febrúar 2009 mætti Árni B. Björnsson framkvæmdastjóri TFÍ
og voru ræddar framtíðarhugmyndir STFÍ um hvaða hlutverki félagið gæti gegnt við að
þróa námskeið og fyrirlestra sem gagnast mætti félagsmönnum, aðallega miðað við
núverandi aðstæður í þjóðfélaginu. Fram kom að STFÍ vildi halda áfram að nýta sérþað
sem Opni háskólinn hefur upp á að bjóða í formi fyrirlestra og námskeiða og var Árni
mjög meðmæltur því. Árni kom fram með þá hugmynd að hin félögin, TFÍ, KTFÍ, VFI og
SV kæmu að fjármögnun slíkra námskeiða í samstarfi við STFÍ í framtíðinni, en það þyrfti
að ræða nánar.
Haldnir voru þrír fyrirlestrar á vegum Opna háskólans í Reykjavík sem unnið var
samkvæmt verkefnatillögu frá Halldóru G. Hinriksdóttur forstöðukonu.
Námskeiðin voru sniðin að aðstæðum þeirra félagsmanna sem misst hafa vinnuna.
Fyrirlestrarnir voru dagana 2., 4. og 6. mars 2009, þrjár klukkustundir í hvert sinn. Fjallað
var um traust (leiðbeinandi Kristinn T. Gunnarsson), fjármál (leiðbeinandi Sigurður
Erlingsson) og persónulega markmiðasetningu (leiðbeinandi Halldóra Hinriksdóttir).
Öllum félagsmönnum TFÍ, SV og VFÍ var boðin þátttaka og mættu 11 manns á námskeið
1, 15 manns á námskeið 2 og 18 manns á námskeið 3. Stjóm STFI er mjög ánægð með
hvernig til tókst. Þó hefði þátttaka örugglega orðið meiri ef aðdragandinn hefði verið
lengri. Námskeiðin voru auglýst með stuttum fyrirvara 25. febrúar.
Stjórnarfundir TFÍ: Magnús Þór Karlsson og Ingvar Blængsson hafa setið stjórnarfundi
TFÍ til skiptis, þ.e. annað hvert skipti. Einnig hefur formaður sótt nokkra fundi.
Fjárhagur STFÍ: Fjárhagur STFÍ er góður eins og fyrri ár. Samkvæmt ársreikningi voru
tekjur umfram gjöld á árinu.
Framtíð STFÍ: Stjórn STFÍ ætlar að halda áfram á svipaðri braut með fyrirlestrum og
hugsanlega námskeiðum fyrir félagsmenn.
Daði Ágústsson formaður, Magnús Þór Karlsson gjaldkeri og Ingvar Blængsson ritari.
Ársskýrsla KTFÍ
í stjórn félagsins eru Þór Sigurþórsson formaður, Jón ísaksson Guðmann varaformaður,
Haraldur Sigursteinsson gjaldkeri, Samúel S. Hreggviðsson, Bjarni Bentsson, Árni Þór
Árnason og Karl Jensson. Varamenn í stjórn KTFÍ eru Elís Jónsson og Hreinn Ólafsson.
Starfsárið hefur verið umbreytingasamt þar sem framboð starfa umfram eftirspurn
einkenndi fyrri hluta árs og kjör fóru hækkandi. Seinni helming ársins hafa mörg af
öflugustu fyrirtækjum landsins þurft að draga allverulega í land vegna breytinga á fjár-
málamarkaði. Keðjuverkun hefur lirundið af stað fjölda uppsagna félagsmanna og einnig
hafa margir ef ekki allir félagsmenn orðið fyrir kjaraskerðingum sem enn sér ekki fyrir
1 7
Félagsmál Vfl/TFÍ