Árbók VFÍ/TFÍ - 01.06.2009, Síða 32
Heimsóknin var einstaklega skemmtileg og áhugaverð og m.a. kom í ljós að Kine er eina
fyrirtækið í heiminum sem hefur mælt vöðvarit þráðlaust í vatni og að hreyfigrein-
ingarbúnaður þess hefur verið notaður af knattspyrnufélaginu Real Madrid.
Reynir Freyr Bragason, formaður RVFÍ
Störf Orðanefndar RVFÍ árið 2008
Fyrstu tvo mánuði starfsárs Orðanefndar rafmagnsverkfræðinga (ORVFÍ) árið 2008 var
lögð áhersla á að ljúka endanlega við þýðingar nefndarinnar á íðorðum 705. kafla í
orðasafni Alþjóða raftækninefndarinnar (IEC), Útbreiðsla loftskeytabylgna, og endur-
skoða þau. íðorð þessa kafla og 712. kafla, Loftnet, eru viðfangsefni 13. bindis Raftækni-
orðasafns (RTO 13). Prentun bókarinnar hafði tafist mjög undanfarna mánuði í prent-
smiðju, þar sem þýðingum orðanefndarinnar á hluta 705. kafla seinkaði. Bókin kom þó
út á síðsumri.
Nefndin ræddi þegar á árinu 2006 um nauðsyn þess að endurskoða íslenskt - enskt -
íslenskt raftækniorðasafn, sem út kom á árinu 1997, samræma orðaforða eldri og yngri
útgáfubóka nefndarinnar og bæta við orðaforða Raftækniorðasafns 6 til 13 í nýja tveggja
tungumála orðabók. Eftir að vinnu lauk við kaflana í RTO 13 gat nefndin loks farið af stað
við samræminguna. Verkefnum hafði verið skipt á nefndarmenn, sem áttu að gera
athugasemdir við þau orð sem þeir vildu ræða um á fundum. Von bráðar urðu umræður
um samræmingu íðorða mun ýtarlegri, en gert hafði verið ráð fyrir í upphafi, m.a. við að
finna ný orð í stað margra þeirra, sem fyrir voru í orðabókum nefndarinnar. Samræmingu
orðaforðans er því hvergi nærri lokið, þó að hún hafi verið meginverkefni starfsársins.
Undir lok janúar var rætt um lagalega stöðu íslenskunnar á þingi íslenskrar málnefndar
og daginn eftir var árleg Rask-ráðstefna um íslenskt mál og almenna málfræði á vegum
Islenska málfræðifélagsins og Málvísindastofnunar Háskóla íslands. Orðanefnd RVFI átti
fulltrúa á báðum viðburðum.
Orðanefnd rafmagnsverkfræðinga er stofnfélagi að Málræktarsjóði og hefur árlega sent
fulltrúa sinn á aðalfundi sjóðsins. Svo var einnig á liðnu ári.
Haraldur Bernharðsson Ph.D., íslenskufræðingur við Stofnun Árna Magnússonar í
íslenskum fræðum, starfaði með nefndinni sem sérfræðingur og ráðgjafi um íslenskt mál
fra hausti 2005. Haustið 2008 oskaði hann eftir að verða leystur frá fundarmætingu vegna
anna. I stað hans kom til starfa Jóhannes Bjarni Sigtryggsson, MA í íslenskri málfræði,
verkefnisstjóri á málræktarsviði Stofnunar Arna Magnússonar í íslenskum fræðum.
Fundir ORVFÍ á árinu 2008 urðu 27. Meðalfundarsókn var 7 til 8 menn á fundi, nánar
tiltekið 7,52. Nefndarmenn voru 10 allt árið að íslenskufræðingi meðtöldum. Fundarsókn
nefndarmanna var því góð. Um áramótin 2008/2009 hafði ORVFÍ þar með komið saman
á 1171 fundi frá árinu 1971, en þá var fyrst farið að færa fundargerðir reglulega. Að
meðaltali hefur 31 fundur (30,8) verið haldinn árlega í 38 ár.
Á árinu 2008 skipuðu eftirtaldir rafmagnsverkfræðingar Orðanefnd RVFÍ: Bergur
Jónsson formaður, Gunnar Ámundason, Gústav Arnar, ívar Þorsteinsson, Jón Þóroddur
Jónsson, Sigurður Briem, Sæmundur Óskarsson, Þorvarður Jónsson og Hreinn Jónasson
rafmagnstæknifræðing;ur, Jóhannes Bjarni Sigtryggsson, MA í íslenskri málfræði, hefur
starfað með nefndinni sem sérfræðingur og ráðgjafi um íslenskt mál frá síðastliðnu
hausti, eins og áður segir.
Bergur Jónsson formaður
3 0. Arbók VFl/TFf 2009