Árbók VFÍ/TFÍ - 01.06.2009, Page 33
SAMEIGINLEGUR REKSTUR T F f OG VFÍ
1.3.1 Uppbygging og starfsemi TFÍ/VFÍ
starfsárið 2008-2009
Skrifstofa
Skrifstofan er rekin sameiginlega af Stéttarfélagi verkfræðinga, Verkfræðingafélagi
íslands og Tæknifræðingafélagi Islands. Skrifstofan veitir félagsmönnum alla nauðsyn-
lega þjónustu og er bakhjarl fyrir innra starf félaganna. Skrifstofan er opin alla virka daga
frá 9-12 og 13-17, nema á föstudögum til kl. 16:00. Lokað er í júlímánuði vegna sumar-
leyfa.
Á skrifstofunni starfa Árni Björn Björnsson framkvæmdastjóri,
Sigrún S. Hafstein, sviðsstjóri útgáfu- og markaðsmála, Þrúður G.
Haraldsdóttir, sviðsstjóri kjaramála, Guðríður Ó. Magnúsdóttir
skrifstofustjóri, Ingibjörg Ósk Birgisdóttir, fulltrúi í móttöku,
Ingigerður Jónsdóttir, fulltrúi sjóða, og Þórunn Árnadóttir, fulltrúi
menntunarnefnda.
Nýr framkvæmdastjóri
Árni Björn Björnsson verkfræðingur var ráðinn framkvæmda-
stjóri TFÍ, SV og VFÍ. Árni hóf störf 1. ágúst 2008 og tók við fram-
kvæmdastjórastöðunni af Loga Kristjánssyni 20. september. Logi
var ráðinn framkvæmdastjóri VFÍ og TFÍ haustið 1997 og frá ára-
mótum 2007-2008 var hann einnig framkvæmdastjóri SV.
Framkvæmdir á fyrstu hæðinni
Á árinu voru umfangsmiklar endurbætur gerðar á
Verkfræðingahúsi. Fyrsta hæðin var tekin í gegn og
þar er nú aðsetur skrifstofunnar. Þá var gluggi í
stigahúsi endurnýjaður.
Skýrslutæknifélagið flutti aðsetur sitt í Verk-
fræðingahús og leigir að hluta húsnæðið þar sem
skrifstofa félaganna var áður. Á starfsárinu höfðu
eftirtalin félög og fyrirtæki aðsetur í Verkfræð-
ingahúsi: Verkfræðingafélag íslands, Stéttarfélag
verkfræðinga, Tæknifræðingafélag íslands, Líf-
eyrissjóður verkfræðinga, Félag ráðgjafarverk-
fræðinga, Arkitektafélag íslands, Félag sjálfstætt
starfandi arkitekta, Félag húsgagna- og innanhúss-
arkitekta, Félag íslenskra landslagsarkitekta,
Skýrslutæknifélag íslands, Iðnfræðingafélag
Árni Björn Björnsson fram-
kvæmdastjóri VFÍ og TFÍ.
það var heilmikið verk að skipta um glugga í
stigahúsi verkfræðingahússins.
3 1
Félagsmál VFÍ/TFÍ