Árbók VFÍ/TFÍ - 01.06.2009, Page 38
Öll fagfélög verkfræðinga og tæknifræðinga í Evrópu eru aðilar að FEANI og eru félags-
menn þeirra samtals um 3,8 milljónir. Meginhlutverk samtakanna er að standa vörð um
gæði menntunar verkfræðinga og tæknifræðinga auk eftirfylgni ýmissa réttindamála. í
því felst meðal annars að halda skrá um þá skóla sem bjóða viðurkennt nám í verkfræði
og tæknifræði. Áður voru þessar upplýsingar birtar í bók, svokölluð. „FEANI Register"
en nú eru þær á vef samtakanna, www.feani.org. FEANI hefur aðsetur í Brussel. Þar eru
þrír starfsmenn.
ENGCARD
Helsta viðfangsefni ársfundarins var ENGCARD. Evrópusambandið hefur gefið út
tilskipun þess efnis að árið 2012 eigi að vera búið að gefa út starfsréttindaskírteini (pro-
fessional cards) fyrir allar starfsstéttir, sem ætlað er að auðvelda skráningu og allt
utanumhald vegna fólksflutninga innan Evrópusambandsins. Skírteinið mun innihalda
grunnupplýsingar um menntun, starfsferil og endurmenntun viðkomandi. FEANI hefur
verið leiðandi í undirbúningsvinnunni innan ESB á síðustu 20 mánuðum og fengið til
þess um 610 þúsund evrur. Afar skiptar skoðanir komu fram á fundinum um tilgang
verkefnisins þar sem mörgum þóttu markmið þess óljós og ávinning af skírteininu vera
takmarkaðan. Meðal annars var spurt hvort unnið væri að þessu til að styrkja FEANI eða
starfsstéttina. Niðurstaða fundarins var að FEANI myndi áfram taka þátt í verkefninu en
ekki af sama þunga og áður.
Menntunarmál
A ársfundinum var einnig rætt um menntunar- og atvinnumál. Allar þjóðir Evrópu, að
Finnlandi undanskildu, telja nauðsynlegt að fjölga tæknimenntuðu fólki. Tekin voru
dæmi frá löndum í Mið- og Suður-Evrópu þar sem mörg fyrirtæki fara þá leið að láta
indverska verkfræðinga og tæknifræðinga vinna verkefni í fjarvinnu. Þess má geta að á
hverju ári útskrifast um 300 þúsund verkfræðingar og tæknifræðingar í Indlandi.
Ný aðildarlönd i FEANI
Fyrir fundinum lá umsókn frá Króatíu og Rússlandi um aðild að samtökunum. Auk þess
lá fyrir umsókn frá nýju verkfræðingafélagi í Belgíu. Ekki var mikil umræða um
umsóknirnar þar sem almennur vilji var hja aðildarþjoðunum að veita þeim inngöngu og
voru umsóknir þessara þjóða samþykktar með öllum greiddum atkvæðum.
Nýr formaður FEANI
Auk stjórnarkjörs fór fram kosning formanns FEANI. Lars Bytoft, formaður IDA, danska
verkfræðinga- og tæknifræðingafélagsins, var einn í kjöri til formanns og fékk hann 98%
atkvæða í leynilegri kosningu.
Jóhannes Benediktsson, formaður íslandsnefndar FEANI
Störf eftirlitsnefndar FEANI
Evrópusamtök tæknifræðinga og verkfræðinga, FEANI, skipa eftirlitsnefndir (National
Monitoring Committee) í hverju aðildarlandi samtakanna. Hlutverk þessara nefnda er að
fylgjast með háskólanámi og hvort skólarnir uppfylli kröfur þær sem samtökin gera til
tækniskóla sem þau viðurkenna. Einnig að fara yfir umsóknir um skráningu manna hjá
FEANI á grundvelli menntunar og um EUR ING-titilinn. í nefndinni eiga sæti tveir full-
trúar frá VFÍ og tveir frá TFÍ. Frá VFÍ Jón Vilhjálmsson formaður og Ríkharður
Kristjánsson, frá TFÍ Daði Ágústsson og Gunnar Sæmundsson. Engin umsókn barst á
árinu um EUR ING-titilinn og því var ekki haldinn fundur í nefndinni á starfsárinu.
3 6
Arbók VFl/TFl 2009