Árbók VFÍ/TFÍ - 01.06.2009, Blaðsíða 73
hús í Hraunborgum í Grímsnesi og í ár leigir hann einnig hús við Hreðavatn, sumarhús
í Önundarfirði, íbúð á Akureyri, sumarhús að Hrísum í Eyjafirði, sumarhús að Staffelli á
Héraði og nýjan sumarbústað í Árnesi í Gnúpverjahreppi. Auk þess býður OSV upp á
niðurgreiðslu á hótelgistingu með sölu á hótelmiðum.
Stjórn Orlofssjóðs SV árið 2008 skipuðu Kristján M. Ólafsson, Sveinn V. Árnason og Þórir
Guðmundsson.
Sjúkrasjóður SV
Sjóðfélagar eru starfsmenn á FRV verkfræðistofum og starfsmenn á almennum markaði.
Árinu 2008 voru gerðar þær breytingar á úthlutunarreglum að farið var að greiða 50%
iðgjalda síðustu ára í almemia styrki.
Stjórn Sjúkrasjóðs fyrir starfsárið 2008 til 2009 skipuðu Kristján Ólafsson, formaður, Anna
Karlsdóttir og Sigurður E. Guttormsson.
Fjölskyldu- og styrktarsjóður SV
Stjórn Styrktarsjóðs SV fyrir starfsárið 2008 til 2009 skipuðu Sveinn Víkingur Árnason,
formaður, Auður Ólafsdóttir og Hulda Guðmundsdóttir.
Sjóðfélagar eru starfsmenn ríkisins og sveitarfélaga og starfsmenn opinberra hlutafélaga
sem félagið gerir kjarasamninga við. Þær breytingar urðu á árinu að Fjölskyldusjóður
BHM, BSRB og KÍ hefur hætt umsýslu um fæðingarorlof og því fluttist sú starfsemi til SV
um áramótin 2008/2009.
Veittir voru 79 styrkir. Þetta eru um það bil tvöfalt fleiri styrkir en undanfarin ár. Til að
hressa upp á líkama og sál voru veittir 27 styrkir, til tannviðgerða voru veittir 17 styrkir
til íþróttaiðkunar 18 og til gleraugnakaupa voru veittir 15 styrkir. Þá voru greiddir tveir
útfararstyrkir til fjölskyldna félaga sem létust á árinu.
Vísinda- og starfsmenntunarsjóður SV, Starfsmenntunarsjóður
Vísinda- og starfsmenntunarsjóður SV byggir á samkomulagi félagsins við fjármála-
ráðherra f.h. ríkissjóðs frá 1989. Það eru starfsmenn ríkisins og stofnana og opinberra
hlutafélaga í eigu ríkisins sem eiga rétt á að greitt sé fyrir þá í sjóðinn. Frá stofnun hefur
verið greitt 1,72% af dagvinnulaunum í sjóðinn en með nýjum kjarasamningi um mitt ár
2008 lækkaði það hlutfall í 0,46%. Á árinu var úthlutunarreglum breytt þamrig að
hámarksstyrkur var hækkaður í 450.000 kr. á hverju þriggja ára tímabili.
Stjórn sjóðsins var á síðasta ári skipuð eftirtöldum fulltrúum SV og ríkisins: Geir
Guðmundsson (tók við af Helga Jóhannessyni á starfsárinu), Sigurður Sigurðarson og
Gunnar Gunnarsson, f.h. fjármálaráðherra.
Sstarfsmenntunarsjóður SV byggir á samkomulagi félagsins við Reykjavíkurborg og
sveitarfélög frá 1989. Starfsmenn sveitarfélaga áttu rétt á að launagreiðandi greiddi 1,72%
af dagvinnulaunum þeirra í sjóðinn en með nýjum kjarasamningi um mitt ár 2008
lækkaði það hlutfall í 0,46%. Á árinu var úthlutunarreglum breytt þannig að hámarks-
styrkur var hækkaður í 480.000 krónur á hverju þriggja ára tímaþili.
Stjórn sjóðsins var á síðasta ári skipuð eftirtöldum fulltrúum SV og sveitarfélaganna: Árni
ísberg, Þorsteinn Sigurjónsson, Soffía Kjaran og Birgir Björn Sigurjónsson.
7 1
Félagsmál Vfí/TFÍ