Árbók VFÍ/TFÍ - 01.06.2009, Page 168
HÁSKÓLI ÍSLANDS
NÝTT STJÓRNSKIPULAG HÁSKÓLA ÍSLANDS
V I S T Ö L D I N
HÁSKÓLI FYRIR 21. ÖLDINA
Kristín Vala Ragnarsdóttir stundar rannsóknir og kennslu (umhverfisjarðefnafræði og hefur unnið að því að efla
menntun og rannsóknir (sjálfbærri þróun. Einnig er henni mjög annt um framgang kvenna í verkfræði og náttúru-
vísindum, sem og samskipti háskóla við þjóðfélagið og hvernig nýta má rannsóknir til að móta þjóðfélagsstefnuna.
Kristín Vala tók til starfa sem forseti verkfræði- og náttúruvísindasviðs Háskóla Islands i september 2008.
Inngangur
Árið 2008 voru gerðar mikilvægar breytingar á skipulagi Háskóla íslands. Tvær deildir,
verkfræðideild og raunvísindadeild, voru sameinaðar í eitt svið sem nú ber heitið verk-
fræði- og náttúruvísindasvið og er eitt af fimm sviðum háskólans. Nýtt stjórnskipulag var
leitt inn í kjölfar þessara breytinga sem voru að öllu komnar til framkvæmda í byrjun árs
2009. Háskólinn hefur nú tvo aðstoðarrektora sem eru báðir verkfræðingar: Jón Atla
Benediktsson, prófessor í rafmagnsverkfræði og aðstoðarrektor vísinda og kennslu, og
Guðmund R. Jónsson, sem er aðstoðarrektor fjármála og reksturs. Þessar breytingar fólu
í sér að hluti af miðlægri stjórnsýslu færðist til sviðanna fimm og þess vegna hefur starfs-
fólki á skrifstofu sviðsins fjölgað. Sviðin eru nú rekin af sviðsforseta, rekstrarstjóra og
stjórn sem í sitja sviðsforseti, deildarforsetar, rekstrarstjóri og fulltrúar nemenda. A
sviðinu eru nú sex deildir og eru þrjár þeirra verkfræðideildir: iðnaðarverkfræði-, véla-
verkfræði- og tölvunarfræðideild, rafmagns- og tölvuverkfræðideild og umhverfis- og
óygguigarverkfræðideild. Hinar þrjár deildirnar eru jarðvísindadeild, líf- og umhverfis-
vísindadeild og raunvísindadeild.
Háskóli íslands hefur gert fjölda samninga við erlenda háskóla sem gerir nemendum
okkar kleift að stunda hluta af námi sínu við marga af virtustu háskólum heims.
Sameining verkfræði- og náttúruvísinda í eitt svið býður upp á samlegð í kennslu og
rannsóknum. Það er mikilvægt til að tryggja að nemendur fái sem besta menntun á
niðurskurðartímum eftir áfallið í október 2008. í janúar 2009 fjölgaði nemendum í verk-
fræði um 10% og síðan aftur um 20% í ágúst. Nú eru nemendur á bakkalárstigi um 2000
(49% í verkfræðigreinum), 400 í meistaranámi (71% í verkfræðigreinum) og 140 í doktors-
námi (18% í verkfræðigreinum). Þessi fjölgun nemenda endurspeglar efnahagsástand
þjóðarinnar og þá staðreynd að margt ungt fólk missti vinnuna í kjölfar bankahrunsins
og sá tækifæri til að bæta við þekkingu sína. Verkfræði- og náttúruvísindasvið gerði allt
sem í þess valdi stóð til að taka við nýnemum sem uppfylltu inntökuskilyrði.
166i Arbók VFl/TFl 2009