Árbók VFÍ/TFÍ - 01.06.2009, Page 183
Viðurkenning Vegagerðarinnar fyrir gerð og frágang
sem lokið var við á árunum 2005-2007
Vegagerðin hefur um nokkurt skeið veitt viðurkenningu fyrir gerð og
frágang mannvirkja. Þama 23. október var þessi viðurkenning veitt í
þriðja sinn, fyrir verk sem lokið var við á árunum 2005-2007. Til álita
komu fullgerð umferðarmannvirki og landmótunarverkefni sem lokið
var við á þessu árabili. Mannvirkið sem hlaut viðurkenninguna að
þessu sinni er göngubrýr yfir Njarðargötu og Hringbraut.
mannvirkja
f \
Fyrri viðurkenningar
Fyrir gerð og frágang mannvirkis sem
lokið var við á árunum 1999-2001
hlaut Vatnaleið á Snæfellsnesi viður-
kenninguna og fyrir gerð og frágang
mannvirkis sem lokið var við á árunum
2002-2004 hlaut Norðausturvegur á
Tjörnesi og áningarstaður á Teigsbjargi
viðurkenninguna.
V___________________________________y
Greinargerð dómnefndar
I byrjun ársins 2008 var gefin út orðsending um reglur um viðurkenningu Vega-
gerðarinnar fyrir gerð og frágang mannvirkja (Nr. 4/2008). í framhaldi af því var skipuð
dómnefnd til að annast mat og veitingu hennar. I nefndina voru skipuð þau Eymundur
Runólfsson, Jón Rögnvaldsson og Ásrún Rudolfsdóttir, formaður. Er þetta í þriðja sinn
sem þessi viðurkenning er veitt hjá Vegagerðinni.
Samkvæmt áðurnefndum reglum skal umhverfisnefnd hvers umdæmis Vegagerðarinnar
hlnefna tvö til þrjú mannvirki, sem lokið var við á árunum 2005-2007. Verkefni dóm-
uefndar er að velja þrjú til fimm bestu verkefnin, raða eftir gæðum og hlýtur besta
verkefnið viðurkenningu.
I þetta sinn voru tilnefnd ellefu verkefni úr fimm umdæmum (Austurland og NV-um-
dæmi skiluðu ekki inn tilnefningum að þessu sinni). Dómnefndin skoðaði öll mannvirkin
°g mat þau. Við það mat var bæði horft til hönnunar m.t.t. umferðarsjónarmiða,
fagurfræði og útfærslu. Litið var til upplifunar vegfarenda, aðlögunar að landi, frágangs
ýg fleiri atriða. Þá var einnig tekið tillit til þess hve erfið verkefnin voru að mati nefndar-
tnnar. Þessi atriði voru síðan vegin saman og heildarniðurstaðan réð vali dómnefndar.
Valið miðar að því að draga fram það sem best er gert í vegamannvirkjum á umræddu
hmabili. Valið var erfitt því að þau verkefni sem dómnefndin skoðaði voru mjög vel af
hendi leyst, enda vafamál að þau hefðu ratað í þennan hóp verkefna ef svo hefði ekki
verið. Valið byggist á mati dómnefndarmanna, tilfinningu þeirra og smekk, og verður því
alltaf umdeilanlegt.
Það er mat dómnefndar að hönnun þeirra mannvirkja sem skoðuð voru hafi í flestu tek-
íst vel, en frekar megi finna að útfærslu og frágangi þeirra. Þar má benda á nokkur atriði
sem koma fyrir.
Leiðarar eru á stundum ekki nægilega beinir og skemma fyrir heildarupplifun. Á
þetta ekki síst við um verkefni er tengjast brúm.
Einnig kemur fyrir að lokafrágangur smáatriða mætti á stundum vera betri og að
menn gefi sér tíma til að líta yfir verkið og huga að þeim.
hJiðurstaða dómnefndar varð sú að velja þrjú verkefni. Verkefni þessi eru mjög ólík, en
skáru sig nokkuð úr að hennar mati. Nefndin valdi síðan eitt af þessum mannvirkjum til
viðurkenningar, en taldi ekki efni til að raða hinum tveimur. Þessi þrjú mannvirki eru í
stafrófsröð:
Brú yfir Þjórsá
Göngubrýr yfir Njarðargötu og Hringbraut
Strandavegur, Ásmundarnes - Blæja (um Bala)
Idér á eftir verður gerð nánari grein fyrir mati dómnefndar á þeim mannvirkjum sem hún
taldi skara fram úr.
Kynning og tæknigreinar fyrirtækja og stofnana 1I8I