Árbók VFÍ/TFÍ - 01.06.2009, Page 208
Róbótar í röðun
Róbótar eru notaðir til sjálfvirkrar röðunar
stykkja í bakka.
Marel hóf vinnu að róbótatækni fyrir matvæla-
vinnslu árið 2005, en eftir að AEW Delford og
Scanvægt gengu til liðs við Marel var róbótaþróun
haldið áfram þar og er Marel nú í fararbroddi í
þróun og framleiðslu á róbótastýrðum vinnslubúnaði-
Róbótar hafa lengi verið notaðir í iðnaði við að taka
upp hluti og flytja milli staða. Þekkt er notkun
róbóta í bílaiðnaði og við hvers konar samsetningu,
þar sem viðfangsefnin eru oft jafnvel hörtnuð og
framleidd með það í huga að róbótar nái góðu taki
á þeim og geti unnið með þau í framleiðsluferlinu.
Notkun róbóta í matvælavinnslu er hins vegar um
margt erfiðari. Einstakir hlutar kjöts, fisks eða
kjúklings eru jafnan blautir, linir og viðkvæmir
gagnvart meðhöndlun, auk þess sem þeir eru yfir-
leitt mismunandi að lögun og stærð. Þetta gerir
sérstakar kröfur til skynjunartækni og gripbúnaðar
róbótanna, en Marel hefur náð góðum árangri í
þróun á griptækni sem gerir kleift að höndla nánast
hvaða vöru sem er, sama hversu fínleg, viðkvæm
eða margbreytileg hún er, lyfta henni hratt og
örugglega og flytja yfir í bakka eða form. Annað
sem gerir notkun róbóta vandasama í matvæla-
vinnslu er að umhverfi þar er oft blautt og í lok
vinnslulotu fara fram þrif með heitu háþrýstivatni
og sterkum þrifa- og sótthreinsiefnum. Sérstaklega
hefur því verið búið um róbótana þannig að þeir
þoli þetta umhverfi og jafnframt að þeir mengi ekki
matvælin með olíum eða öðrum efnum.
Flokkunarróbótar hlaða vörum - eins og t.d.
bei konsneiðu m, kjúklingabringum eða steikum - í
pakka sem eiga að hafa fyrirfram skilgreinda
þyngd. Hvert stykki er vigtað um leið og það berst
inn í kerfið og tölvan sem stýrir kerfinu ákveður í
hvaða pakka stykkið fer. Tölvusjón er beitt við að
nema stærð, stöðu og í hvaða átt stykkið á að snúa.
Róbóti flytur síðan stykkið, snýr því eins og þarf, og
kemur því fyrir í pakkningunni. Til dæmis má raða
kjúklingaleggjum í bakka þannig að leggirnir snúi á
víxl, sitt á hvað. Með þessari tækni er unnt að smíða
ómannaðar pökkunarlínur sem pakka allt að 240
skömmtum á mínútu af nánast hvaða vöru sem er,
í pakkningar af öllum stærðum og gerðum, án þess
að taka sér nokkur hlé. Róbótatæknin stóreykur
þannig framleiðni og dregur úr kostnaði í matvæla-
vinnslu.
Róbótatækni við flakasnyrtingu
Önnur aðferð við róbótatækni birtist í ITM-laxa-
snyrtivélinni („Intelligent Trimming Machine")
2 0 61 Árbók VFl/TFl 2009