Árbók VFÍ/TFÍ - 01.06.2009, Blaðsíða 279
Snjómokstur á vegum Vegagerðarinnar fer gjarnan fram snemma á morgnana eða seint á
kvöldin, og þar sem hljóðstig frá snjómoksturstæki er hátt en varir í stuttan tíma, þá má
segja að viðmiðunargildi reglugerðar í Danmörku lýsi og eigi betur við hávaðaáraun frá
akstrinum. Vert er þó að taka það fram að akstur snjómoksturstækja þarf að vera talsvert
mikill svo áhrifin séu greinileg þegar hávaðavísarnir LAe^24 klst °g ^den eru notaðir. I þessu
sambandi er því réttast að líta á hámarks-leyfileg gildi til þess að meta raunverulega
hávaðaáraun.
Samanburður - niðurstöður mælinga & reglugerðarviðmið
Hér verða niðurstöður mælinganna bornar saman við þau viðmið sem sett hafa verið
fram. Rétt er í þessu sambandi að miða við hámarks-viðmiðunargildi (e.mnx-values) til
þess að meta hávaðaáraun frá þeim hljóðgjafa sem hér er metinn. Niðurstöður mæling-
anna sem framkvæmdar voru eru settar fram sem jafngildishljóðstig yfir það tímabil sem
mælt var í hverri umferð, þ.e. rétt um 20 sekúndur, Leí. 20s. Þar sem mælitímabilið er stutt,
má gera ráð fyrir að mæligildið samsvari hámarksgildi. Samkvæmt upplýsingum frá
Alþjóðaheilbrigðismálastofnuninni, WHO (e.World Health Organization) er hætt við því að
einstaklingar vakni af svefni ef hávaði nær LAmax = 45 dB. Að sama skapi er gjarnan notað
sem viðmið að hljóðstig er um 15 dB lægra innan dyra, við opinn glugga, samanborið við
hljóðstig utan við glugga.
Út frá þessum nálgunum er hér sett fram viðmið,
LA eíj = 60 dB, einungis til þess að gefa ákveðna
hugmynd um leiðbeinandi gildi, niðurstöður þess-
ara mælinga og samanburð á þessu tvennu.
A mynd 6 má sjá niðurstöður mælinganna ásamt
leiðbeinandi viðmiðunargildi. A myndinni má sjá
að fjarlægð milli íbúðarbyggðar og hljóðupptaka
þarf að vera að u.þ.b. 55-70 m til þess að hljóðstigið
trufli ekki nætursvefn miðað við fyrrgreindar for-
sendur. Þetta gildir fyrir blað 3 (BV, 50 og 60
km/klst) og blað 2 (GMG GK5, 50 km/klst og 60
km/klst). Fjarlægðin þarf hins vegar að vera tæp-
lega 2 km í tilfelli háværasta blaðsins, harðmálms-
blaðsins. Fjarlægðin þarf að vera u.þ.b. 130 m þegar
notað er blað 1, GKK SX36-50 km/klst en tæp-
lega 260 m fyrir blaðið þegar hraðinn er aukinn í
60 km/klst.
Hafa skal í huga að hér er beitt ýmsum nálgunum og ályktunum til þess að gefa
ákveðna hugmynd um hvernig túlka megi niðurstöðurnar og bera saman við viðmið-
unargildi fyrir hávaðaáreiti og nætursvefn.
Hávaði - Hljóðskynjun
Hávaði er að mörgu leyti óáþreifanlegt umhverfislegt fyrirbæri. Áhrif hávaðans verða
ekki með beinum hætti á umhverfið en hins vegar má segja að þegar magn og styrkur
hljóðsins verður mikill, hefur hávaðinn áhrif á heyrn, heilsu og vellíðan einstaklinga. [8]
Hávaði, gjarnan nefndur óæskileg hljóð, er umhverfislegt fyrirbæri sem einstaklingar eru
útsettir fyrir, allt frá fósturskeiði og út allt lífið. Hávaði er því umhverfisvaldur, sem
verður til við margvíslegar mannlegar athafnir. Samkvæmt þessari skilgreiningu er
hávaði sérhvert hljóð, óháð hljóðstyrk, sem veldur óæskilegum lífeðlisfræðilegum og sál-
fræðilegum áhrifum á einstakling, á atburði og athafnir s.s. við samskipti, vinnu, hvíld,
afþreyingu og svefn. [8]
f \
90 • GKK SX36 -1 - 50 km/klst
■ GKKSX36 -1 - 60 km/klst
80 9 ▲ GMGGKS-2- SOkm/klst
1 ■ GMGGK5 -2 - 60 km/klst
■ BV - 3 - SOkmAlst
BV - 3 - 60km/Ust
2. ♦ Harðmálsmblóð - 4 - S0
frn * km/klst
km/klst
■ -Viðmiðunargildi
SO
0 so 100 1S0
y Fjarlægð frá hljóðupptokum |mj
Mynd 6: Niðurstöður hljóðmælinga, hljóðstig LAeq sem fall af fjar-
lægð frá hljóðupptökum.
Tækni-og vísindagreinar |277