Árbók VFÍ/TFÍ - 01.06.2009, Page 286
í júní 2009 gaf tækninefndin CEN/TC 104, sem hefur veg og vanda að steypustaðlinum
EN206-1, út skýrslu um könnun á innleiðingu og notkun staðalsins í aðildarríkjum CEN
sem eru 28 að tölu. Tilgangur nefndarinnar var samkvæmt skýrslunni að:
a) Varpa ljósi á hvernig EN 206-1 er í raun notaður;
b) Afla vitneskju um hvort og þá hvernig EN 206-1 er túlkaður á mismunandi hátt;
c) Afla vitneskju um atriði þar sem CEN-aðildarríki hafa talið nauðsyn á einföldun;
d) Afla vitneskju um þjóðarákvæði;
e) Draga fram ákvæði í EN 206-1 sem CEN-ríki hafa séð ástæðu til að afnema.
I skýrslunni eru m.a. yfirlit um þjóðarskjöl sem aðildarríkin hafa sett í tengslum við
staðalinn og samantekt á svörum þeirra við spurningalista varðandi notkun á staðlinum,
en þau munu verða höfð til hliðsjónar við endurskoðun á staðlinum sem nú stendur yfir.
Könnunin var gerð 2005-2006 og svörin eru því ekki endilega lýsandi á ástandinu í dag-
Spánn var eina landið sem ekki hafði gert EN206-1 að landsstaðli. ísland er eitt fárra ríkja
sem svör bárust ekki frá.
EN206-1 steypustaðallinn, sem í íslensku útgáfunni heitir fullu nafni „ÍST EN
206-1:2000+Al:2004 + A2:2005 Steinsteypa-1. hluti: Tæknilýsing, eiginleikar, framleiðsla
og samræmi" (Enska: Concrete - Part 1: Specification, performance, production and con-
formity), fjallar m.a. um skilgreiningar og tæknilýsingar ásamt samræmis- og fram-
leiðslustýringu steypu. Um niðurlögn og eftirmeðhöndlun steinsteypu er ekkert að finna
í EN 206-1 heldur verður m.a. fjallað um það í framkvæmdastaðli fyrir steinsteypt virki
sem nú liggur fyrir í lokafrumvarpi (prEN 13670 Execution of concrete structures) og
mun vera væntanlegur sem staðallinn fyrir árslok 2009.
Hér á eftir verður stiklað á stóru í skýrslunni og um leið rýnt í hvernig til hefur tekist hér
á landi við að innleiða EN206-1.
Þjóðarákvæði
Þar sem EN206-1 staðlinum er beitt í allri Evrópu við
mismunandi veðurfarslegar og landfræðilegar aðstæður
og við mismunandi rótgrónar svæðisbundnar hefðir og
reynslu, ná almenn ákvæði EN206-1 ekki yfir öll atriði-
í þeim tilvikum er CEN-ríkjunum heimilt samkvæmt
EN206-1 að beita landsstöðlum og eða ákvæðum (pro-
visions) sem gilda á notkunarstað steypunnar.
Algengast er að ríkin hafi gefið út viðauka við EN206-1
eins og til dæmis Noregur" eða þá að lýsa þjóðar-
ákvæðunum í sérstökum staðli eins og t.d. Danmörk111-
Hér á landi hafa ekki verið sett nein þjóðarákvæði í
tengslum við EN206-1 steypustaðalinn, hvorki varð-
andi atriði er lúta að endingu steyptra mannvirkja né
að öðrum atriðum þar sem gert er ráð fyrir stað-
bundnum reglum. Við erum þó ekki alveg án sérreglna
varðandi atriði sem lúta að endingu steypu því j
Byggingarreglugerðiv eru ákvæði varðandi alkalívirkni
og saltinnihald í sandi, og varðandi sementsinnihald,
loftinnihald og v/s-tölu steypu sem verður fyrir
veðrunaráhrifum. Nefnd ákvæði eru að stofni til fra
níunda áratug síðustu aldar og eru því ekki sett i
tengslum við núgildandi steypustaðah'.
284|Árbók VFl/TFl 2009