Árbók VFÍ/TFÍ - 01.06.2009, Side 288
Tafla 1. Endingarflokkar og helstu markgildi fyrir steypusamsetningu skv. norska viðaukanum við EN206-1
Áreitisflokkur M90 Endingarflokkur („Bestandigheitsklasse") M60 M45 MF45 Al M40 MF40*I
XO X X X X X X
XCl, XC2, XC3, XC4, XF1 X X X X X
XD1,XS1,XA1,XA2, XA4 X X X X
XF2, XF3, XF4 X X
XD2, XD3, XS2, XS3, XA3 X X
XSA X X
Helstu markgildi: VatnssemenstalaB) <0,90 <0,60 <0,45 <0,45 <0,40 <0,40
Bindiefni (sement+íaukar) >225 >250 >300 >300 >330 >330
Loft, % >4 >4
Þrýstistyrksflokkur C20/25 C30/37 C45/55 C45/55 C55/67 C55/67
A) Nota á frostþolið fylliefni
B) vatn/(sement + virknisstuðull x íaukar (s.s.kísilryk, svifaska o.fl.))
Auk markagilda eru í norska viðaukanum m.a. ákvæði um hvaða sementstegundir og
íauka má nota í hverjum endingarflokki ásamt kröfum um prófanir á veðrunarþoli, kol-
sýringu, klóríðinnihaldi, klórleiðni o.fl. þar sem við á.
í EN206-1 eru engin ákvæði um prófanir á steypu sem skilgreind er sem vatnsþétt,
veðrunarþolin, súlfatþolin, klóríðþétt o.s.frv. í flestum CEN-aðildarríkjum hafa þess
vegna verið sett þjóðarákvæði um veðrunarþolsprófanir, mælingar á loftdreifingu,
vatnsþéttleika o.fl. Engin opinber ákvæði eru hér á landi um prófanir á veðrunarþoli
steypu, en algengt er að fyrirmæli séu um slíkar prófanir í verklýsingum.
Hlutefni
Almennt
Settir hafa verið samhæfðir Evrópustaðlar um flest hlutefni steypu (s.s. sement, íauka,
fylliefni, vatn, íblendi). Staðlarnir skilgreina m.a. efniseiginleika og í þeim eru ákvæði
um framleiðslu- og samræmisstýringu og (CE) merkingar á framleiðsluvörunum. Þessir
EN-staðlar eru:
EN 197-1 Sement-1. hluti: Samsetning, eiginleikar og samræmiskröfur fyrir venjulegt sement.
EN 450 Svifaska í steinsteypu-1. hluti: Skilgreining, eiginleikar og samræmisskilyrði.
EN 13263 Kísilryk í steinsteypu-Hluti 1: Skilgreiningar, kröfur og samræmisskilyrði.
EN 12620 Fylliefni í steinsteypu.
EN 932-2 íblendiefni í steinsteypu, múr og þunnfljótandi múr.
EN 1008 Blendivatn í steinsteypu
EN 206-1 kveður á um að einungis megi nota hlutefni sem staðfest er að séu hæf i
steypu í fyrirhugaða notkun og að velja beri tegundir og gæðaflokka hlutefna sem hæfa
steypu fyrir hverjar tilteknar umhverfisaðstæður. Jafnframt segir að hlutefni sem eru i
samræmi við samhæfða EN-staðla séu almennt hæf til steypugerðar og að reglur um það
megi setja í þjóðarákvæði.
Könnunin leiddi í ljós að mörg CEN-ríki eru með eigin landsstaðla um ýmis hlutefni sem
EN-staðlarnir taka ekki nægilega á eða ná alls ekki yfir. Má þar nefna sementstegundir
eins og súlfatþolið sement, lágalkalísement og hvítt sement. Staðbundnar eða landfræði-
legar aðstæður valda því að sum ríki hafa sett eigin landsstaðla um hlutefni, eins og t.d.
um íauka og fylliefni. Þannig eru mörg ríki með eigin staðla um íauka, s.s. um mismun-
2 8 61 Árbók VFl/TFl 2009