Árbók VFÍ/TFÍ - 01.06.2009, Page 349
Starfsleyfi fyrir rekstur á fráveitukerfi, þar með talið rekstur á hreinsistöð og losun á
hreinsuðu fráveituvatni, er veitt á grundvelli gildandi reglugerðar. Rekstraraðila sem
hefur fengið starfsleyfi til þess að reka fráveitu er skylt að afhenda niðurstöður mælinga
á því sem hann á að vakta til þess að sanna það að hreinsun og losun fráveituvatns í við-
taka sé í samræmi við ákvæði í starfsleyfinu. í nýju starfsleyfi til Fráveitu Hafnarfjarðar
kemur fram að vöktun á virkni Hraunavíkur hreinsistöðvar eigi að vera með óbeinum
mælingum á magni úrgangs með vigtun á móttökustað og með beinum mælingum á
rennsli fráveituvatns í gegnum hreinsistöðina. Það felur í sér að í staðinn fyrir nákvæmar
mælingar á hreinsun lífrænna efna (BOD) og fastra efna (SS) verði fullnægjandi að fylgj-
ast með síun og skiljun á föstu efni.
Safnræsi, hreinsistöðvar og útræsi við Faxaflóa
„Ég fékk þá köllun frá góðum guði að gera þessa stofnun þarna niðrivið sjó að sínu leyti
eins þrifalega hreina og ilmandi eins og apótekið hjá þeim danska manni Mikael Lúnd."
Þannig var starfslýsing eftirlitsmannsins, einnar af sögupersónum Halldórs Kiljans
Laxness, sem átti dvalarstað á miðloftinu hjá Birni bónda í Brekkukoti.
Það má segja að sambærilegt leiðarljós hafi verið viðhaft við hönnun og byggingu
hreinsistöðva, dælustöðva og annarra mannvirkja í fráveitum sem hafa verið byggðar,
eða eru í byggingu á Faxaflóasvæðinu. Lögð er áhersla á að sýnileg mannvirki falli vel að
umhverfinu og í sátt við nágrannana. Reynt er að gera húsnæði þannig úr garði að
búnaður verði aðgengilegur og auðveldur til eftirlits og viðhalds. Reynsla af rekstri
fráveitumannvirkja í Reykjavík hefur skilað sér í endurbættri hönnun á nýjum mann-
virkjum. Sem dæmi um það er að flestar dælustöðvar í Reykjavík eru með kafdælum, þ.e.
dælum sem eru á kafi í fráveitu-
vatninu. Nýjar dælustöðvar eru allar
með dælum í sérstöku þjónusturými
með sogröri inn í dæluþró. Dælur í
nýjum dælustöðvum eru með stig-
lausri stýringu á snúningshraða og
afköstum í staðinn fyrir dælur með
föstum snúningshraða, sem þarf
stöðugt að ræsa og stöðva í samræmi
við hæð í dæluþró.
Til glöggvunar á því hvaða þýðingu
góð aðstaða hefur fyrir þá sem
annast rekstur og viðhald í fráveitum
verða fjörutíu stakar dælustöðvar á
rekstrarsvæði Orkuveitu Reykja-
víkur þegar fráveitukerfi á Akranesi,
Borgarnesi og Kjalarnesi verður full-
byggt, en þar verða samtals tuttugu
dælustöðvar.
Nú þegar hafa eftirfarandi fráveitur verið teknar í notkun:
Skerjafjarðarveita í Reykjavík, sem endar í hreinsistöð við Ananaust. Veitunni tengjast
allur suðurhluti og vestasti hluti Reykjavíkur, Kópavogur, mestur hluti Garðabæjar
og Seltjarnarnes. Núna er auk þess fyrirhugað að bæta Alftanesi við með aðveitu um
sjólögn að Skeljanesi. Afkastageta hreinsistöðvarinnar er 2300 1/s, en útræsi er 4 km
langt. Hreinsistöðin var tekin í notkun árið 1998. Eigandi er Orkuveita Reykjavíkur.
Tækni-og vísindagreinar
3 4 7