Þjóðhagsreikningar 1901-1945 - 01.08.1992, Blaðsíða 21
Árlegur
1901 1914 meðalvöxtur
1. Verg þjóðarframleiðsla 1.1 Verðlag hvers árs, m.kr. 22,9 51,1
1.2 Verðlag ársins 1945, m.kr. 248,6 409,8 3,9%
2. Meðalmannfjöldi ársins, þús. manns 78,4 87,6 0,9%
3. Verg þjóðarframleiðsla á mann, verðlag 1945, kr. 3.170 4.680 3,1%
Samkvæmt þessu óx þjóðarframleiðslan um 3,9% að meðaltali á þessu tímabili.
Mest varð aukningin 1905 eða tæp 11% og árið 1913 tæp 10%. Samdráttur í fram-
leiðslu mælist aðeins eitt ár, 1909, og er þá óverulegur eða innan við 1%.
1.4.3 Árin 1914-1920
Árin 1919 og 1920 eru hér talin með heimsstyrjaldarárunum, m.a. vegna þess að
verðhækkanir vegna styrjaldarinnar náðu þá hámarki, þótt styrjöldinni hafi lokið fyrr.
Fyrstu ár tímabilsins voru hagstæð að því leyti að verð útflutnings hækkaði meira
en innflutningsverð fram til 1916, en árið 1917 snerist þetta við, og að auki voru 10
af þeim 20 togurum sem íslendingar áttu seldir til Frakklands. Endumýjun hófst þó
fljótt og árið 1920 voru togarar orðnir 28. Eimskipafélag íslands var stofnað árið 1914
með víðtækri almennri hlutafjársöfnun, og hafði félagið tvö skip í siglingum allt
tímabilið, en fyrir þann tíma var þjóðin að mestu háð siglingum erlendra skipa.
Alþýðusamband Islands var stofnað árið 1916 og knúði fram launahækkanir seinni
hluta tímabilsins, sem ásamt ytri áhrifum olli nokkurri verðbólgu. Heildarmannfjöldi
jókst um 7%, og þar sem nokkur fækkun varð í landbúnaði, og sjávarútvegur og
vinnslugreinar hans juku aðeins við sig um 5%, varð um 20% fjölgun í öðrum
atvinnugeirum.
Samkvæmt þeim aðferðum sem hér er beitt fást eftirfarandi niðurstöður um þróun
þjóðarframleiðslu á árunum 1914-1920:
Árlegur
1914 1920 meðalvöxtur
1. Verg þjóðarframleiðsla
1.1 Verðlag hvers árs, m.kr. 51,1 219,7
1.2 Verðlag ársins 1945, m.kr. 409,8 410,4 0,0%
2. Meðalmannfjöldi ársins,
þús. manns 87,6 93,6 1,1%
3. Verg þjóðarframleiðsla
á mann, verðlag 1945, kr. 4.680 4.382 -1,1%
í þessu felst að þjóðarframleiðslan í lok tímabilsins hafi nánast verið sú sama og í
upphafi þess. Á sama tíma fjölgaði þjóðinni um rúmt 1 % á ári að jafnaði þannig að
19