Þjóðhagsreikningar 1901-1945 - 01.08.1992, Blaðsíða 177
Eining 1935 1936 1937
Framleiðsla 1. Dilka- og geldfjárkjöt þús. kg. 5.313 5.606 6.283
2. Annað kjöt þús. kg. 1.424 1.505 1.640
3. Alls þús. kg. 6.737 7.111 7.923
Verð til bónda 4. Dilka- og geldfjárkjöt aurar á kg. 88 90 92
5. Annað kjöt aurar á kg. 55 55 57
6. Magnhlutfall (1) / (2) % 27 27 26
7. Verðhlutfall (5) / (4) % 63 61 62
8. Jafngildi dilkakjöts þús. kg. 6.202 6.526 7.299
9. Margfaldari (3) / (7) 1,086 1,090 1,085
Fyrir þessi þrjú ár var þannig áætlað að um 27 kg. annars kjöts hafi verið framleidd
fyrir hver 100 kg. dilka- (og geldfjár-) kjöts. Sennilega hefur annað kjöt vegið þyngra
í byrjun aldar þegar ærstofn var aðeins 50% framtalins fjár en árið 1945 er ærstofninn
var 78%. Hér mun þó hlutfallið 1935-1937 notað.
Verðhlutfallið (61-63%) var áætlað mjög líkt öll árin fram til 1945. Niðurstaðan er
því sú að 1901-1930 er notaður margfaldarinn 1,09 til þess að áætla „heildarkjötmagn"
á grunni „jafngildis dilkakjöts“. Niðurstaðan verður þessi:
Eining 1935 1940 1945
1. Dilkakjöt þús. kg. 6.187 6.457 5.743
2. Annað kjöt þús. kg. 1.644 1.173 1.364
3. Alls þús. kg. 7.831 7.630 7.107
4. Jafngildi dilkakjöts þús. kg. 7.184 7.196 6.602
5. Gæruþyngd 20% af (3) þús. kg. 1.566 1.526 1.421
6. Gærur, stykkjatala (5):2,94 þús. stk. 533 519 483
7. Dilkakjöt, heildsöluverð kr. á kg. 1,28 2,33 11,06
8. Kindakjöt, verð alls þús. kr. 9.196 16.767 73.018
Kjöt og gærur, magn og verð 1935-1945
1 töflu 4 er gerður samanburður á áætlunaraðferð Skipulagsnefndar og Búnaðars-
kýrslna 1951 fyrir öll árin 1935-1945, þó þannig að reiknað er með 15% vantöldum
stofni í fyrra tilvikinu. Að frátöldum árunum 1935 og 1936 er þokkalegt samræmi á
milli áætlana, þannig að litlu munar hvor aðferðin er nýtt markárin 1940 og 1945.
Varðandi 1935 skal á það bent að í Búnaðarskýrslum er áætlað að aðeins 40.000
dilkum hafi verið slátrað utan sláturhúsa það ár, en hinsvegar yfir 89.000 árið 1940
er betri upplýsingar voru tiltækar. Hér munar yfir 600.000 kg. kjöts og 120.000 kg.
gæra, jafnvel þótt heimaslátrun 1935 hafi ekki verið meiri en 1940. Fyrir 1935 verða
því aðferðimar lagðar að jöfnu, en 1940 og 1945 er nýtt áætlun Búnaðarskýrslna
1951.
175