Þjóðhagsreikningar 1901-1945 - 01.08.1992, Blaðsíða 223
þ.e. meðaltekjur skattleysingja voru áætlaðar 80% af persónufrádrætti. Hins vegar
gerði nefndin ekki áætlun um stærð ýmissa frádráttarliða, sem leyfðir voru, áður en
hreinar tekjur (án persónufrádráttar) voru ákveðnar, á sama hátt og Hagstofan gerði
síðar.
Hér er um að ræða greidda skatta og útsvör; stéttarfélagsgjöld; tryggingariðgjöld
o.fl. Mjög takmarkaðar upplýsingar eru til um vægi þessara frádráttarliða. Það er ljóst
(sbr. Tölfrœðihandbók 1967, bls. 268), að leyfður frádráttur einstaklinga frá tekjum,
annar en venjulegur rekstrarkostnaður, hefir vafalaust verið of lágt áætlaður allar götur
fram að árinu 1962, en frá því ári voru bæði nettótekjur og brúttótekjur teknar á
gataspjöld, og frádráttur (brúttó - nettó) kom beint fram og var hærri en áætlaður með
fyrri aðferðum.
Ekki verður hér tekið tillit til þessa, sem myndi þýða endurskoðun upp á við á
öllum birtum tölum um heildartekjur einstaklinga og félaga, heldur haldið fast við þau
vinnubrögð, sem notuð voru frá 1935 og fram á við.
Liður 3 í töflu 3 hér að framan var af Hagstofu áætlaður 11,1 m.kr. fyrir 1936 eða
11,7% af liðum 1 og 2.
Enginn vafi leikur á því, að þýðing hinna leyfðu frádráttarliða fer minnkandi, eftir
því sem aftar dregur, þótt mælikvarði hafi ekki fundist. Aðeins einn fjölmargra
undirliða er tiltækur þessi ár, þ.e. tekju- og eignarskattur, sem árið 1936 var 24%
frádráttar eða 2,7 m.kr., en var 1,5 m.kr. árið 1922; þ.e. 25% frádráttar eins og hér er
áætlað.
Hér hefir verið farin sú leið að áætla alls 3,0% lækkun liðarins, þ.e. frá 11,7% árið
1936 niður í 8,7% árið 1921, þó þannig, að þau ár (1921-1928), þar sem ekki liggur
fyrir bein úrvinnsla skattaframtala, er prósentan nýtt á allar áætlaðar tekjur. Tekið skal
fram, að ákvæði skattalaga varðandi þennan frádrátt voru óbreytt allt tímabilið
1922-1934 (tekjuár) og að tekið verður tillit til breytinga á skattári 1922 við áætlun
fyrir tekjuárið 1921.
Tafla 4
Áœtlun um heildartekjur einstaklinga og félaga árin 1929-1934,
í milljónum króna
1929 1930 1931 1932 1933 1934
1. Alls einstaklingar 93,4 95,9 87,8 86,1 92,2 96,1
2. Tekjufrádráttur 0 9,6 10,1 9,4 9,4 10,2 10,9
3. Félög 3,3 2,4 1,1 1,3 1,7 1,6
Samtals 106,3 108,4 98,3 96,8 104,1 107,6
1J Tekjufrádráttur 10,3% 10,5% 10,7% 10,9% 11,1% 11,3%
Hér á eftir fer yfirlit yfir niðurstöður Skipulagsnefndar atvinnumála (tafla 5) með
athugasemdum. Tekið skal fram, að í töflu 4 er leiðrétt fyrir áætlaðri skekkju árið
1930 í töflu 5.
221