Þjóðhagsreikningar 1901-1945 - 01.08.1992, Blaðsíða 229
Hin aðferðin var að nota heildartekjur einstaklinga og félaga sem grunntölu og bæta
við ýmsum tekjum, sem skattalöggjöf taldi ekki til tekna, þar með hluta eignar-
aukningar og neyslu (aðallega húsnæðis) og tekjum stofnana, sem skattfrjálsar voru.
Auk þessara viðbótarliða var einnig áætlaður frádráttarliður vegna tilfærslutekna: sem
stöfuðu ekki frá starfsemi, en töldust til skattskyldra tekna.
Þegar hreinar þjóðartekjur fyrir þessi ár (1957-1960), reiknaðar eftir ráðstöfunar-
leiðinni og eftir framtalsleiðinni, voru bomar saman, munaði rúmlega 10% fyrir þessi
ár að jafnaði, þ.e.a.s. ráðstöfunartalan var þessu hærri en tekjuframtalstalan að með-
töldum áðumefndum viðbótarliðum við þá tölu.
Við áætlun Framkvæmdabanka fyrir árin 1945-1956 var því hin leiðrétta tekju-
framtalstala hækkuð um sem næst 10% öll árin.
Efnahagsstofnun endurskoðaði síðan bæði tölur um ráðstöfun þjóðartekna 1957 til
1960 og í framhaldi af því áætlun Framkvæmdabanka um hreinar þjóðartekjur
1945-1956 með sömu aðferðum og Framkvæmdabankinn notaði og lýst er að framan.
Hér á eftir er gerður samanburður á tveimur talnaröðum árin 1945-1956. í fyrra
dálki eru tilfærðar tölur Hagstofu íslands um heildartekjur einstaklinga og fyrirtækja,
í öðmm dálki tölur Efnahagsstofnunar um hreinar þjóðartekjur sömu ár, og loks er í
þriðja dálki tilgreint hlutfall þessara talna.
Tafla 12
Heildartekjur einstaklinga og fyrirtækja
og hreinar þjóðartekjur 1945-1956, m.kr.
Ár Heildartekjur einstaklinga og fyrirtækja Hreinar þjóðar- tekjur Hlutfall
1945 862 1.109 1,29
1946 1.025 1.318 1,29
1947 1.216 1.545 1,27
1948 1.199 1.530 1,28
1949 1.184 1.523 1,29
1950 1.320 1.711 1,30
1951 1.578 2.072 1,31
1952 1.766 2.334 1,32
1953 2.152 2.806 1,30
1954 2.444 3.167 1,29
1955 2.795 3.646 1,30
1956 3.262 4.264 1,31
Hlutfallið er nokkuð stöðugt þessi tólf ár, sveiflast milli 1,27 (árið 1947) og 1,32
(árið 1952). Frávik frá meðaltölu, 1.296, er innan við 2%, en þetta hlutfall er nýtt til
þess að áætla hreinar þjóðartekjur 1921-1944 á þeim - frekar hæpnu - forsendum, að
framtöl hafi verið jafn-„áreiðanleg“ á því tímabili og 1945-1956.
227