Þjóðhagsreikningar 1901-1945 - 01.08.1992, Blaðsíða 147
6.6 Skipting mannfjölda ár hvert 1901-1950 á atvinnugeira
í köflum 6.1 til 6.5 var unnið úr manntölum 1901, 1910 o.s.frv. til þess að áætla
heildarmannfjölda eftirtalinna geira:
A. Framleiðsla landbúnaðarafurða að smásölu- eða útflutningsstigi.
B. Framleiðsla sjávarafurða að smásölu- eða útflutningsstigi.
C. Byggingarstarfsemi, húsa- vega- og hafnargerð o.þ.h.
D. Iðnaður og iðja, nema vinnsla landbúnaðar- og sjávarafurða.
E. Þjónustustarfsemi, nema F.
F. Félagsleg þjónusta.
G. Óflokkað (óstarfandi).
Um ástæður fyrir vali þessara geira, og þess að miðað var við heildarfjölda, frekar
en að áætla fjölda vinnandi, eða annan mælikvarða á vinnuframlag, er vísað til
áðumefndrar athugunar.
Áðumefnd manntöl voru tekin í nóvember eða desember manntalsárið. Þar sem
ætlunin er að leiða saman áætlanir um verðmætasköpun hvers árs 1901, 1902 o.s.frv.
til 1950 við þann mannfjölda er áætla má að hafi staðið að verðmætasköpuninni þ.e.
mannfjöldi á miðári, eru þær tölur sem fundnar voru samkvæmt manntölum færðar til
miðárs, sbr. töflu 6.6.1. Hér munar að vísu litlu, en þar sem mannfjöldatölur annarra
ára en manntalsára eru miðárstölur, þótti rétt að hafa fullt samræmi.
í köflum 6.1 til 6.5 hér að framan var flokkað á sjö geira, en hér aðeins á fjóra °,
þ.e. geiramir C,D,E og F eru teknir undir eitt, þar sem ekki hefir tekist að finna
mælikvarða á verðmætasköpun þeirra á tímabilinu 1901-1945, sem er til sérstakrar
athugunar hér.
Þessi áætlaða skipting á: A,B,(C,D,E,F) og G er sýnd í töflu 6.6.2.
Fyrir hvert ár eru eftirfarandi liðir sýndir:
(1) Mannfjöldi í árslok (Tölfrœðihandbók 1974, bls. 10 og 11).
(2) Miðárstölur (Skilgreindar sem meðaltal af árslokatölu, líðandi árs
og næstliðins árs)
(3) Áætluð skipting á atvinnugeira á miðári.
0 Sbr. þó töflu 6.6.4, þar sem áætlað er fyrir þá fjóra geira er sameinaðir voru í
töflu 6.6.2.
10
145