Þjóðhagsreikningar 1901-1945 - 01.08.1992, Blaðsíða 226
Ekki er til sundurliðun fyrir árið 1921 á skattskyldum tekjum einstaklinga annars
vegar og félaga hins vegar. Heildarupphæðinni, 38,1 m.kr., er skipt þannig, að 1,1
m.kr. er álitin skattskyldar tekjur félaga, en 37,0 m.kr. skattskyldar tekjur einstaklinga.
Arið 1921 var persónufrádráttur tvenns konar, 500 kr. fyrir 14 ára og eldri, en
300 kr. fyrir yngri. Um 32.000 voru ekki fullra 14 ára um áramót 1921-22. Reiknað
er með, að um 43% þeirra hafi verið á framfæri skattgreiðenda, en um 57% á framfæri
skattleysingja. Vægi þessara bama í persónufrádrætti skattgreiðenda er því 200 kr.
minna en reiknað er með í 6. lið töflunnar og vægi í persónufrádrætti skattleysingja
160 kr. minna en reiknað er með í lið 7. Leiðrétting fyrir þessu er gerð í lið 9.
Sérstaklega skal bent á, að við skattlagningu 1922 á tekjuárið 1921 var ekki leyfilegt
að draga frá aukaútsvar; tekjuskatt og eignarskatt. Þessu var fyrst breytt með lögum
nr. 2 frá 26. mars 1923. Sé áfram reiknað með 0,2% lækkun tekjufrádráttar, en að auki
tekið tillit til þess; að við skattlagningu 1922 vegna tekjuársins 1921 mátti ekki draga
frá greitt aukaútsvar né tekju- og eignarskatt, fæst eftirfarandi:
Tafla 10
1921 1922 1923
m.kr. m.kr. m.kr.
Áætlaðar heildartekjur 74,7 68,8 68,7
Viðbót vegna tekjufrádráttar
samkv. lögum nr. 2/1923. !) 6,5 6,1 6,3
Frá dregst vegna 1921 -2,2
Samtals 79,0 74,9 75,0
0 Tekjufrádráttur 8,7% 8,9% 9,1%
Innheimtur tekju- og eignarskattur 1921 var um 1,2 m.kr., og áætla má nokkuð
lægri upphæð vegna aukaútsvars. Frádráttur 1921 er því minnkaður um 2,2 m.kr.
224