Þjóðhagsreikningar 1901-1945 - 01.08.1992, Blaðsíða 102
4.3.4 Næringargildi landbúnaðarafurða til neyslu innanlands 1901-1920,
og heildarnœringargildi allra matvœla
í töflu 4.3.4.1 eru settar fram magntölur og hitaeiningatölur umrædd fimm ár fyrir
landbúnaðarafurðir. En fyrst koma nokkrar skýringar við þessa útreikninga.
1. Sauðfjárafurðir
Hér er tekið tillit til sláturafurða og mörs. Fyrir 14,0 kg dilk má áætla:
Hitaeiningar
Kg á kg alls
1. Snyrtur skrokkur 2. Hjarta, nýru, kjöt 14,0 2.600 36.400
af haus o.a. 0,9 2.600 2.340
3. Lifur 0,5 1.280 640
4. Blóð (hitaeiningar 20% af 1.) 1,0 520 520
5. Mör (hitaeiningar 80% af tólg) 1,7 7.000 11.900
6. Annað 5,7 0 0
Alls 23,8 51.800
Þyngdarskipting er eftir upplýsingum Andrésar Jóhannessonar, yfirkjötmatsmanns,
en hitaeiningagildi samkvæmt töflu er fylgir kafla um innflutt matvæli.
Magntölur töflunnar sýna áætlaða kjötþyngd, en næringargildi, sé allt nýtt er 1.100
hitaeiningum hærra en fyrir kjötið sjálft, 51.800 hitaeiningar fyrir „14 kg skrokk“ =
3.700 hitaeiningar á kg. í töflunni er því reiknað með 3.700 hitaeiningum fyrir alla
framleiðslu, en hins vegar með 2.600 hitaeiningum á kg. fyrir útflutt kjöt.
2. Nautgripaafurðir
Hér er reiknuð sem viðbót, 1.100 hitaeiningar vegna sláturafurða þannig:
Kýr- og geldneytakjöt, 2.020 + 1.100 = 3.120 he. á kg.
Kálfakjöt 1.140 + 1.100 = 2.240 he. á kg.
3. Hrossakjöt
Magn og verðmæti hrossakjöts var ekki áætlað sérstaklega í áætlun um verðmæti
landbúnaðarafurða, heldur talið með „aukabúgreinum“. Hrossakjöt var varla markaðs-
vara þessi ár, en nýtt heima. Skipulagsnefnd reiknaði 150 kg. kjöts á slátrað hross. Því
er fylgt hér, og hitaeiningagildi að sláturafurðum meðtöldum reiknað 3.120 á kg. eins
og fyrir nautgripi. Án efa hefir verið um vantal að ræða, eins og fyrir sauðfé. Á móti
vegur að hrossakjöt var í byrjun aldarinnar oft illa nýtt, aðeins húðin hirt. Þetta er látið
mætast og tölur Skipulagsnefndar notaðar án álags, þ.e. tölur um fjölda sláturhrossa
(tafla bls. 166 í áliti nefndarinnar) margfaldaðar með 150 til þess að fá þyngd
hrossakjöts.
100