Þjóðhagsreikningar 1901-1945 - 01.08.1992, Blaðsíða 26
29%. Þessar tölur eru í góðu samræmi við þá mynd er menn hafa haft af atvinnuþróun
stríðsáranna.
Á þessu tímabili gefa niðurstöður þjóðhagsreikninga, eins og þeir liggja fyrir í
þessari skýrslu, eftirfarandi mynd:
Árlegur
1939 1945 meðalvöxtur
1. Verg þjóðarframleiðsla 1.1 Verðlag hvers árs, m.kr. * 1.2. Verðlag ársins 1945, m.kr. 286,1 945,3 1.307,9 1.307,9 5,6%
2. Meðalmannfjöldi ársins, þús. manns 119,6 129,1 1,3%
3. Verg þjóðarframleiðsla á mann, verðlag 1945, kr. 7.905 10.134 4,2%
Samkvæmt þessu óx þjóðarframleiðslan þetta tímabil um 5,6% að meðaltali ár hvert.
Þetta er mikill vöxtur í samanburði við önnur tímabil sem hér eru til skoðunar en þó
síst meiri en vænta hefði mátt með hliðsjón af uppgangstímum þeim sem stríðinu
fylgdu.
Hinn mikil uppgangur sem fylgdi stríðinu leiddi til verulegra breytinga á eignastöðu
þjóðarinnar gagnvart útlöndum. í upphafi stríðsins er talið að skuldir þjóðarinnar við
útlönd hafi numið 113 m.kr. og er þá byggt á áætlunum Ólafs Björnssonar prófessors
í áðurnefndri grein hans í Andvara 1974. Torvelt er að gera hliðstæða heildaráætlun
um stöðuna útávið í lok stríðsins. Til þess að slíkt sé unnt þyrfti m.a. ítarlega athugun
á efnahagsreikningum allra fyrirtækja auk banka, ríkis og sveitarfélaga fyrir árið 1944
og/eða 1945.
Eftirfarandi tölur gefa þó sæmilega vísbendingu um breytingar á tímabilinu og
einnig að nokkru um stöðuna í lok tímabilsins. Miðað er við árslok 1945 m.a. vegna
þess að greiðslur erlendra lána ríkis og Reykjavíkurborgar á tímbilinu koma ekki fram
á efnahagsreikningi fyrr en 31. desember 1945.
Árslok Árslok
1939 1945 Breyting
m.kr. m.kr. m.kr.
Nettó inneign banka, erlendis -12,1 567,3 579,4
Erlendar skuldir ríkissjóðs -49,2 -10,5 38,7
Erlendar skuldir Reykjavíkur -10,9 -0,4 10,6
Alls -72,2 556,4 628,6
í áðurnefndri grein Ólafs Bjömssonar eru heildarskuldir áætlaðar 113 m.kr. á árinu
1939 og samkvæmt því hafa erlendar skuldir annarra aðila og þá sennilega að
meðtöldum bankaábyrgðum verið um 41 m.kr. í árslok 1939. Um slíkar skuldir og
skuldbindingar í árslok 1945 er lítið vitað, en nefna má að samkvæmt ársskýrslu
J
24