Þjóðhagsreikningar 1901-1945 - 01.08.1992, Blaðsíða 154
Á verðlagi hvers árs hefur hugtakið „hreinar þjóðartekjur“ sömu merkingu og „hrein
þjóðarframleiðsla á tekjuvirði“ en á föstu verði er sá greinarmunur gerður að
þjóðartekjur fela í sér breytingu viðskiptakjara í utanríkisverslun. Hækki út-
flutningsverð umfram innflutningsverð frá grunnári vex kaupmáttur útflutningstekna.
Sá kaupmáttarauki hækkar þjóðartekjur á föstu verði.
I töflu 7.2 eru birtar tölur um verga þjóðarframleiðslu og hreinar þjóðartekjur fyrir
tímabilið 1945-1976 og er reiknað hlutfallið milli þessara stærða. Hér er um ræða
birtar þjóðhagsreikningatölur. Þetta hlutfall í töflu 7.2 má bera saman við það hlutfall
sem reiknað er út í töflu 7.1 en þar er annars vegar sýnd verg þjóðarframleiðsla
samkvæmt framleiðsluuppgjörinu og þeim aðferðum sem lýst er í köflunum hér að
framan og hins vegar hreinar þjóðartekjur samkvæmt tekjuskiptingaraðferðinni.
Niðurstöður sýna æði mikið frávik einkum á fyrstu árunum þ.e. 1921-1925 en þá
virðast þjóðartekjutölumar ósennilega lágar eða 50-60% af þjóðarframleiðslu.
Vissulega er ástæða til þess að hafa nokkum fyrirvara á við túlkun þessara talna þar
eð breytingar kunna að hafa orðið á umfangi óbeinna skatta, styrkja og afskrifta á
tímabilinu. Breytingar á þessum liðum eru þó ekki taldar geta skýrt lágt hlutfall
þjóðartekna af þjóðarframleiðslu í byrjun tímabilsins. Sennilegri skýring er vanmat á
tekjutölum einkum á fyrstu árunum.
Tafla 7.1
Hreinar þjóðartekjur og verg þjóðarframleiðsla 1921-1945
Ár 0) Hreinar þjóðar- tekjur m.kr. (2) Verg- þjóðar- framleiðsla m.kr. (3) (1) sem % af (2) Ár (1) Hreinar þjóðar- tekjur m.kr. (2) Verg- þjóöar- framleiðsla m.kr. (3) (1) sem % af (2)
1921 102,4 197,4 51,9 1936 140,1 219,8 63,7
1922 97,1 178,2 54,5 1937 152,5 240,9 63,3
1923 97,2 170,5 57,0 1938 155,0 249,4 62,1
1924 122,4 224,3 54,6 1939 167,3 286,4 58,4
1925 122,0 213,2 57,2 1940 276,4 430,3 64,2
1926 106,8 175,9 60,7 1941 452,3 633,5 71,4
1927 112,5 184,4 61,0 1942 705,0 867,0 81,3
1928 130,2 201,8 64,5 1943 920,2 1.079,2 85,3
1929 137,8 206,0 66,9 1944 1.029,4 1.193,2 86,3
1930 140,5 204,9 68,6 1945 1.109,0 1.308,0 84,8
1931 127,4 180,8 70,5
1932 125,4 177,7 70,6
1933 134,9 190,2 70,9
1934 139,4 200,3 69,6
1935 137,4 208,6 65,9
Skýringar við einstaka dálka:
(1) Samkvæmt tekjuskiptingaraðferðinni sjá viðauka 3.
(2) Samkvæmt framleiðsluuppgjöri sjá kafla 1 og 2.
152