Þjóðhagsreikningar 1901-1945 - 01.08.1992, Blaðsíða 40
2.4 Framleiðsluaukning á mann á íslandi og í Noregi 1901-1939
í ritinu Langtidslinjer i norsk ökonomi 1865-1960, Oslo 1966, er í töflu XIV
bls. 133 birtar tölur um „Bruttonationalprodukt pr. innbygger i arbejdsdyktig alder
(15-65 ár)“. Birtar eru vísitölur með árið 1900 sem grunnár sýndar tölur fyrir 1900,
1910, 1920, 1930 og 1939, en tölur fyrir 1940-1945 voru ekki reiknaðar, vegna
hemáms Noregs þau ár.
Þessar tölur er hægt að bera saman við hinar áætluðu íslensku tölur um framleiðslu
á mann á verðlagi 1945. Til þess að fá réttan samanburð við liina norsku magnvísitölu
þarf að miða við sömu deilitölu, þ.e. fjölda á aldrinum 15-64 ára.
í eftirfarandi töflu er í 4. dálki tilfærður sá deilir sem þarf að nota á reiknaðar
framleiðslutölur „á mann“ til þess að fá fullt samræmi.
Tafla 2.4.1
Aldursskipting Islendinga samkvæmt manntölum 1901-1940
Ár (1) 15-64 ára (2) Aðrir (3) Alls (4) (1) sem % af (3)
1901 45.653 32.817 78.470 58,18
1910 50.619 34.564 85.183 59,42
1920 56.559 38.131 94.690 59,73
1930 65.032 43.829 108.861 59,74
1940 75.717 45.757 121.474 62,33
Samanburður á íslensku og norsku tölunum er gerður í töflu 2.4.2. íslenskar tölur
árið 1901 eru látnar samsvara norskum tölum árið 1900. Heildarmyndin er sú að
afkastaaukning á ári á mann 15-64 ára hafi verið tæplega 0,5% (1.004818 = 1,2) hærri
að meðaltali á íslandi en í Noregi frá aldamótum til byrjunar seinni heimsstyrjaldar.
Þetta má þykja sennileg niðurstaða þegar tekið er tillit lil efnahagsástands hér og í
Noregi um aldamótin, og hinnar öru þróunar hér frá bændaþjóðfélagi að nútímalegu
verkaskiptu efnahagskerfi.
Tajla 2.4.2
Framleiðsluaukning á mann á íslandi og í Noregi 1901-1939
Noregur
Vísitala
Ár VÞF á mann 1945 verðlag kr. Aldursfl. 15-64 ára % VÞF á mann, 15-64 ára kr. Vísitala Skv. (3) 1901 = 100.0 VÞF á mann 15-64 ára 1900=100.0 Vísitala (4)/(5) 1900=100.0
1901 3.170 58,18 5.449 100.0 100.0 100,0
1910 3.991 59,42 6.717 123,3 115.6 106.7
1920 4.382 59.73 7.336 134,6 138.0 97.5
1930 6.806 59,74 11.393 209.1 174.5 119.8
1939 7.905 62,33 12.682 232.7 195.4 119.1
38