Þjóðhagsreikningar 1901-1945 - 01.08.1992, Blaðsíða 203
Eins og áður er nefnt, þótti ekki rétt að gefa „Eldsneyti og ljósmeti“ sérstaka
grunntölu og eins var ekki reiknað með þvotti og þvottaefni í 4. lið „Fatnaður'*.
Mælikvarði á þessar vörur kemur hér. Þar sem alls konar aðkeypt þjónusta flokkast
undir „Annað“ þótti rétt að skipta grunnupphæðinni 250 kr. til helminga og láta
125 kr. 1. júlí fylgja verðþróun á áðumefndum vörum samkvæmt reikningum Laugar-
nesspítala en 125 kr. fylgja almennu verkamannakaupi (sjá fylgiskjal 3).
Um tengingu áranna 1912 og 1914. Til þess að geta nýtt verðupplýsingar 1900-1912
úr reikningum Laugamesspítala þarf að brúa bilið 1912-1914. Aðferðin er sýnd á
eftirfarandi töflu.
Vísitölur fyrir vöruflokka og húsnæði eru fengnar úr áðumefndri grein Knuds
Dalgaards. Vísitölur fyrir þjónustu fylgja Dagsbrúnarkaupi (sjá fylgiskjal 3).
Utgjaldaupphæðin 1.426,62 kr. er því sú tala sem tengir heildarvísitölu 1912 við
júlívísitölu 1914, og hið sama gildir um útgjaldaupphæðir í lið 1, 2, 3, 4a og 4b.
Tenging milli 1912, 1913 og júlí 1914
1912 1913 júlí 1914
Kr. Vísitala Kr. Vísitala Kr. Vísitala
1. Matvörur 824,50 97,0 841,50 99,0 850,00 100,0
2. Húsnæði 182,00 91,0 190,00 95,0 200,00 100,0
3. Fatnaður 188,00 94,0 190,00 95,0 200,00 100,0
4. Annað a) Vörur 125,00 100,0 125,00 100,0 125,00 100,0
b) Þjónusta 107,12 85,7 120,75 96,7 125,00 100,0
Alls 1.426,62 95,1 1.467,25 98,1 1.500,00 100,0
Niðurstöður fyrir tímabilið 1899-1913. Útreikningur á vísitölu fyrir umrædd ár er
sýndur í töflu 3.
201