Þjóðhagsreikningar 1901-1945 - 01.08.1992, Blaðsíða 120
3. Allur kostnaður
Hækkun 129.045 - 118.964 = 10.081 kr.
Hækkunin skiptist þannig:
a) Vegna skekkju 5.723 kr.
b) Aðrar ástæður 4.358 kr.
Nokkuð ljóst er að rétt tala fyrir 1945 hefði átt að vera 124.687 kr. (118.964 +
5.723) og vísitala 1945 því 374,6 í stað 357,4 eða um 4,8% hærri. Sé reiknað með því
að skekkjan hafi myndast árin 1942-1945 mætti áætla vísitölur þannig:
(1) (2) (3) (4)
Áætlaðar Áætlaðar
Marg- vísi- vísi-
Skráðar faldari tölur tölur
vísi- v/skekkju 1.10 til 1.1 til
tölur o.a. 30.09 31.12
1. okt. 1938 - 30. sept. 1939 100,0 100,0 102,0
1. okt. 1939 - 30. sept. 1940 132,7 132,7 148,7
1. okt. 1940 - 30. sept. 1941 196,7 196,7 219,8
1. okt. 1941 - 30. sept. 1942 285,6 1,012 289,0 303,8
1. okt. 1942 - 30. sept. 1943 340,0 1,024 348,2 353,4
1. okt. 1943 - 30. sept. 1944 356,3 1,036 369,1 370,5
1. okt. 1944 - 30. sept. 1945 357,4 1,048 374,6 377,9
1. okt. 1945 - 30. sept. 1946 387,7 387,7
Tölur 3. dálks í töflu hér á undan eru enn á grunni tímabilsins 1. október til
30. september Allt tímabilið frá stríðsbyrjun 1939 fór verðlag mjög hækkandi, eftir að
hafa verið nokkuð stöðugt árið 1938 og fram til þess tíma. Til þess að fá sennilegri
mælikvarða á meðalverðlag hvers árs en hinar skráðu vísitölur, verður á einhvem hátt
að taka tillit til þess að síðasti ársfjórðungur hvers almanaksárs er ekki inni, en í stað
hans síðasti ársfjórðungur fyrra árs með mun lægra verðlagi.
Fyrir árin 1940-1945 er reiknað með því að verðlag hafi farið sem næst jafnt
hækkandi frá 1. október til jafnlengdar næsta árs.
Samkvæmt því samsvaraði verðlag 1. apríl þá meðalverðlagi vísitölutímabilsins og
verðlag 1. júlí meðalverðlagi almanaksársins. Sem mælikvarði á hækkun frá 1. apríl
til 1. júlí er tekin fjórðungur hækkunar milli skráðra vísitalna, eða sem nemur þrem
af tólf mánuðum. Þessar tölur eru færðar í 4. dálk.
Ekki er hægt að nota þessa aðferð árið 1939 vegna þess að hækkanimar koma seint
á árinu. Það ár er því reiknað með að vísitala í árslok hafi verið 116,3, og er það í
samræmi við vísitölu með grunn 1. október 1939 og 132,7 1. apríl 1940 eins og
118