Þjóðhagsreikningar 1901-1945 - 01.08.1992, Blaðsíða 140
(171) Fólk sem ekki hefur framfæri af neinni atvinnugrein, alls
10.100 að meðtöldum framfærðum. Á bls. 57 í manntalinu er
þessu gerð nokkur skil, flokkun er þó það frábrugðin eldri
flokkun, og nær aðeins til framfærenda, að 8.726 verða að
flokkast í G, en 1.374 skipt er á atvinnugeira.
6.5 Mannfjölda skv. manntölum skipt á atvinnugeira A til G,
tölulegar niðurstöður
í töflum 6.5.1 til 6.5.6 er heildarmannfjölda samkvæmt manntölum skipt á atvinnu-
geira í samræmi við það sem á undan er sagt. Auk þess er í töflu 6.5.7 sýnd gróf
áætlun (tölur í þús. manns) fyrir manntalsár og milliliggjandi ár er enda á 5, en tölur
þeirrar töflu voru notaðar við frumáætlun um verga þjóðarframleiðslu á fimm ára fresti
1901-1945. Við endanlega áætlun urn verga þjóðarframleiðslu ár hvert var hins vegar
byggt á hinum nákvæmari tölum í töflum 6.5.1 til 6.5.6, samanber kafla 6.6.
Töflur 6.5.1 til 6.5.6 eru ekki fyllilega sambærilegar eftir undirflokkum. Hins vegar
eiga niðurstöðutölur eftir atvinnugeirum að vera það.
Ætlunin er að nýta þessar mannfjöldatölur, bæði til þess að áætla „framleiðslu á
mann“ fyrir landbúnaðargeira og sjávarútvegsgeira og einnig að áætla heildar-
framleiðslu allrar atvinnustarfsemi á grunni þeirrar „framleiðslu á mann“. En fyrst er
rétt að gera grein fyrir því hversvegna heildarmannfjöldatölur urðu fyrir valinu en ekki
einhver annar mælikvarði um mannafla.
Til álita kom að skipta bæði heildartölum og eftir atvinnugeirum á aldursflokka og
eftir kyni, og áætla „fullgild karlmanns-vinnuár“ með því að gefa vægi eftir kyni og
aldri. Þetta var þó ekki gert. Ekkert er vitað um atvinnuþátttöku, nema hvað nokkuð
víst þykir að atvinnuþátttaka bama og unglinga hefur minnkað á tímabilinu, en á móti
kemur að sennilega yrði það vægi er áætla yrði fyrir slíka vinnu, lægra í byrjun
aldarinnar. Vinnuframlagið var bundið „framleiðslueiningu“ heimilisbamsins eða
unglingsins.
í riti áætlunardeildar Framkvæmdastofnunar ríkisins Mannfjöldi, mannafli og tekjur,
júlí 1981, bls. 92 er tafla um áætlaðan mannafla samkvæmt manntölum, sem unnin er
eftir líkum sjónarmiðum og lýst er að ofan. Flokkun á atvinnuvegi er önnur en sú er
hér er notuð, en heildartölur 1910-1950 sambærilegar.
138