Þjóðhagsreikningar 1901-1945 - 01.08.1992, Blaðsíða 45
3. Sjávarafurðaframleiðslan 1901-1950
3.1 Inngangur
I þessum kafla verður lýst þeim aðferðum sem notaðar voru til þess að áætla
sjávarafurðaframleiðsluna 1901-1945. Aætlanimar ná raunar einnig til áranna
1946-1950 eins og fyrir aðra atvinnugeira. Þetta er gert til þess að unnt sé að bera
saman þá áætlun um verga þjóðarframleiðslu sem gerð er í þessari skýrslu við áætlun
Þjóðhagsstofnunar 1946-1950, sbr. kafla 2.5.
Efnisskipan þessa kafla er í stórum dráttum þannig, að fyrst verður lýst niðurstöðum
í kafla 3.2 og er sjávarafurðaframleiðslan ár hvert þá flokkuð eftir verkunaraðferðum
að því marki, sem heimildir leyfa. Jafnframt fylgja stuttar skýringar með hverri töflu.
Birgðabreytingar koma ekki fram þar, en þær eru áætlaðar sérstaklega í kafla 3.3 og
er sú áætlun tekin inn í aðaláætlunina um sjávarafurðaframleiðsluna eins og hún er
notuð í niðurstöðum í kafla 2.
I fyrstu vinnuáætlun var stikað á árunum 1901, 1905, 1910 o.s.frv. Seinna var
ákveðið að áætla fyrir hvert ár 1901-1945. Kaflar frá 3.4 til 3.11 eru úr þeirri
frumáætlun, en eru teknir með hér, því þar er ítarlegast tekið á þeim fjölmörgu
vandamálum, sem taka þurfti aðstöðu til.
3.2 Framleiðslan 1901-1950
Árin 1901-1920 eru athuguð sér, því upplýsingar um þau ár eru óvissari og flóknari
en fyrir síðari ár. Fyrir árin 1901-1916 eru aðallega notuð þrjú endurskoðuð yfirlit um
verðmæti árlegs útflutnings er birt voru í formála Verslunarskýrslna 1914-1916. Þessi
yfirlit eru:
1. Fiskútflutningur (að undanskilinni sfld).
2. Sfldarútflutningur, sem útflutningsgjald hefur verið greitt af.
3. Verð útfluttrar vöru eftir vöruflokkum.
Eftir 1916 eru notaðar verslunarskýrslur hvers árs.
Árin 1901-1915 var verulegur hluti skráðs og tollaðs útflutnings í eigu útlendinga,
og er tekið tillit til þessa við áætlun um framlag til þjóðarframleiðslu, því við þá
stærð, árið 1945, er endanlega tengt, ekki landsframleiðslu ársins.
í töflu 3.2.1 eru sýndar niðurstöður fyrir 1901-1920 á grunni áðumefndra skýrslna
og séráætlana í töflum 3.2.2 og 3.2.3. Tafla 3.2.4 er tilfærð næst, til þess að sýna
hvers vegna varð að nota yfirlitsskýrslur í formála Verslunarskýrslna 1914-1916 en
ekki verslunarskýrslur hvers árs. 1 töflu 3.2.5 er tilfært útflutningsverð nokkurra
sjávarafurða 1901-1920.
43