Ný saga - 01.01.1996, Blaðsíða 43
Aðalgeir Kristjánsson
Absint nugæ, absit
scumlitas
AfÞorleifi Guðmundssyni Repp og doktorsvörn hans
inn 3. seiu ember 1814 tók Geir biskup
II ■ Vídalín sér penna í hönd og skrifaði
1 \S Bjarna borsteinssyni síðar amtmanni
til Kaupmannahafnar. í bréfinu sagði hann
deili á ungum stúdent sem var að halda þang-
að og fórust þá orð á þessa leið:
Meðal þeirra mörgu landa minna, sem ut-
anlands fara í ár, er Þorleifur, sonur Guð-
mundar prests Böðvarssonar, eins félaus
og guð hjá Seneka . . . , en að ætlun minni
einar með betri gáfum, þar hjá ungur, óráð-
inn og framgjarn. Gjörðu svo vel og ráð þú
honum heilt, og vertu honum í góðum hót-
um, því eg hygg, að hann sé mannsefni.1
í orðum biskups má greina hugboð um að
veröldin kunni að reynast hinum unga manni
viðsjál, fararefnin lítil auk þess sem hann sé
ungur og ótaminn. Hér á eftir verða sögð
frekari deili á ferli þessa unga manns frá því
hann lét í haf á haustdögum 1814 og fram til
þess að hann kom aftur í friðarhöfn í Reykja-
víkurkirkjugarði á vordögum 1858.
Þorleifur Guðmundsson Repp fæddist að
Reykjadal í Hrunamannahreppi 6. júlí 1794.
Foreldrar hans voru Rósa Egilsdóttir og séra
Guðmundur Böðvarsson, síðar prestur að
Kálfatjörn. Hann varð stúdent frá Bessa-
staðaskóla haustið 1813 og hlaut ágætisein-
kunn í öllum námsgreinum nema dönsku og
dönskum stíl þar sem hann hlaut fyrstu ein-
kunn. Tvítugur að aldri sigldi hann til Hafnar
til að hefja háskóianám haustið 1814. Þorleif-
ur innritaðist í Hafnarháskóla 22. október
1814 að loknu inntökuprófi þar sem hann
hlaut einkunnina Satisbonum.2
Að inntökuprófi loknu fengu íslenskir
stúdentar vist á Garði og garðstyrk sem nam
tveimur dölum á viku. Þorleifur Repp var
ekki fyrr orðinn háskólaborgari en nafn hans
komst í bréfabækur háskólastjórnarinnar
vegna umsóknar um „overordentlig Und-
erst0ttelse“. Háskólastjórnin samþykkti að
veita honum fullan garðstyrk, „dobbelt Klost-
erdaler".3
í handritadeild Landsbókasafns íslands er
að finna vitnisburð um námsferil Repps sam-
Absint nugæ,
absit scurrilitas.
Burt með
skrípalæti, burt
með fíflaskap
Mynd 1.
Þorleifur
Guðmundsson
Repp.
41