Vísir - 24.12.1942, Side 33
JÓLABLAÐ VlSIS
33
„Hornið“ í Ólafsfirði.
„Eg held hann sé alveg að
fara?“
„Og sei-sei nei! Við spraut-
um í hann einhverju stivelsi,
svo að hann hafi lyst á jóla-
matnum. — En eg þarf að
hlýja mér ofurlítið á höndun-
um, áður en eg fer inn til hans“.
Á meðan á þessu samtali
stóð, smeygði Bjarni sér úr úlp-
unni, sem hann var í og ýtti
húsfreyju á undan sér inn i
eldhúsið. Eg fór á eftir. Bjarni
fór strax að klappa heitum
katli, sem stóð á eldavélinni,
en bað húsfreyju að gefa sér
vatn í þvottaskál. Þvoði hann
sér svo um hendur og fór inn
til sjúklingsins.
Eg tvisté þarna á eldhúsgólf-
inu og vissi ekki hvað eg átti
af mér að gera. Eg var algjör-
lega aukapersóna í þessu sorg-
arhúsi — konan var að gráta,
vesalingurinn. Og þetta var að-
fangadagur jóla! Bágt eiga
sumir á jólunum! Þessi kona
hélt að faðir sinn væri í andar-
slitrunum
Eg þekkti ekkert fólkið á
þessum bæ, en vist hafði það
heyrt mín getið fyrir það, að
eg var að æra unga fólkið í
Horriinu með söng-hégóma.
„Viljið þér ekki heldur sitja
frammi í stofu?“ spurði konan
þegar hún tók eftir mér. Það
er hlýtt þar líka og eg skal
færa yður þangað heitt kaffi,
— yður hefir sjálfsagt orðið
kalt á leiðinni. Hann er svalur
í dag!“
„Nei, — má eg ekki vera
hérna hjá ykkur kvenfólkinu?
— mér þykir alltaf svo gaman
að vera hjá blessuðu kven-
fólkinu!“
„Það er svo sem velkomið,
En hér er hara svo óvistlegt,
því að við erum í matarstússi“.
„Allt í lagi, — bara að eg
megi vera hérna lijá ykkur“.
Eg þorði satt að segja ekki
að sitja einn frammi í stofu.
Það gat farið að rigna aftur!
Á liinn hóginn var mér um og
ó, að hafa mig mikið frammi,
við kvenfólkið sem þarna var,
— en það voru tvær föngulegar
blómarósir auk húsfreyjunnar.
Og eg var eiginlega ekki bein-
línis tilkippilegur i framan um
þessar mundir — og þótti það
miður einmitt nú. Eg hafði
nefnilega látið Bjarna draga úr
mér nokkrar framtennur ný-
lega, svo að eg var ekld aldeilis
fríður til munnsins. En lié-
gómlegur hefi eg alltaf verið.
Það er leiðinlegur kvilli.
Eg kom auga á stólklakk við
annan endann á eldhúsborðinu
úti í horni, þar sem skuggsýnt
var. Það var tilvalinn staður
handa mér og þar settist eg.
Og önnur blómarósin bar mér
þangað kaffi og heitar kleinur
von bráðar.
Bjarni kom fram í eldhúsið.
Hann var fölur, en rólegur að
vanda. En svo tók eg eftir því,
þegar hann kom nær mér, að
örlitlar svitaperlur voru að
myndast báðumegin við nefið
á honum. Eg liafði séð þetta
áður og vissi hverju það sætti.
H
\Á
H
S
H
\Á
H
ki
H
l
V
H
\Á%
H
B
H
1B[
Barnabæknr
H.f. Leiftnrs
Alfinnur álfakóngup.
Æfintýri með 120 myndum. Kr. 2.50 ib.
Blómálfabókin.
Falleg litmyndabók handa yngstu lesenduuum. Freysteinn
Gunnarsson íslenzkaði textann. Kr. 6.00.
Búri bragðarefur.
Með 32 myndum eftir Walt Disney. Kr. 2.00. *
Disin bjarta og blökkustúlkan.
Æfintýri með myndum. Kr. 2.00.
Dæmisögur Esóps.
I. hefti, þýðing Stgr. Thorsteinssonar. Með 25 myndum.
Kr. 8.00 ib.
II. hefti, þýðing Freysteins Gunnarssonar. Með 65 myndrnn.
Kr. 10.00 ib.
Ford,
drengurinn, sem varð bilakóngur. Freysteinn Gunnarsson
þýddi. Kr. 3.75.
Grimms æfintýri
í 5 heftum. Theódór Árnason þýddi. Með fjölda mynda.
Kr. 3.00 hvert hefti ib.
Hans og Gréta.
Æfintýri með litmyndum. Kr. 3.50 ib.
H
S
H
1
H
s
i
H
S
H
i
H
B
H
Hrói böttur.
_ Ný þýðing eftir Freystein Gunnars'son, Með myndum. Kr.
* [10.00 ib.
Kappflugid umhverfis jördina.
| fSpennandi drengjasaga með myndum. Ib. 6.00, ób. 4.60.
Kóngurinn 1 Gullá.
Æfintýri eftir John Ruskin. Þýðing Einars H. Kvarans.
Með myndum. Kr. 6,50 ib.
Kötturinn, sem fór sinna eigin ferda.
Æfintýri eftir Kipling. Með myndum. Kr. 2.50 ib.
Leggur og skel.
Æfintýri eftir Jónas Hallgrimsson. Með skreytingum eftir
frú Barböru W. Árnason. Kr. 2.50.
Litla drottningin.
Sænsk barnasaga með myndum. Kr. 2,50 ib.
Mjallhvít.
I Æfintýri með mörgum myndum. Kr. 2.50.
S Margt býr í sjónum.
Frásagnir um íbúa hafsins eftir Árna Friðriksson. Með
3 myndum. Kr. 3.50 ib.
v
^Mikki Mús og Mina lenda i æfintýrum
Með 150 myndum,
Nasreddin.
Tyrkneskar kímnisögur. Þorst. Gislason islenzkaði. Með
myndum. Kr. 6.50 ib.
Rauðhetta.
Æfintýri með mörgum myndum. Kr. 4.00.
Tarzan sterki,
eftir E. R. Burrough, með 384 myndum. Hersteinn Pálsson
íslenzkaði. Afar spennandi.
Tóta.
Saga um litla stúlku. Hersteinn Pálsson þýddi. Kr. 10.00 ib.
Trítill. Æfintýri með myndum. Kr. 2.00.
Um sumarkvöld.
Barnasögur eftir ólaf Jóh. Sigurðsson. Með myndum. Kr.
4.50 ib.
Þyrnirós. Æfintýri með myndmn. Kr. 3.00.
Öskubuska. Æfintýri með myndum. Kr. 3.00.
\á
H
S
H
A
H
y
H
\Á
H
y
H
l
H
H
H
\Á
y
B
H
Á
B
H
\Á
Af eldri bókunum er litið óselt. Notið tækifærið og kaup-
ið ódýru bækurnar meðan þær fásb
H.F. LEIFTUR.
Bátar að búast í róður úr „Horninu".
9