Morgunblaðið - 16.02.1975, Page 13
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 16. FEBRUAR 1975
13
Talið er, að samdráttur hafi orðið i iarpegailutningum Loftleiða á
flugleiðinni yfir N-Atlantshaf á sl. ári.
bættu við flota sinn nýjum flug-
vélum, juku ferðatíðni og tóku
upp nýjar flugleiðir án veru-
legs tillits til arósemi þessara
ráðstafana, enda gátu flest flug-
félaganna ótrauð gert slíkt i
skjóli ríkisstyrks sem þau nutu.
Við þetta bættist svo að ný flug-
félög spruttu upp eftir því sem
fleiri ríki öðluðust sjálfstæði og
þessi nýju ríki litu á það sem
þjóðernislegt metnaðarmál aó
eignast eigið flugfélag. Smám
saman hefur þróunin orðið sú,
að ýmsar helztu flugleiðir
veraldar hafa smám saman
fyllzt af flugvélum, og sérstak-
lega hefur þetta vandamál orð-
ið áberandi á flugleiðinni yfir
N-Atlantshaf. Þar var ástandið
orðið slíkt árið 1973, að flug-
félögin gátu aðeins nýtt um
57,1% þeirra 17 milljóna sæta
sem yfir var að ráða á þeirri
leið. Gripið var til þess að skera
áætlunarferðir á þessari leið
niður um 13% á sióasta ári en
engu að siður náðu flugfélögin
á N-Atlantshafsleiðinni þá ekki
nema58,l% sætanýtingu.
Að sögn Sveins Sæmundsson-
ar, blaðafulltrúa, liggja ekki
fyrir fullnaðartölur um far-
þegaflutninga Flugleiða á N-
Atlantshafsleiðinni á siðasta
ári. Hins vegar, taldi hánn ljóst
að samdráttur hefði orðið í far-
þegaflutningunum á þessari
leið og er það í fyrsta skipti frá
því að Loftleiðir hófu áætlunar-
ferðir til Bandaríkjanna. Sæta-
nýting Loftleiða á N-
Atlantshafsleiðinni hefur hins
vegar ætíð verið mjög góð og
mun hærri en meðaltalið hér að
ofan, en engu að siður kvað
Sveinn fyrirsjáanlegt, að hún
hefði ekki orðið eins góð sl.
sumar og verið hefur. 1 ljósi
þess að sýnt var að þetta ástand
myndi ekki breytast á næstunni
ákváðu forráðamenn Flugleiða
þess vegna að draga úr sæta-
framboði Loftleiða á N-
Atlantshafsleiðinni næsta sum-
ar, þannig að þá verða einungis
þrjár DC-8 þotur í ferðum á
þessari leið í stað fjögurra.
Þrátt fyrir að þetta þýði 25%
niðurskurð í flugvélakosti á
þessari flugleið, verður rýrnun-
in í sætaframboði ekki eins
mikil eða á bilinu 18.5—20%.
Þessi ráðstöfun hafði þó í för
með sér að segja varð upp 16
flugliðum og raunar hafa Flug-
leiðir smám saman verið að
draga úr mannafla til jafns vió
samdráttinn í rekstri félagsins.
Er þetta að öllu leyti hlið-
stætt þeim aðgerðum sem flug-
félög í Evrópu og Bandaríkjun-
um hafa gripið til, en ástandið í
farþegafluginu hefur neytt þau
til niðurskurðar í öllum kostn-
aði og dregið hefur verið úr
ferðafjölda og þjónustu um
borð í flugvélunum. Lufthansa
hefur dregið saman seglin hvaf
snertir áætlunarferðir utan hæ
annatímans og Air France hef-
ur sömuleiðis dregió úr ferða-
tíðninni á sumum alþjóðlegum
flugleiðum. Japan Air Lines
hefur hætt við fyrirætlanir sín-
ar um beint flug til Brasilíu og
Astralíu og hefur einnig hætt
við áform sín um að endurvekja
hina gömlu áætlunarleið sína
um New York-London, sem
felld var nióur á árinu 1972 og
var þá um tímabundna ráðstöf-
un aó ræða. Þá hefur British
Caledonian hætt öllum sínum
ferðum yfir N-Atlantshaf og
eins ferðum til Túnis, Gibraltar
og Malaga. Ekki nóg meó það
heldur hefur flugfélagið sagt
upp 827 starfsmönnum eða um
15% alls mannafla fyrirtækis-
ins. KLM setti einnig flug-
mönnum sínum harða kostí
ekki alls fyrir löngu: Annað-
hvort tækju þeir allir á sig 33%
launalækkun eða þeim yrði
fækkað úr 750 i 500.
1 von um að bæta stöðu sina
hafa þau 110 flugfélög, sem að
alþjóðasamtökum flugfélag-
anna — IATA — standa, hækk-
að flugfargjöldin um 27% á ár-
inu 1974 einu saman. Sveinn
Sæmundsson hjá Flugleiðum
taldi fargjaldahækkun íslenzku
flugfélaganna á síðasta ári vera
á svipuðu bili en hækkunin
væri nokkuð mismunandi eftir
því um hvaða fargjöld væri aó
ræða. Fargjaldahækkunin hér
væri að nokkru leyti til að
halda i við eldsneytishækkan-
irnar og hins vegar til að halda
i við hina almennu verðbólgu
innanlands og utan.
Svo sem áður er getið hafa
leiguflugfélögin höggvið veru-
lega inn i farþegaflutninga
áætlunarflugfélaganna á N-
Atlantshafsleiðinni sérstak-
lega. Undanfarið hefur einnig
mátt lesa auglýsingar i erlend-
um blöðum frá flugfélögum
eins og Laker og ferðaskrifstof-
um eins og AA-Travel, sem
bjóóa ferðir til Bandaríkjanna
og Kanada frá Bretlandi á
kostakjörum. Morgunblaðið
spurði Svein hvort slík undir-
boð hefðu ekki haft áhrif á flug
Loftleiða yfir N-Atlantshaf.
Kvað hann svo vera, áhrif
leiguflugsins væru veruleg, og
það skapaði samkeppni sem
þrýsti fargjöldunum verulega
niður auk þess sem það leiddi
til samdráttar í ferðatíðni og
sætanýtingu áætlunarflugfé-
laganna. Vegna þessarar sam-
keppni hafa áætlunarflugfélög-
in gripið til gagnráðstafana í
formi svokallaðra APEX-
fargjalda. Þau eru u.þ.b. helm-
ingi lægri en venjuleg fargjöld
en þá þarf að kaupa farseðlana
minnst 60 dögum fyrir brottför
og eru þessi fargjöld að veru-
legu leyti óafturkræf hætti
kaupandi þeirra við að fara á
síðustu stundu.
Samkvæmt fregnum erlendis
frá er ljóst að telja má þau
flugfélög á fingrum annarrar
handar, sem tókst að skila
hagnaði á sl. ári. Svissair var
eitt þeirra og fór meira að segja
fram úr þeim 13 milljón dollara
hagnaði, sem félagið skilaði á
árinu 1973 en til að ná því
marki varð félagið aftur á móti
að draga verulega saman seglin
á N-Atlantshafsflugleiðinni,
sem félagið hafði tapað á ári á
undan. Miklar sparnaðarráð-
stafanir hafa einnig hjálpað
SAS yfir hjallann á siðasta ári,
en fregnir berast af því að fé-
lagið hyggist nú enn herða sult-
arólina til að tryggja hallalaus-
an rekstur á þessu ári.
Bílaverkstæoi
Nu er rétti tíminn til
að láta yfirfara og
stilla GM-bifreiðina
i hinni nýju og
glæsilegu þjón-
ustumiðstöð okkar
að Höfðabakka 9.
Pantið tíma hjá
verkstjóra í síma
85539
SAMBANDIÐ VELADEILD
ÞJONUSTUMIÐSTOÐ
HOFÐABAKKA 9. Simar: Verkst.: 85539 Verzh 84245-84710
HINIR ÞEKKTU SHANNON CASTLE ENTERTAINERS SKEMMTA
Á iRLANDSKVÖLDI AÐ HÖTEL LOFTLEIÐUM SUNNUDAGINN 23.
FEBRUAR. VÍKINGASALURINN OPNAR KL. 19.00.
Ferðakynning kl. 20.30
a. írlandsferðir kynntar.
b. Kvikmyndasýning.
c. Hinir þekktu listamenn SHANNON
CASTLE ENTERTATNERS, sem koma
FERDASKRIFSTOFAN
URVAL
Eimskipafélagshúsinu simi 26900
sérstaklega .til íslands til að skemmta á
þessu írlandskvöldi.
Dansað, sungið og fleira.
AÐEINS ÞETTA EINA KVÖLD.
Pantið borð tímanlega í síma 22322.
Irlandskvöld í
_ mmm m m
VERÐUR EKKI
ENDURTEKIÐ!
4
Auglysingadeíldin