Morgunblaðið - 12.04.1979, Page 5
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 12. APRÍL 1979
5
Minnisblað lesenda
Morgunblaðið hefur að venju
leitað upplýsinga, sem hand-
hægt getur verið fyrir lesendur
þess að grípa til um bænadag-
ana og páskaháti'ðina.
Slysadeild
Slysadeild Borgarspítalans er
opin allan sólarhringinn, sími
81200.
Slökkviliðið
Slökkviliðið í Reykjavík, sími
11100. Slökkviliðið í Hafnarfirði
sími 51100. Slökkviliðið á Akur-
eyri sími 22222.
Lögreglan
Lögreglan í Reykjavík, sími
11166, upplýsingasími 11110. Á
Akureyri sími 23222. í Kópavogi
41200. í Hafnarfirði sími 51166.
Sjúkrabílar
Sjúkrabílar í Reykjavík sími
11100, í Hafnarfirði sími 51100.
Læknavarsla
Nætur- og helgidagavakt er
fram til klukkan 08 á þriðjudag,
síminn er 21230.
Tannlæknavarsla
Neyðarvakt verður alla dag-
ana í Heilsuverndarstöðinni við
Barónsstíg klukkan 14 til 15.
Síminn þar er 22417.
Lyfjavarsla
Á skírdag er nætur- og helgi-
dagavakt í Apóteki Austurbæj-
ar og Lyfjabúð Breiðholts, en
föstudag til þriðjudags er opið í
Háaleitisapóteki og Vestur-
bæjarapóteki.
Göngudeild
Á skírdag er Göngudeild
Landspítalans opin klukkan 14
til 15 og einnig á annan í
páskum, en á laugardaginn milli
klukkan 14 og 16. Þar er bæði
hægt að fara til læknis og
hringja. Síminn er 21230.
Messur
Tilkynningar um messur,
guðsþjónustur og fermingar eru
birtar á öðrum stað í blaðinu.
Útvarp,
sjónvarp
Dagskrá útvarps og sjónvarps
er einnig á öðrum stað í blaðinu.
Bilanir
ir skal tilkynna til Vélamið-
stöðvar Reykjavíkurborgar, en
þar verður bilanavakt alla
hátíðisdagana, sími 27311.
Símabilanir tilkynnist í síma 05.
Söluturnar, verslanir
Söluturnar verða opnir eins
og venjulega á skírdag, laugar-
dag og annan í páskum, en
lokaðir föstudaginn langa og
páskadag.
Verslanir verða lokaðar frá og
með skírdegi til og með annars í
páskum, en þó verður opið milli
klukkan 9 og 12 á laugardag.
Bensín-
afgreiðslur
Bensínafgreiðslur verða opnar
á skírdag frá klukkan 9.30 til
11.30, og frá klukkan 13 til 18.
Lokað er á föstudaginn langa og
á páskadag, opið eins og venju-
lega á laugardaginn, og opið á
annan í páskum frá klukkan 9.30
til 11.30, og frá klukkan 13 til 18.
Strætisvagnar Reykja-
víkur, Kópavogs
og Hafnarfjarðar
Skírdagur: Ekið eins og á
venjulegum sunnudegi.
Föstudagurinn langi: Akstur
hefst klukkan 13. Ekið eins og á
sunnudegi.
Laugardagur: Ekið eins og
venjulega á laugardögum.
Páskadagur: Akstur hefst
klukkan 13, ekið eins og venju-
lega sunnudaga.
Annar páskadagur: Ekið eins
og venjulega á sunnudegi.
Ljósm. Emilía.
Skúlptúrsýning á
Borgarspítalanum
ÞORBJÖRG Pálsdóttir heldur þessa dagana skúiptúrsýningu í
anddyri Endurhæfingardeildar Borgarspítalans. Skúlptúrarnir eru af
börnum og vcrður sýningin opin fram yfir páska. Þorbjörg hefur á
undanförnum árum vakið athygli fyrir sérkennilega og persónulega
tækni.
Bruni í bakaríinu
á Suðárkróki
Sauðárkróki 11. apríl.
ALLMIKILL bruni varð í Sauðár-
króksbakaríi um klukkan 9 í
morgun. Eldurinn kom upp við
nýjan bakarofn í nýrri viðbygg-
ingu við bakaríið. Mikill reykur
gaus þegar upp svo mjög erfitt
var að komast að eldinum, en
starfsfólkið, sem þarna var að
störfum. kallaði strax á slökkvi-
liðið, sem fljótlega kom á vett-
vang.
Um klukkan 10 hafði tekizt aö
ráða niðurlögum eldsins, en
slökkvistörf voru mjög erfið sök-
um mikils reyks. Tjónið hefur ekki
verið metið, en dýrmæt tæki eru í
bakaríinu. Reykur fór um alla
hæðina, þar sem bakaríið er, og
sömuleiðis varð talsvert tjón
vegna vatnselgs. íbúð Guðjóns
Sigurðssonar bakarameistara er á
efri hæð hússins og þangað upp
lagði einnig mikinn reyk, en óvíst
er um skemmdir.
- Kári.
Firmakeppni
frestað
FIRMAKEPPNI Vals í körfu-
knattleik, sem vera átti í dag,
hefur verið frestað um eina viku
eða til 19. apríl.
STERKASTA RYKSUGA
í HEIMI
HOOVER S-3001
Hringlaga lögunin gefur
hinum risastóra 12 lítra
rykpoka nœgjanlegt rými.
HOOVER
er heimilishjálp.
Hoover S-3001 er á tnargan hátt lang sterkasta heimilisryksuga
sem þekkist. Af 1340 watta afli hreinsar hún öll þín teppi af hvers
kyns óhreinindum. Breyta má um sogstyrk eftir því hvað hentar.
Þér til mikils vinnuhagræðis er rofinn íhandfanginu, undirþumal-
fingrinum. Að hreinsa kverkar er aldeilis aUðvelt, stillanlegt sog-
stykki sér fyrir því. Stór hjól og hringlaga lögun gera Hoover S-3001
einkar lipra í snúningum, hún rispar ekki húsgögnin þin.
Til þceginda er sjálfvirkt inndrag á aðtauginni. Hoover S-3001 ber
sjálf öll hjálpartœki, svo núgetur þú loksins haft fullt gagn af þeim.
Og ekki síst, 12 lítra rykpoki sem enst getur þér t marga mánuði án
tœmingar.
FALKIN N
SUÐURLANDSBRAUT 8, SÍMI 84670
SENDUM
BÆKLINGA