Morgunblaðið - 12.04.1979, Blaðsíða 8
8
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 12. APRÍL 1979
WALTHER
Þ JÓNSSON&CO
6keifan 1 7 s 84515 — 84516
Skipholt 21
Reykjavík
Sími 23188
Vandervell
vélalegur
Ford 4-6-8 strokka
benzín og diesel vélar
Austin Mini
Bedford
B.M.W.
Bulck
Chevrolet
4-6-8 strokka
Chrysler
Citroen
Datsun benzin
og diesel
Dodge — Plymouth
Flat
Lada — Moskvitch
Landrover
benzin og diesel
Mazda
Mercedes Benz
benzin og diesel
Opel
Peugout
Pontiac
Rambier
Range Rover
Renault
Saab
Scania Vabis
Scout
Simca
Sunbeam
Tékkneskar
bifreiðar
Toyota
Vauxhall
Volga
Volkswagen
Volvo benzin
og diesel
HÁÞRÝSTI-
VÖKVAKERFI
SérhæfÓ þjónusta.
AÓstoðum vió val
og uppsetningu
hvers konar
háþrýstibúnaóar.
RADIAL
stimpildælur
= HÉÐINN =
VÉLAVERZLUN-SIMI: 24260
LAGER-SÉRPANTANIR-WÓNUSTA
AUGLÝSINGATEIKWISTOFA
MYIMÐAMÓTA
Aðíilstræti 6 sími 25810
Kristbjörg Mar-
teinsdóttir
I
Steinunn
Tómasdóttir
Bryndís Sigurjóns-
dóttir
ólöf Forberg Hrönn Þorsteins-
dóttir
Páll Guðjónsson Helgi Hermanns-
son
Píltarnir skiptu litum
undir úttekt stúlknanna
Hvoli, Ölfusi, 4. aprfl.
HINN 30. mars sl. héldu nemend-
ur Gagnfræðaskólans í Hvera-
gerði árshátíð sna í Hótel Hvera-
gerði. Skemmtiatriði voru mörg,
leikþa-ttir, tízkusýning, þckktir
skemmtikraftar leiknir og vakti
þó mesta athygli frumsamdir
þættir í hundnu máli — sungnir
og leiknir af nemendum. Einn
þeirra var úttak stúlknanna á
karlpeningi skólans og segja
kunnugir, að margir piltanna
hafi skipt litum undir flutningi
þessa efnis.
Hvað segja unglingarnir?
Formaður skólafélagsins Olaf
Forberg: „Þetta var mikil vinna og
samstaðan var mjög góð og maður
getur huggað sig við það, að
krakkarnir sem taka við að ári eru
félagslega betur þroskaðir en við,
svo að þetta verður enn betra
næst. Varðandi samskipti okkar
við hina eldri, langar mig að benda
á, að í þættinum „Um daglegt
mál“, var því haldið frám ekki alls
fyrir löngu, að unglingarnir töluð-
um jafnvel ekki sama tungumál og
þeir eldri. Sé þetta rétt, vil ég alls
ekki samþykkja, að það sé okkur
að kenna. En það er eins og enginn
hafi tíma til neins lengur. Ég held
jafnvel að sumum leiðist hreinlega
að vera til. Og svo eru hinir sem
eru í allt of mörgu. Þeir ætla að
gleypa veröldina. Það er skólinn,
sjónvarp, bíó, spilatímar, íþrótta-
klúbbar. Við erum stundum dauð-
þreytt og komumst þar af leiðandi
ekki jafnlangt og ella ef við ein-
beitum okkur að færri verkefnum.
Að síðustu tel ég, að við ættum að
hugleiða hvort við erum nógu
mikið hjá okkar foreldrum og
njótum þess tímabils í ævinni, sem
aldrei kemur aftur.
Kristbjörg Marteinsdóttir í 8.Ö
— „Tilgangurinn er að safna í
bekkjarsjóð. Annars var þetta ekki
eins mikil vinna við undirbúning-
inn, vegna þess að 7. og 8. bekkur
hafði stofnað til foreldrakvölda og
Höfum kaupendur aö eftirtöldum verðbréfum:
VERÐTRYGGÐ SPARISKÍRTEINI
RÍKISSJÓÐS:
14. aprfl 1979 Kaupgengi Innlausnarverö Seðlabankans m.v. 1 árs Yfir-
pr. kr. 100.-: tímabil fré: gengi
1966 1. flokkur 3.182.52 25/1 '79 2.855.21 11.5%
1968 2. flokkur 2.992.28 25/2 ‘79 2.700.42 10.8%
1969 1. flokkur 2.224.69 20/2 ’79 2.006.26 10.9%
1970 1. flokkur 2.042.66 15/9 '78 1.509.83 35.3%
1970 2. flokkur 1.477.44 5/2 '79 1.331.38 10.8%
1971 1. flokkur 1.385.08 15/9 '78 1.032.28 34.2%
1972 1. flokkur 1.207.26 25/1 '79 1.087.25 11.0%
1972 2. flokkur 1.033.22 15/9 '78 770.03 34.2%
1973 1. flokkur A 783.28 15/9 '78 586.70 33.5%
1973 2. flokkur 721.32 25/1 ‘79 650.72 10.8%
1974 1. flokkur 500.10
1975 1. flokkur 408.88
1975 2. flokkur 312.05
1976 1. flokkur 296.51
1976 2. flokkur 240.82
1977 1. flokkur 223.65
1977 2. flokkur 187.36
1978 1. flokkur 152.67
1978 2. flokkur 120.51
VEÐSKULDABRÉF:* Kaupgengi pr. kr. 100.-
1 ár Nafnvextir: 26% 78—79
2 ár Nafnvextir: 26% 69—70
3 ár Nafnvextir: 26% 63—64
*) Miöað er við auöseljanlega fasteign.
Höfum seljendur aö eftirtöldum verðbréfum:
HAPPDRÆTTISSKULDABRÉF
RÍKISSJÓÐS: S
B — 1973 635,41 (10% afföll)
C — 1973 553,71 (10% afföll)
D — 1974 480,50 (10% afföll)
E — 1974 340,00 (10% afföll)
F — 1974 340,00 (10% afföll)
G — 1975 236,82 (10% afföll)
Nýtt útboð verdtryggðra spariskírteina
ríkissjóðs:
1979 1. flokkur 100.00 + dagvextir.
PjÁRFEJTincaRPÉlAG ÍJUinDJ HP.
VERÐBRÉF AMARKAÐUR
LÆKJARGÖTU 12 R. (lönaöarbankahúsinu).
Sími 2 05 80.
Opið alla virka daga frá kl. 9.30—16
Tízkusýning.
Stúlkunum fannst lagið Ljósbrá eftir Eirík Bjarnason skemmtilegast.
Frá vinstri: Jenny Wium, Jóhanna Iljartardóttir, Hrefna Guðmunds-
dóttir og Steinunn Tómasdóttir. Með þeim eru á myndinni Eiríkur
Bjarnason (t.h.) og Bjarni E. Sigurðsson, sem lék undir sönginn eigin
útsetningar af fingrum fram. Ljósmyndir: Björn Pálsson.
gátum við notað sumt af skemmti-
atriðunum frá þeim kvöldum.
Helzti munurinn á okkur og full-
orðna fólkinu er sá, að við kunnum
ekki dansana þeirra og þau ekki
okkar. Foreldrakvöldin bættu
þarna mikið úr, því að við pældum
í gömlu dönsunum lengi kvölds og
ég efast um, hvorir skemmtu sér
betur fullorðna fólkið eða við.“
Helgi Hermannsson í 7. bekk Ö.:
„Þetta er allgott. Kennaravísur og
kennaragrín er það bezta. Hér er
sæmileg mæting, en ekki nógu
margt fullorðið fólk, þó veit það að
við erum að safna í ferðasjóð.“
Steinunn Tómasdóttir í 8. bekk
Ö.: „Undirbúningurinn gekk mjög
vel, allir voru samhentir. Ég hefi
mjög gaman af söng og þá sama
hvar ég er hvort ég er á sviði, eða
er að vaska upp. Fallegasta lagið í
kvöld er Ljósbrá eftir Eirík á
Hótelinu. Mamma er mætt hér í
kvöld til að hlusta, en ég verð að
syngja fyrir pabba seinna."
Hrönn Þorsteins Wilke í 9. S
kynnir kvöldsins. „Það eru ekki
nógu margir gestir, en
skemmtiatriðin eru allgóð. Ég er
eiginlega alltof spennt", segir hún
um leið og hún hverfur upp á
sviðið, til að kynna næsta atriði. —
Páll Guðjónsson í 8. H — „Auðvit-
að borgar þetta sig. Maður losnar
líka við kennslu á meðan verið er
að undirbúa þetta. Ef ég næ prófi í
framtíðinni, ætla ég annað hvort í
íþróttirnar eða tækniskólann. Ég
er ekki ákveðinn enn.“
Bryndís Sigurjónsdóttir í 9. S —
„Ég er e.t.v. í of mörgu, en er nú
samt aðallega að reyna að læra.
Mér finnst mér ganga sæmilega,
en pabbi er ekki alveg á sama máli.
Ég vona að þetta verði skemmti-
legt kvöld — alla vega er ég
ákveðin í að skemmta mér, hvað
sem hinir gera. En spurningin er,
upp á hvað eigum við að bjóða, til
þess að fá fullorðna fólkið til að
koma?“
Ungdómur Hveragerðis og
Ölfuss dillar sér í dansi fram eftir
nóttu og gleymir öllu amstri dag-
anna, satt er það — góð var
skemmtunin, en ættu ekki
fullorðnir að gefa sér betri tíma
fyrir ungdóminn?
B. E. Sig.
Sjá messur á bls. 32