Morgunblaðið - 17.01.1980, Side 5
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 17. JANÚAR 1980
5
Hluti af safni Geirs Gígju.
Mttúrufræðistofn-
unin fær
safn Geirs
HINN 14. desember sl. var Nátt-
úrufræðistofnun Íslands formlega
afhent til eignar og varðveislu
mikið safn náttúrugripa, söfnun-
aráhalda og bóka um náttúru-
fræðileg efni. Gefendur voru hjón-
in Geir Gígja og Svanhvít L.
Guðmundsdóttir, Tómasarhaga 9,
Reykjavík.
Á sínum yngri árum var Geir
Gígja kunnur íþróttamaður og
veittist margur heiður á þeim
vettvangi. Þó mun hann kunnastur
fyrir störf sín á náttúrufræðum,
einkum á sviði skordýrafræðinnar,
sem var hans aðalhugðarefni.
Hann var lengi vel eini íslending-
urinn, sem vann markvisst að því
að auka þekkingu manna á skor-
dýrum hér á landi. Geir Gígja var
landskunnur fyrir þessi störf sín,
og skýtur nafni hans gjarnan upp í
huga manna samtímis því að
skordýr beri á góma.
Safn Geirs Gígja er æðimikið að
vöxtum. Skordýrasafnið er lang-
þyngst á metunum, en þó átti Geir
Geir Gígja
að
Gígju
einnig nokkuð safn plantna auk
ýmislegs úr steinaríkinu. Til að
gefa hugmynd um stærð skordýra-
safnsins má nefna, að því var
komið fyrir í um 65 skúffum og
smákössum. Söfnunin spannaði
líka um 50 ár, en elstu dýrunum
safnaði Geir fyrir um 60 árum.
Þáttur Geirs Gígja á sviði
íslenskrar skordýrafræði verður
seint metinn að fullu. Mikilvægi
söfnunar hans kemur einkar vel í
ljós við lestur skordýraheftanna í
ritsafninu „The Zoology of Ice-
land“, en það verk hefur verið að
koma út sl. 40—50 ár og fjallar um
allar dýrategundir, sem vitað er
um á Islandi, og útbreiðslu þeirra.
Náttúrufræðistofnun þakkar
gefendunum og börnum þeirra
þessa höfðinglegu gjöf og hlýhug
þeirra í garð stofnunarinnar.
Stofnunin mun reyna að varðveita
safnið eins og frekast er kostur, til
góðs fyrir framgang vísindanna í
landinu.
(Fréttatilkynning írá Náttúrufræði-
stofnun tsl.)
Svanhvít L. Guðmundsdóttir
Kvikmynd eftir James
Ivory í Fialakettinum
FJALAKÖTTURINN sýnir í
kvöld, fimmtudag, kl. 21, á laug-
ardaginn kl. 17 og á sunnudag-
inn kl. 17, 19:30 og 22 í Tjarnar-
bíói kvikmyndina „Hullabaloo
Over Georgie and Bonnie’s Pic-
tures“ (írafár vegna mynda
Georgie og Bonnie) eftir James
Ivory.
Myndin er gerð á Indlandi árið
1978. Hún segir frá indverskum
systkinum, Georgie og Bonnie.
Georgie á safn indverskra list-
muna, sem eru honum ómetan-
legir, því þeir eru hluti tilveru
hans. Systir hans lítur á munina
sem peningaleg verðmæti, sem
liggja undir skemmdum. Myndin
lýsir togstreitunni þeirra á milli.
Aður hefur verið sýnd eftir James
Ivory myndin „Savages" í Kvik-
myndaklúbbi Menntaskólanna
veturinn 1974—’75.
Batnandi astand í vatnsbúskap Landsvirkjunar:
Afram verður þó að
skammta rafmagnið
LJÓST er að áfram verður að
skammta rafmagn til nokkurra
stærstu viðskiptavina Landsvirkj-
unar, að því er Halldór Jónatans-
son aðstoðarframkvæmdastjóri
Landsvirkjunar sagði í samtali við
blaðamann Morgunblaðsins í gær.
Sagði hann að áætlað væri að sama
skömmtun yrði að minnsta kosti til
loka janúarmánaðar, en þá yrði
tekin ákvörðun um framhaldið með
Agústa Agústs-
dóttir og Jónas
Ingimundarson á
Háskólatónleikum
ÞRIÐJU háskólatónleikar vetr-
arins verða haldnir laugardag-
inn 19. janúar ki. 17 í Félags-
stofnun stúdenta við Hring-
braut.
Að þessu sinni syngur Ágústa
Ágústsdóttir við undirleik Jónas-
ar Ingimundarsonar. Hefur hún
undanfarin ár haldið tónleika víðs
vegar um land. Á þessum tónleik-
um verður frumfluttur nýsaminn
lagaflokkur eftir Atla Heimi
Sveinsson, sem hann nefnir Smá-
söngva. Þá eru á efnisskránni
einnig lög eftir Skúla Halldórs-
son, Hallgrím Helgason, Jón Þór-
arinsson og Franz Schubert.
hliðsjón af ástandi og horfum í
vatnsbúskap Landsvirkjunar.
Halldór sagði að sem dæmi um
stöðuna í Þórisvatni mætti nefna, að
í upphafi skömmtunar, hinn 20.
september eða þar um bil, hefði
vatnshæðin vérið 571 metri yfir
sjávarmáli, eða 4 metrum lægri en á
sama tíma 1978. í dag væri vatns-
hæðin hins vegar 569 metrar, sem er
3.5 metrum lægra en á sama tíma
1979. Mestur varð munurinn hins
vegar síðari hluta desembermánaðar
síðastliðins, þegar vatnsborðið var
4.5 metra lægra en á sama tíma árið
1978. „Þetta sýnir að þróunin er
hagstæð í þessu efni,“ sagði Halldór,
„en ástandið er samt sem áður ekki
nægilega gott til að unnt sé að draga
úr skömmtuninni."
Skömmtunin er nú þessi: Áburðar-
verksmiðjan fær nú 12 megawött, en
aflþörf verksmiðjunnar er hins veg-
ar 18 megawött, þannig að skömmt-
unin er 6mw. Járnblendifélagið vill
taka um 32mw, en fær 25, skömmt-
unin er því 7mw. ísal þarf 132mw, en
fyrirtækið fær um 122mw, svo að
skömmtunin gagnvart álverinu er
lOmw. Loks er aflþörf Keflavíkur-
flugvallar um 4mw meira en þangað
er nú selt, en því er mætt með
keyrslu á díselstöð.
Á síðasta ári nam rafmagns-
skömmtunin alls 49 gígawattstund-
um. Skerðingin skiptist þannig eftir
kaupendum: Áburðarverksmiöjan
12,2gw (24,8%), Járnblendifélagið
13,2gw (26,9%), ÍSAL 18,2gw (37,1%)
og Keflavíkurflugvöllur 5,5gw
(11,2%). Halldór sagði að lokum, að
framangreind skömmtun væri um
35% minni en talið var í september
að hún gæti þurft að verða mest, og
væri það hagstæðri veðráttu að
þakka.
„Myrkir músíkdagar*:
Fyrstu tón-
leikarnir í
kvöld
FYRSTU tónleikar tónlistarhátíð-
arinnar „Myrkir músíkdagar"
verða haidnir í kvöld og fara þeir
fram í sal Menntaskólans við
Hamrahlíð og hefjast kl. 20:30. Þar
flytur Sinfóníuhljomsveit íslands 6
verk íslenskra tónskálda undir
stjórn Paul Zukofskys, einsöngvari
er Ruth L. Magnússon.
Efnisskrá tónleikanna er sem hér
segir: Snorri S. Birgisson: Þáttur
fyrir blásara og slagverk, Atli Heim-
ir Sveinsson: Hreinn: Súm: 74, Jón
Þórarinsson: Um ástina og dauðann,
einsöngur Ruth L. Magnússon, Her-
bert H. Ágústsson: Sinfóníetta, Jón
Ásgeirsson: Sjöstrengjaljóð og Jón
Leifs: Þrjár myndir op. 44.
HOOVER er heimilishjálp
SUÐURLANDSBRAUT 8, SIMI 84670
Ryksugan sem sví
HOOVER Töfradiskurinn S 3005 er ryksuga sem vekur’
undrun, vegna þess hve fullkomlega einföld hún er.
Sogstyrkurinn er ósvikinn frá 800 W mótor, og rykpokinn
rúmar 12 litra, já 12 litra af ryki. HOOVER S 3005 er
ennfremur léttasta ryksuga sem völ er á, hún líður um M
gólfiö á loftpúða alveg fyrirhafnarlaust
fyrir þig, svo létt er hún.