Morgunblaðið - 09.04.1980, Page 5
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 9. APRIL 1980
5
Fyrsti FIDEf und-
urinn á íslandi
- hefet á fimintudag
„FUNDUR framkvæmda- hinni nýju skrifstofu sam-
ráðs FIDE, alþjóðaskák-
sambandsins, er fyrsti
fundur samtakanna hér á
landi og markar því á sinn
hátt tímamót í íslenzkri
skáksögu,“ sagði Friðrik
ólafsson, forseti FIDE, á
fundi með blaðamönnum í
Gaf píanó
Stykkishólmi. 8. apríl.
í GÆR afhenti Sigurborg Stur-
laugsdóttir og börn hennar,
Kjartan og Guðlaug, dvalar-
heimili aldraðra hér í Stykk-
ishólmi nýtt og vandað píanó
sem þau gefa í minningu lát-
inna ástvina sinna. Afhentu
þau stjórn elliheimilisins
hljóðfærið við athöfn í dval-
arheimilinu að viðstöddum
vistmönnum og fleirum og lék
frú Sigríður Bjarnadóttir við
það tækifæri á píanóið. Við
þetta tækifæri flutti sóknar-
presturinn, Gísli Kolbeins,
bæn. — Fréttaritari.
takanna að Laugavegi 51.
„Stjórnarmenn Skáksam-
bands íslands hafa haft
veg og vanda af undirbún-
ingi og skipulagningu
fundarins og kunnum við
þeim beztu þakkir fyrir,“
sagði Friðrik ennfremur.
Fundur framkvæmdaráðs;
ins hefst á fimmtudag. í
ráðinu eiga sæti allir
helstu embættismenn
FIDE, og auk þeirra f jórir
kjörnir fulltrúar og heið-
ursforseti FIDE dr. Max
Euwe.
„Á dagskrá fundanna, sem
munu standa væntanlega í fjóra
daga, verður fyrirkomulag næstu
heimsmeistarakeppni, ýmsar fjár-
öflunarleiðir til að styrkja fjárhag
FIDE, sem er ekki alltof góður um
þessar mundir. Þá verður tekin
fyrir heimsbikarkeppni FIDE,
svokallað FIDE-World Cup. Þá
verður einnig rætt um höfundar-
Heimdallur opn-
ar atvinnumiðlun
VEGNA mikilla erfiðleika
ungs fólks við að finna sér
sumaratvinnu hefur stjórn
Ileimdallar S.U.S. ákveðið
að opna atvinnumiðlun í
Reykjavík.
Allt ungt fólk kannast við
hversu erfitt það reynist oft að fá
einhverja atvinnu yfir sumarmán-
uðina. Stjórn Heimdallar telur að
með skipulögðu starfi sé hægt að
ráða nokkra bót á þessu. Strax
eftir páskahátíðina verður byrjað
að taka fólk niður á skrá og leita
að vinnu fyrir það hjá atvinnurek-
endum.
Heimdallur S.U.S. Reykjavík
ætlar sér með þessu starfi, auk
þess að útvega skólafólki atvinnu,
að opna umræður um þessi mál og
leita varanlegra úrbóta. Þess er
vænst að hægt verði að fá forystu-
menn launþegasamtaka og vinnu-
veitenda til að tjá sig um málið.
Skólafólk hafið samband við
skrifstofu Heimdallar þriðjudags-
kvöld eftir páska og öll kvöld þar
eftir í síma 82900 — 82098 eða
komið við að Háaleitisbraut 1, 2.
hæð. (Valhöll). (Fréttatilkynning)
Raketta braut veggi
barnaheimilisins
Stykkishólmi 8. apríl.
LAUGARDAGINN fyrir
páska komu 9 unglingar frá
Upptökuheimilinu í Kópavogi
í fylgd þriggja gæzlumanna til
Stykkishólms í páskaleyfi og
fengu þeir gistingu í skólan-
um. Þegar leið á daginn varð
fólk var við ýmsan usla. Höfðu
einhverjir unglinganna fengið
leyfi til að skreppa í bæinn, en
seinna um daginn fóru tveir
án leyfis á stjá og brutust þeir
inn í geymslu sem Björgunar-
sveitin Berserkir hefur komið
sér upp í starfi sínu. Náðu þeir
þar í flugelda og rakettur og
kveiktu í og voru það óheppnir
að ein mjög sterk raketta
flaug inn um g'ugga á barna-
heimili kaþólsku systranna,
gegn um vegg og staðnæmdist
á þriðja veggnum. Kviknaði
mikill eldur út frá rakettunni,
skcmmdi bæði góifið og vegg-
inn og var mesta mildi að ekki
hlauzt stórslys af. betta var
um kvöldmatarleytið og syst-
urnar nálægar til þess að
slökkva eldinn með ýmsum
tilfæringum.
Samkvæmt því sem lögreglan
hefur gefið upp, en hún tók
drengina strax í sína vörslu til
yfirheyrslu, þá hafa þessir ungl-
ingar komið víða við í bænum og
gert ýmsan usla. Voru menn
grandvaralausir fyrir þessu.
— Fréttaritari.
Landa á ný í Hull
eftir langt hlé
SKUTTOGARINN Sigurey
frá Siglufirði landaði hluta
afla síns í Hull síðastliðinn
miðvikudag og fékk mjög
gott verð, en langt er síðan
íslenzkt skip iandaði í IIull.
Hafnargjöld hafa nú verið
lækkuð þar frá fyrri hug-
myndum hafnaryfirvalda.
Eru gjöldin svipuð og þau
voru á sama tima í fyrra, en
hins vegar nokkru hærri en í
lok síðasta árs. Sigurey seldi
71,4 tonn af ísfiski og fékk
44,7 milljónir króna fyrir eða
626 krónur á kg. að meðal-
tali. Sigurey var einnig með
nokkuð af frystum fiski. Á
morgun landa tvö íslenzk
skip í Englandi, annað í IIull,
hitt í Grimsby.
Á skrifstofu FIDE á Laugaveginum. frá vinstri: Compomanes. einn af varaforsetum FIDE, Friðrik
Ólafsson, forseti FIDE. Sveinn Jónsson, gjaldkeri FIDE og Einar S. Einarsson. forseti Skáksambands
íslands. Mynd. Mbl. Emilía.
rétt í skák, ákvörðun verður tekin
um Ólympíuskákmótið á Möltu
1980, nýtt svæðafyrirkomulag og
inntökubeiðnir nýrra skáksam-
banda, svo að eitthvað sé nefnt, “
sagði Friðrik.
„Eg vil taka það sérstaklega
fram, að ég er ákaflega þakklátur
fyrir þá fyrirgreiðslu og þann
skilning, sém íslenzk stjórnvöld
hafa sýnt okkar málefnum. Fjár-
hagsmálin eru nú komin í góða
höfn,“ sagði Friðrik.
Einar S. Einarsson, forseti
Skáksambands Islands og skák-
sambanda Norðurlanda var við-
staddur blaðamannafundinn.
„Norðurlandabúar hafa mikinn
hug á að koma á nýju svæðafyr-
irkomulagi — að Norðurlöndin
verði sérstak sjálfstætt FIDE-
svæði. Það yrði Norðurlöndunum
mikill styrkur og þá mætti hugsa
sér, að Norðurlandamótið í skák
yrði jafnframt svæðamót," sagði
Einar á fundi með fréttamönnum.
Compomanes, einn af varafor-
setum FIDE, var einnig á fundin-
um. Ásamt honum verða eftirtald-
ir meðlimir framkvæmdaráðsins á
fundinum í Reykjavík: H.M. Has-
an, forseti Skáksambands Indón-
esíu, A. Kinzel, forseti, skáksam-
bands V-Þýzkalands, Vega Fern-
andez, forseti Skáksambands
Kúbu. Ásamt honum eiga þrír
aðrir varaforsetar FIDE sæti í
framkvæmdaráðinu, R. Belkadi,
Túnis, Compomanes, Filipseyjum,
K. Jungwirth Austurríki og J.G.
Prentice, frá Kanada. Þá eiga
fjórir sérkjörnir fulltrúar FIDE
sæti í framkvæmdaráðinu, þeir
Averbach, Sdvétríkjunum, Hasan,
Indónesíu, Kinzel, V-Þýzkalandi
og Fernandez, Kúbu. Einnig á
ritari FIDE sæti í ráðinu, Ineke
Bakker.