Morgunblaðið - 09.04.1980, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 9. APRIL 1980
7
r
„Klungur
ríkisaf-
skipta-
klettar
skatt-
píningar"
Vesturland, blaö vest-
firzkra sjálfstæðismanna,
segir í leiöara og vitnar til
orða núverandi forsætis-
ráðherra:
„Enn þarf að endur-
skoða skattalögin ræki-
lega. Hinir beinu skattar
eru of háir. Viö stefnum
einnig að því að heildar-
upphæö hinna opinberru
gjalda verði ekki hærri en
viss hundraðstala af
þjóðarframleiðslu. Ef
skattamálum okkar væri
komið í betra horf en nú
er, mundi það um leiö
örva og glæða atvinnulíf-
iö og skapa atvinnu-
rekstri einstaklinga betri
möguleika og skilyrði."
„Þannig komst dr.
Gunnar Thoroddsen
varaformaður Sjálfstæö-
isflokksins aö orði í
ræðu, sem út var gefin í
ritgerðarsafni um sjálf-
stæðisstefnuna í fyrra.
Þessi orð varaformanns-
ins, sem birtust almenn-
ingi á valdadögum vinstri
stjórnar Ólafs Jóhann-
essonar voru þörf og
réttmæt. En því miður
eiga þau enn við. Núver-
andi ríkisstjórn hefur tek-
ið þann kostinn að feta
einstigi vinstri stjórnar-
innar um klungur ríkis-
afskiptanna og kletta
skattpíningarinnar.“
Skattar
skeröa
ráöstöfunar-
tekjur
Ríkissjóður þarf aö
sjálfsögðu skatttekjur til
að bera uppi nauðsyn-
lega samfélaglega þjón-
ustu. Taki hið opinbera
hins vegar til sín hærra
hlutfall af þjóðartekjum
en eðlilegt er talið skerðir
það um of ráöstöfunar-
tekjur almennings og
rekstrarstöðu atvinnu-
vega. Núverandi ríkis-
stjórn hefur ekki einung-
is haldiö fast í alla
nýskatta ríkisstjórnar Ól-
afs Jóhannessonar (sem
lofað var að fella niöur)
heldur „bætt um betur“,
bæði í beinni og óbeinni
skattheimtu. Svo virðist
sem „telja eigi niður
verölag" með háum vöru-
gjöldum, söluskatti og
bensíngjöldum. Fjár-
málaráöherrann, sem
fékk fylgi út á slagorðin
„kosningar eru kjarabar-
átta“, hremmir nú stærri
hlut úr launaumslögum
fólks í tekjuskatt en
dæmi eru um áður. Ríkis-
skattur í benzínveröí er
8Ö gera venjulegu launa-
fólki ókleift að reka heim-
ilisbifreið. Hækkun flug-
vallagjalds, skattur á
ferðagjaldeyri í bland viö
gengislækkun lokar or-
lofsleiðum ýmsra út fyrir
landsteina. Margt sem
var almenningseign í
daglegu lífí fólks, er að
verða forréttindi hinna
betur megandi. — Það
munaði sem sé heldur
betur um það þegar Al-
þýðubandalagið setti
„samningana í gildi“ í
fjárlagagerðinnil
„Örva og
glæöa
atvinnulífiö“
Gunnar Thoroddsen
hitti naglann á höfuðiö
þegar hann sagði að hóg-
værari skattheimta
myndi „örva og glæöa
atvinnulífið“. — Eigin-
fjármyndun í atvinnu-
rekstri á islandi hefur, því
miður, veriö bannorð.
Hún er eigi að síður
forsenda þess að at-
vinnuvegir geti tækni-
vætt sig, fært út kvíar,
aukið framleiðni og þá
heildarverðmætasköpun
í þjóðarbúskapnum, sem
er undirstaöa lífskjara í
landinu. Ofsköttun hefur í
senn slævt þann hvata,
sem nauösynlegur er til
grósku f atvinnulífi, og
hreinlega dregið úr æski-
legri framþróun í at-
vinnulífinu.
Þegar þess er gætt að
20.000 ný atvinnutækifæri
þurfa að verða til á
níunda áratugnum, til að
mæta atvinnuþörf í land-
inu, og verðmætasköpun
á vinnandi einstakling
þarf að vaxa nokkuð, til
að ná sambærilegum lifs-
kjörum hér og í ná-
grannalöndum, verður
þessi skattahemill á
æskilega framþróun at-
vinnulífsíns þeim mun
varhugaverðari. Fólki er
að verða Ijósara og Ijós-
ara að atvinnuöryggi
þess og rekstraröryggi
framleiöslunnar eru tvær
hliðar á sama hlutnum;
að skattastefna vinstri
flokkanna, sem nú ræður
ferð, veikir ekki einungis
kjarastöðu almennings
— heldur tefur fram-
þróun atvinnulífsins. Þaö
er heilbrigðari tekjuleið
fyrir ríkissjóð aö sá til
aukinna skatttekna með
eflingu atvinnulífsins,
með því að efla gjald-
stofnana fremur en að
hækka skattstigana. Nú-
verandí ríkisstjórn fer
öfugt að, strax í árdaga
starfs síns. Það var upp-
hafið að endalokum
hennar.
FÍFU ELDHÚS
Eldhúsið með fulningahurðum er sigilt og vandað, enda
keypt af þeim sem vilja vandað og skemmt ilegt eldhús.
Frágangur er allur eins og best verður á kosið, sterkar
lamir, aðeins úrvals efni er notað. Þér getið valið um lit á
innréttingu og plast á borðplötu.
Allir skápahlutar eru framleiddir með innfeldum tengi-
búnaði, sem gerir það að verkum að mjög auðvelt er að
tengja þá saman og hengja upp á vegg. Tækninýjung sem
auðveldar samsetningu og festing verður öruggari.
Fffa hefur bryddað upp á mörgum nýjungum, má þar m.a.
nefna útdregna grindarskápinn, sem er mjög vinsæll í dag
og flestir taka f eldhús sín.
Fifa býður upp á eldhus í öllum verðflokkum og fyrir þá
sem vilja fá góð eldhús fyrir mjög lítið verð, hefur Fífa
framleitt eldhús sem stendur fyllilega fyrir sínu, látlaust
og hagkvæm lausn fyrir alla þá sem vilja ekki leggja
mikinn kostnað í eldhúsið, en vantar eldhúsinnréttingu.
í þessu eldhúsi er sama efni, lamir og aðrir þeir hlutir
sem notaðir eru í aðrar innréttingar Fífu, en spamaður-
inn liggur í hagkvæmari staðlaðri framleiðslu, sem
kemur þeim til góða sem versla við Fífu.
Látið okkur teikna eldhúsin og gefa verðtilboð, þér að
kostnaðarlausu.
Húsgagnavinnustofa.Smiöjuvegi 44 Köpavogi Simi 71100
Árshátíð
VALS
Veröur haldin í Átthagasal Hótel Sögu laugar-
daginn 12. apríl n.k. og hefst meö borðhaldi kl.
19.30.
Fjöldi góðra skemmtikrafta kemur fram, veittar
viðurkenningar og verðlaun.
Valsmenn yngri og eldri fjölmennið.
Forsala aðgöngumiða fer fram í Valsheimilinu kl. 5—7 í.
dag og næstu daga. Borðapantanir verða afgreiddar á
Hótel Sögu á fimmtudag kl. 5—7.
Skemmtinefndin.
íbúð óskast
Læknishjón, óska aö taka á leigu 4—5 herbergja
íbúð, eða hús frá 1. ágúst eða síðar.
Upplýsingar í síma 10144 eftir kl. 7 næstu kvöld.
FRA TOPPI TIL
TÁAR
ALLT A EINUM STAÐ
Hárgreiðslu og snyrtistofan
HÓTEL LOFTLEIÐUM
bjóöa þjónustu sem sparar tíman.
Fáið snyrtingu
meðan beðið er
Hárgreiðslustofan
Sigríður Finnbjörnsdóttir,
hárgreiöslumeistari.
Sími 25230
Snyrtistofan
Helga Þ. Jónsdóttir,
fótaaögeröar- og
snyrtifræöingur.
Sími 25320
STJÓRNUNARFRÆÐSLAN
Innra eftirlit
Stjórnunarfélag íslands heldur námskeið um
Innra eftirlit í fyrirlestrarsal félagsins að Síöu-
múla 23 dagana 14.—15. apríl kl. 15—18 og 16.
apríl kl. 15—19.
Fjallað verður um innra eftirlit í
stjórnunar- og bókhaldslegu tilliti.
Rætt veröur um hvernig koma má á
virku innra eftirliti með hinum ýmsu
starfsemisþáttum í rekstri fyrirtækja.
Námskeiöið er einkum ætlaö aöal-
bókurum, skrifstofu- og fjármála-
stjórum stærri fyrirtækja.
Skráning þátttakenda og nánari upplýsingar hjá Stjórn-
unarfélaginu, sími 82930.
Leiöbeinandi:
Stefán Svavarsson,
dósent og lögglltur
endurskoöandi.