Morgunblaðið - 09.04.1980, Page 13
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 9. APRÍL 1980
13
St. Georgsgildin á íslandi:
Gangast fyrir Norð-
urlanda móti á íslandi
St. Georgsgildin á íslandi
standa í sumar fyrir þingi St.
Georgsgildanna á Norðurlöndun-
um og fer mótið fram dagana 29.
júní til 4. júlí og verður haldið á
Hótel Loftleiðum. Gert er ráð fyrir
um 300 erlendum þátttakendum á
þinginu en Norðurlöndin skiptast
á um að halda þingin annað hvert
ár og annað hvert ár er síðan
haldið alþjóðamót og var það á
síðasta ári í Bergen.
St. Georgs gildin eru samtök
gamalla skáta og skátaunnenda og
starfa þau einkum að eflingu skáta-
starfs og hafa í því sambandi aflað
fjár og veitt stuðning skátastarfi í
ýmsum löndum. Af öðrum verkefn-
um má nefna stuðning við flótta-
fólk og ýmis fleiri líknar- og
menningarmál.
Á þinginu í sumar verða auk
umræðna um málefni samstarfs
Norðurlandaþjóðanna flutt erindi
um ísland og íslenzka menningu, en
þingið hefur einu sinni áður verið
haldið hérlendis, árið 1970 og sóttu
það þá á annað hundrað erlendir
gestir. ísland tók fyrst þátt í
samstarfi þessu árið 1970 og hafa
fulltrúar héðan jafnan setið bæði
Norðurlanda- og alþjóðaþing, en nú
eru 34 löng í alþjóðasamtökunum.
Einn íslendingur var kjörinn í
stjórn þeirra á síðasta ári, Björn
Stefánsson, varalandsgildismeist-
ari.
Stjórn St. Georgsgildisins á tslandi. Fremri röð, f.v.: Sigurlaug Árnadóttir
ritari. Ragnheiður Finnsdóttir erlendur bréfritari, Hrefna Tynes lands-
gildismeistari og Sigriður Axelsdóttir gjaldkeri. Aftari röð, f.v.: Jónas S.
Jónsson meðstjórnandi. Hans Jörgensson meðstjórnandi, Björn Stefánsson
varalandsgildismeistari og Garðar Fenger, cn hann á sæti i sérstakri
fjármálanefnd fyrir þingið.
Hafist handa við
hjúkrunardeild
DAS í Hafnarfirði
HAFIST var handa að
nýju við jarðvegsfram-
kvæmdir vegna byggingar
hjúkrunardeildar aldr-
aðra við Hrafnistu í Hafn-
arfirði í gærdag.
Að sögn Péturs Sigurðs-
sonar mun þessi deild
rúma 75 vistmenn ásamt
margs konar þjónustu.
Mikið rými er ætlað lækn-
um og til endurhæfingar-
aðstöðu, þar sem verður
m.a. baðaðstaða, sundlaug
og æfingasalir.
Með tilkomu hjúkrun-
ardeildarinnar við dval-
arheimilið sem risið er
verður hægt að veita full-
komna þjónustu íbúum
Hrafnistu svo og' íbúum
sérhannaðra íbúða sem
rísa munu í næsta ná-
grenni.
Bæklingur
á norsku
um Island
og Jan
Mayen
UTANRÍKISRÁÐUNEYTIÐ hef-
ur gefið út á norsku bækling. sem
ber heitið „Island og det gamle
Svalbard“, sem fjallar um af-
skipti íslendinga af eyjunni Jan
Mayen frá upphafi að því er
sögulegar heimildir herma.
Bæklinginn hefur ritað Sigurð-
ur Líndal, prófessor í samvinnu
við Helga Þorláksson sagnfræðing
og Ólaf Egilsson deildarstjóra í
utanríkisráðuneytinu. Norska
þýðingu gerði Odd Didriksen. Þá
eru í bæklingnum myndir, sem
Freymóður Jóhannsson málaði frá
Jan Mayen, svp og fleiri myndir
frá heimsókn íslendinga til eyj-
unnar. Á forsíðu er mynd af nótu
þeirri, sem Jón Þorláksson forsæt-
isráðherra sendi dönskum stjórn-
völdum 27. júlí 1927, er hann
mótmælti því, að Norðmenn eign-
uðu sér eyna.
Bæklingurinn er 40 blaðsíður.
Skilafrestur
framlengdur
RÍKISSKATTSTJÓRI hefur
ákveðið að framlengja áður
ákveðna skilafresti skattframtala
einstaklinga, sem hafa með hönd-
um atvinnurekstur eða sjálfstæða
starfsemi, frá 15. apríl til og með
30. apríl 1980.
MAINTENANCI
Hamlyn-bók
. fytaja
haminqiuóskunum!
^rchtedure
Roroe
Al FOMOBILKS
WSSm
IUNITE0 STSTIS
IgSIBlNES -a
mi , ^ Coiourfu
■ SfcsfcCooker v
aSRCR
Compamon
ircasttryiH
Snortimi
HOIME
IM
Handbook
Látiö
Hamlyn-bók
fylgja*
hamingjuóskunum!
Myndin sýnir aðeins örlítið brot af hinum
sívinsælu gjafabókum frá Hamlyn útgáf-
unni.
Hamlyn bækurnar fást í úrvali hjá eftir-
töldum bóksölum:
Bókabúð Máls og Menningar.
Bókaverzlun Snæbjarnar.
Bókaverzlun Andrésar Níelssonar,
Akranesi.
Bókaverzlun Jónasar Tómassonar,
ísafirði.
Bókaverzlun Jónasar Jóhannssonar,
Akureyri.
Bókaverzlun Þórarins Stefánssonar,
Húsavík.
Bókaverzlun Höskuldar Stefánssonar,
Neskaupstað.
Bókabúðin Heiðarvegi 9,
Vestmannaeyjum.
Bókabúð Keflavíkur. Tjarnargötu,
Hamlyn umboðið
Hafnarstræti 4 Reykjavík S:14281.