Morgunblaðið - 09.04.1980, Page 15
15
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 9. APRÍL 1980_
Jóhann Hjartarson skák-
meistari íslands 1980
Skákþing íslands 1980. það 66.
í röðinni var háð nú um páskana.
Sigurvesari i landsliðsflukki og
þar með skákmeistari íslands
varð Jóhann Hjartarson, sautján
ára gamall nemi i Menntaskólan-
um við Hamrahlið.
Jóhann tók þegar orugga for-
ystu í upphafi mótsins, vann
fyrstu sex skákir sínar og það
var snemma ljóst að eini raun-
verulegi keppinautur hans um
efsta sætið yrði Helgi Ólafsson.
Þeir mættust í tiundu umferð og
lauk þeirri viðureign með sigri
Jóhanns sem þar með hafði
tryggt sér sigur fyrir síðustu
umferð.
Jóhann hlaut niu vinninga í
eliefu skákum. en Helgi. sem varð
i Oðru sæti. hlaut sjö og hálfan
vinning. Svo sem þessir yfirburð-
ir gefa til kynna var Jóhann
mjög vel að sigrinum kominn.
Jóhann er þrátt fyrir ungan
aldur ákaflega fjölhæfur skák-
maður og vann skákir sínar
ýmist i flækjum eða endatöflum.
Helgi virtist ekki taka mótið
nægilega alvarlega til þess að geta
orðið efstur, t.d. tefldi hann úr-
slitaskákina við Jóhann allt of
hratt á erfiðasta kaflanum. Þó brá
stundum fyrir ágætum tilþrifum
hjá honum, sérstaklega um miðbik
mótsins þegar hann náði sér bezt á
strik.
Jóhannes Gísli Jónsson er jafn-
aldri Jóhanns og náði nú einnig
sínum langbezta árangri til þessa.
Ingvar Ásmundssyni tókst ekki að
verja titil sinn síðan í fyrra, en
það sem hann virðist helst vanta
er meiri þátttaka í kappmótum.
Ásgeir Þór Árnason byrjaði illa
og tefldi síðan ákaflega gloppótt
frameftir móti. Undir lokin tók
hann sig þó vel á og náði mjög
viðunandi sæti.
Haukur Angantýsson, nýjasti
alþjóðameistari okkar, hlýtur að
vera sárónægður með frammi-
stöðu sína. Það var raunar vart
hægt að þekkja hann fyrir sama
mann og oft áður, því nú brást
endataflstæknin honum alveg.
Hann missti oft niður unnin töfl.
Reyndar má segja bæði um Hauk
og Helga að þeir vitust skák-
þreyttir eftir alþjóðlega skákmót-
ið.
Elvar Guðmundsson er öruggur
skákmaður. Hann hefði jafnvel
getað sloppið alveg taplaus ef ekki
hefði nokkrum fljótfærnislegum
leikjum verið fyrir að fara.
Gunnar Gunnarsson hefur sára-
lítið teflt síðustu ár, en stóð þó
fyllilega fyrir sínu.
Júlíus Friðjónsson byrjaði vel,
en svo var sem botninn dytti úr
öllu. Hann getur þó teflt býsna vel
er á reynir. Sama er að segja um
Björn Þorsteinsson, sem má muna
sinn fífil fegri. Stutt er síðan
Björn vann haustmótið, en á þessu
móti var hann ekki nema svipur
hjá sjón. Benedikt Jónasson hlaut
nú eldskírn sína í landsliðinu.
Hann sýndi oft ágæt tilþrif, en
skorti reynslu. Bragi Halldórsson
er ýmist meðal þeirra efstu eða
neðstu og í þetta sinn varð einmitt
hið síðarnefnda upp á teningnum.
Einni biðskák er ólokið í áskor-
Jóhann Hjartarson.
endaflokki, en að öllum líkindum
verður Ásgeir Ásbjörnsson, SH,
efstur, en hann hefur sjö og hálfan
vinning og betri biðskák. Fimmtán
ára gamall piltur úr TR, Karl
Þorsteins, hefur þegar tryggt sér
sæti í landsliðsflokki, en hann
hefur átta vinninga. Karl vakti
mikla athygli fyrir sigur sinn á
alþjóðlegu drengjaskákmóti í
Puerto Rieo í fyrra og það er
greinilegt að mikils má af honum
vænta í framtíðinni.
Karli tókst þó ekki að tryggja
sér sætið fyrr en í síðustu umferð
er hann mætti hættulegasta
keppinauti sínum, Jóni Torfasyni,
sem nú hefur aftur hafið þátttöku
í skákmótum eftir nokkurt hlé.
Jón stóð betur í hróksendatafli, en
með snjallri vörn tókst Karli að
halda sínu. Jón hefur sjö og hálfan
vinning en röð annarra þátttak-
enda varð þessi: 4. Jóhann Þ.
Jónsson, TR 6‘/2 v. 5. Magnús
Ólafsson, TN 5 v. og biðskák 6.
Sigurður Daníelsson, T.Ve 5 v. 7.
Björgvin Jónsson, SK 4Vi v. 8.-9.
Hannes Ólafsson, SS og Bragi
Björnsson, TR 3'k v. 10. Gylfi
Þórhallsson, SA 2 v. og 11. Helgi
Hauksson, 1 v.
Ungur skákmaður úr TR, Árni
Á. Árnason sigraði í meistara-
flokki. Hann halut 7 '/2 vinning af
níu mögulegum. Auk hans vann
Magnús Gíslason, SM sér rétt til
þátttöku í Áskorendaflokki að ári.
Kvennameistari íslands 1980
varð Birna Nordahl, TR. Hún
hlaut \'k vinning af 6 mögulegum.
Næst varð Áslaug Kristinsdóttir
með 3'/2 v., þá Ólöf Þráinsdóttir
með 2'k v. og loks Sigurlaug
Friðþjófsdóttir með 1 'k v., allar úr
TR.
í drengjaflokki urðu úrslit þessi:
1. Þröstur Þórsson,' TR Vk
vinning af níu mögulegum. 2.
Tómas Björnsson, TR 3.-6. Krist-
ján Pétursson, Kjós, Erlingur
Árnason, SK, Lárus Pétursson,
Kjós og Björn Sv. Björnsson, TR
allir með 6 v.
Lítum nú á úrslitaskákina í
landsliðsflokki, úr tíundu umferð
á milli þeirra Jóhanns og Helga.
Hvítt: Jóhann Hjartarson. TR
Svart: Helgi ólafsson, SA
Kóngsindversk vörn
1. d4 - Rf6,2. c4 - c5, 3. d5 -
g6, 4. Rc3 — Bg7, 5. e4 — 0-0. 6.
Be2 (Eftir 6. e5 - Re8, 7. f4 - d6 *
hefði hvíta peðafylkingin fljótlega
verið bútuð sundur) e5, 7. Bg5 —
d6. 8. Dd2 - Ra6. 9. H4?!
(Eðlilegra framhald gegn hinu
sjaldgæfa afbrigði sem Helgi beit-
ir er 9. g4 og síðan 10. h3) Rc7.10.
Rh3 - a6, 11. al - IIb8. 12. a5
— b5,13. axb6 - Hxb6.14. f3 -
Bd7. 15. Rf2 - Db8. 16. Rd3 -
Rh5! (Góður leikur sem sýnir
glögglega að misráðið var að
veikja g3 og f4 reitina) 17. g4 —
Rf4,18. Ha2 — h6?! (Svörtum sést
yfir skemmtilegt leikbragð hvíts í
20. leik. Rétt var 18... f6 19. Bxf4 -
— exf4 og ef hvítur drepur peðið
með riddaranum kemur 20... f5!
og svartur hefur meira en nægi-
legar bætur fyrir peðið) 19. Bxf4
— exf4, 20. e5!
(Geysilega öflugur leikur.
Hvítur lokar skálínu biskupsins á
g7 og rýmir e4 reitinn fyrir
riddara) Re8, 21. exd6 — Bd4. 22.
Re4 — Be3? (Nauðsynlegt var
22... Rxd6, 23. Rexcö — Bc8 og
svartur hefur eitthvert spil fyrir
peðið. Nú fær hann hins vegar
óteflandi tafl, því að hann tapar
nú c5 peðinu án þess að geta
drepið á d6) 23. Dc2 — Dc8, 24.
Ha5 — f5, 25. Rexc5 — fxg4, 26.
Rxd7 - Dxd7, 27. c5 - g3, 28.
Bfl — Rxd6 (Ekki verra on hvað
annað. Ef svartur víkur .íróknum
undan gerir Re5 út um taflið) 29.
cxd6 — Bxb6, 30. Hxa6 — He8+.
31. Kdl - Hc8, 32. Re5! - Rf5,
33. Rxd7 - Re3+, 34. Ke2 -
Hxc2+. 35. Kd3 - Hh2, 36. Hgl
- Rxfl, 37. Hxfl - g2. 38. Hfal
- Hhl, 39. Hxb6 - Kg7, 40. Re5
og svartur gafst upp.
Nafn 1. 2- 3- 4. 5. 6. 7. T T 10. 11. 12. Vinn.
1. Jóhann Hjartarson. TR 1 'h 1 1 0 'h 1 1 1 1 1 9
2. Helgi Ólafsson, SA o H 0 1 1 'h 'h 1 1 1 1 'h 7 'h
3. Ingvar Ásmundsson, Sm 'h 1 0 1 'h 'h 1 0 'h 'h 1 6 'h
4. Jóhannes G. Jónsson, TR 0 0 1 1 1 'h 'h 'h 0 1 1 6 'h
5. Ásgeir Þ. Árnason, TR 0 0 0 0 1 1 1 1 'h 'h 1 6
6. Haukur Angantýsson, TR 1 'k 'h 0 0 'h 'h 1 'h 'h 'h 5 'h
7. Elvar Guómundsson, TR 'h 'h 'h 'h 0 'h 'h 0 'h 1 1 5 'h
8. Gunnar Gunnarsson, TR 0 0 0 'h 0 'h 'h 1 1 1 'h 5
9. Júlíus Friöjónsson, TN 0 0 1 'h 0 0 1 0 0 1 1 414
10. Björn Þorsteinsson, TR 0 0 'h 1 'h 'h 'h 0 1 0 0 4
11. Benedikt Jónasson, TR 0 0 'h 0 'h 'h 0 0 0 1 1 314
12. Bragi Halldórsson, SM 0 'h 0 0 0 'h 0 'h 0 1 0 214
Segulband fyrir rafhlöður.
Innbyggður hljóðnemi.
Verð kr. 54.560,-
Utvarpstæki LB og MB.
Aðeins fyrir rafhlöður.
Verð kr. 14.217.-
Sambyggt útvarp og segulband, fyrir rafhlöðu
og rafmagn. LB, MB og FM.
Innbyggður hljóðnemi. Verð kr. 134.704.-
Hárblásari — 4
Verð kr. 23.323
Segulband fyrir bæði rafhlööur og rafmagn.
Innbyggður hljóðnemi.
Verð kr. 62.240.-
Rakvél með 2,
12 blaöa hnífum
Verð kr. 48.231.-
Plötuspilari með innbyggðum magnara
Hátalarar fylgja. Verð kr. 120.215,-
heimilistæki hf
Morgunhani með LM, MB og FM
Gengur alveg hljóðlaust.
Verð kr. 37.780.-
HAFNARSTRÆTI 3 — 20455 — SÆTÚN 8 — 15655
Útvarpstæki LB MB og FM.
Bæði fyrir rafhlöður og rafmagn
Verð kr. 36.336,-
Hárburstasett með 4 fylgihlutum. 800 W.
Verð kr. 33.596.-