Morgunblaðið - 09.04.1980, Page 16
16
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 9. APRÍL 1980
AÖalfundur Sjálfstæðisfélags Sauðárkróks:
Átök við stjórnarkjör
- deilur um ályktun
MORGUNBLAÐINU hefur borist
svohljóðandi fréttatilkynning frá
Pálma Jónssyni, nýkjörnum for-
manni Sjálfstæðisfélags Sauð-
árkróks:
„Aðalfundur Sjálfstæðisfélags
Sauðárkróks var haldinn 26. marz
sl. Fundurinn var fjölsóttur og
voru mættir 60 af um 100 skráðum
félögum, en allmargir nýir félagar
bættust við á fundinum.
Formaður var kjörinn Pálmi
Jónsson með 35 atkv. en fráfar-
andi formaður, Kári Jónsson,
hlaut 24 og er nú varaform. I
stjórn voru kjörnir Guðmundur
Tómasson með 38 atkv., Jón Árna-
son með 37 og Bjarni Haraldsson
með 36. Næstir að atkvæðum voru
Jón Ásbergsson 24, Páll Ragnars-
son 23 og Jón Jakobsson 21 og
skipa þeir varastjórn. í kjördæm-
isráð voru kjörnir Halldór Þ.
Jónsson með 37 atkv. og Friðrik J.
Friðriksson með 34. Næstir að
atkvæðum voru Jón Ásbergsson 24
og Knútur Aadnegard 23. Þá voru
kjörnir 11 í fulltrúaráð.
í lok fundarins flutti nýkjörinn
formaður, Pálmi Jónsson, svo-
fellda tillögu:
„Aðalfundur Sjálfstæðisfélags
Sauðárkróks 1980 harmar þá
sundrungu, sem er meðal þing-
manna flokksins og hvetur allt
sjálfstæðisfólk til að vinna ein-
huga í anda sjálfstæðisstefnunnar
að því að styrkja og efla Sjálf-
stæðisflokkinn.
Fundurinn lýsir fullu trausti á
þingmanni Sjálfstæðisflokksins í
kjördæminu, Pálma Jónssyni,
landbúnaðarráðherra, og lætur í
ljósi þá von, að hann, og aðrir þeir
þingmenn Sjálfstæðisflokksins,
sem að núverandi ríkisstjórn
standa, verði þess megnugir að
hafa sem mest áhrif á störf og
stefnu stjórnarinnar."
Allsnarpar umræður urðu um
tillöguna og fleiri málefni. Eftir
að frávísunartillaga hafði verið
felld var tillagan samþykkt með
24 atkv. gegn 20 í skriflegri
atkvæðagreiðslu. Þrír seðlar voru
auðir, en nokkrir voru farnir af
fundi.
Þá sneri Morgunblaðið sér einn-
ig til Kára Jónssonar varafor-
manns félagsins, og fráfarandi
formanns þess, og leitaði álits
hans á þeim atburðum sem urðu á
fundinum, og að framan greinir.
„Það sem ég hef um þetta mál
að segja, er það að þetta var
ákaflega sérstæður fundur,“ sagði
Kári. „Þetta var aðeins venjulegur
aðalfundur, og til hans boðað með
venjulegum hætti. En þegar á
fundinn kom þá var auðséð að
smalað hafði verið á fundinn.
Þarna kom fólk sem hefur ekki
sést á fundum hjá Sjálfstæðis-
flokknum árum eða jafnvel ára-
tugum saman, og látið sig félags-
mál flokksins litlu varða hér í
bænum. Þá gengu þarna á fundin-
um í félagið nýir félagar, og ég
sem formaður fagnaði því og bauð
nýja félaga velkomna. Fagnaði ég
þessari miklu fundarsókn, og því
að nýtt fólk skyldi vera að koma
til starfa. En auðséð var að þessi
fundur hafði verið undirbúinn, og
fékk ég nánari fregnir af því eftir
að honum lauk.
Hér er hópur manna sem er
Páimi Jónsson
særður á sálinni, og hefur verið
það í mörg ár, þar sem þeim finnst
þeirra hlutur ekki hafa verið
nægilega mikill eða góður innan
Sjálfstæðisflokksins. Þeir höfðu
unnið skipulega að því að fá hóp
manna til að mæta á fundinn, og
einnig hafa þeir greinilega gefið
þessu fólki ýmsar upplýsingar, og
þær áreiðanlega ekki allar réttar,
um gang mála hér.
Enda kom það í ljós, að þetta
fólk hafði ekki svo ýkja mikinn
áhuga á félagsstarfinu sem slíku.
Eg flutti þarna skýrslu stjórnar
um starfið á síðasta ári, og urðu
engar umræður um hana, né
heldur um skýrslu gjaldkera.
Þá var gengið til kosninga, og
kom þá í ljós að sá hópur sem
þarna hafði komið á fundinn kaus
allur eins, og hafa þeir líklega
verið með það skrifað á blað hjá
sér, hvernig ætti að kjósa. Þótt
þetta fólk hafi ekkert starfað að
félagsmálum Sjálfstæðisflokksins
hér taldi það sig þess umkomið að
koma á fundinn til þess eins að
hreinsa út ákveðinn hóp manna
sem var þessum mönnum ekki
þóknanlegur.
Sem dæmi get ég nefnt, að
þarna er felldur úr stjórn Páll
Ragnarsson tannlæknir, sem verið
hefur aðal driffjöðurin í æskulýðs-
og íþróttalífi hér á staðnum, og er
formaður Ungmennafélagsins.
Hann hefur reynst afbragðs
starfsmaður fyrir flokkinn síðan
hann hóf störf innan félagsins.
Hann er felldur, og einnig Knútur
Aadnegard formaður bæjarmála-
ráðs og Jón Ásbergsson, og einnig
var reynt að fella Þorbjörn Árna-
son forseta bæjarstjórnar úr einu
trúnaðarstöðunni sem hann hafði
innan félagsins, það er sæti í
fulltrúaráðinu. Allt eru þetta ung-
ir menn, vinsælir hér í bænum og
starfhæfir í besta lagi, en nauð-
synlegt virðist hafa verið að fella
þá alla úr trúnaðarstörfum fyrir
flokkinn. Ef svo á að koma fram
við ungt fólk sem kemur til starfa,
þá á Sjálfstæðisflokkurinn ekki
glæsilega framtíð fyrir sér, en
enginn þeirra hefur tekið þátt í
neinni klíkustarfsemi innan
flokksins. Aðrir betri menn hafa
ekki komið til starfa fyrir flokk-
inn hér, en mín persóna skiptir
þarna engu máli. Ég hef áður
orðið fyrir aðkasti af hálfu þessa
fólks, og læt mér það í léttu rúmi
liggja.
Eftirtektarvert er hins vegar,
eftir fundinn, að nú vill enginn
þeirra sem stóð að þessum
„hreinsunum" neitt kannast við
málið, og geta ekki fært nein rök
fyrir máli sínu. Helst bera menn
því við að þeir hafi lofað einhverj-
um mönnum þessu, og er ég viss
um að þetta nýja fólk sem vonandi
á eftir að starfa áfram innan
flokksins og var allra góðra gjalda
vert, muni síðar sjá hvers konar
regin skyssu það hefur gert.
En kosningar í svona félagi geta
nú farið alla vega, en aðalefni
fundarins var hins vegar ályktun-
in sem að lokum var samþykkt
með örlitlum mun atkvæða. Eftir-
tekt vakti, að nýkjörinn formaður
félagsins, Pálmi Jónsson, byrjaði
á því að leggja áherslu á það að nú
þyrfti að efla samhug og samstöðu
innan flokksins. En að þeim orð-
um töluðum kastar hann fram
þessari tillögu, og það var eins og
sprengingu væri varpað inn á
fundinn. Vitað mál er að skiptar
skoðanir eru meðal sjálfstæð-
ismanna um þessa ríkisstjórn, og
málið er sérstaklega viðkvæmt
Kári Jónasson
hér í kjördæminu. Því hafa flestir
talið heppilegast að fara varlega
og sjá hverju fram yndi, en síðar
mætti leggja dóm á störf stjórnar-
innar.
En viðbrögð fundarmanna við
tillögu Pálma voru mjög hörð, og
lýstu margir andstöðu við hana.
Enginn talaði hins vegar með
henni, nema flutningsmaður og
Halldór Þ. Jónsson, sem lagði
henni gott orð. Ég benti á að þetta
væri mikið ágreiningsmál, til þess
eins fallið að sundra okkur, og
væri því best að bíða. Skoraði ég á
tillögumann að draga tillögu sína
til baka, en hann neitaði því,
treysti greinilega á það fólk sem
smalað hafði verið á fundinn og
gefið hafði loforð um stuðning. En
þessi hörðu viðbrögð komu því
fólki greinilega alveg í opna
skjöldu, og til þess að gera sem
minnst úr tillögunni sagði annar
talsmaður hennar, Halldór Þ.
Jónsson, að ekki bæri að líta á
hana sem stuðning við ákvörðun
Pálma um þátttöku i ríkisstjórn-
inni. Heldur væri þetta aðeins
traustsyfirlýsing við hann sjálfan,
persónulega. Nú, ef þannig er litið
á málið, þá verð ég að túlka
niðurstöðu sem áfall fyrir ráð-
herrann. Tillagan er samþykkt
með 24 atkvæðum, en 23 treysta
sér ekki til að greiða henni
atkvæði, þar af voru 20 á móti en 3
sátu hjá.
Það sem hafst hefur upp úr
þessu brölti er því allt annað en
það sem til var ætlast, og hafa
vinnubrögðin mælst illa fyrir hér í
bænum. En öll eru vinnubrögðin í
stíl við annað sem gerst hefur
innan Sjálfstæðisflokksins síðustu
mánuði, og draga dám af því.
Allur undirbúningur fundarins fór
til dæmis mjög leynt, og má sem
dæmi nefna, að á síðasta fundi
stjórnarinnar fyrir aðalfundinn,
þá minntist Pálmi Jónsson, sem
einnig var í stjórn, ekki á neitt.
Þvert á móti gaf hann í skyn að
varla yrði um miklar breytingar
að ræða.
En það get ég fullyrt, að Pálmi
Jónsson landbúnaðarráðherra
hefur beitt áhrifum sínum í þessu
máli. Tillagan sem samþykkt var á
fundinum var örugglega pöntuð,
og Pálmi á Akri hefur áður reynt
að skipta sér af innanflokksmál-
um hér í Skagafirði, og hafði þá
lítinn sóma af. Hélt ég satt að
segja, að hann hefði þá eitthvað
lært, en svo virðist ekki vera. Verð
ég að segja það eins og er, að á
meðan hans afskipta er ekki óskað
væri best að hann léti okkur í
friði,“ sagði Kári að lokum.
Mikií afla-
aukning Rifs-
hafnarbáta
llfllissandi 2. apríl.
UM mánaðamótin voru komin á
land í Rifshöfn 5850 lestir frá
áramótum og er um verulega
aflaaukningu að ræða, en á sama
tíma í fyrra voru komnar á land
3600 lestir. Aflahæstu bátarnir
eru Tjaldur með 754 lestir, Hamar
með 751 lest og Rifsnes með 724
lestir. Marzmánuður var einstak-
lega góður og voru aflahæstu
bátarnir þá með 450—470 lestir,
en fyrri hluti vertíðar var erfiður
vegna tíðarfars. Frá Rifi eru
gerðir út 7 stórir bátar auk
smærri báta og aðkomubáta.
— Rögnvaldur
Samkvæml rannsóknum sem Rannsóknastofnun bygglngariðnaóarlns hefur gert á
steypu’skemmdum og sprungumyndunum á húsum, hefur komlö I IJós aö eina varanlega lausnln,
til aö koma í veg fyrlr leka og áframhaldandi skemmdir, er að klæöa þau alveg tll dæmis
með álklæðnlngu.
A/klæöning er seltuvarln, hrlndlr frá sér óhreinindum, og þolir vel islenska veöráttu.
A/klæönlng er fáanleg i mörgum litum sem eru innbrenndlr og þarf aldrei aö mála.
Leitiö nánari upplysinga og kynnist möguleikum A/klæöningar.
Sendiö telkningár og vlö munum reíkna út efnisþörf og gera verötilboð
yöur aö kostnaöarlausu.
FULLKOMIÐ KERFI TIL SÍOASTA NAGLA
INNKAUP HE
ÆGISGÖTU 7, REYKJAVÍK - SÍMi 22000 - PÓSTHÓLF 1012.
TELEX 2025 - SÖLUSTJÓRI: HEIMASÍMI 71400.