Morgunblaðið - 09.04.1980, Síða 17
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 9. APRÍL 1980
17
Tölvuvædd upplýsingaþjón-
usta f yrir f asteignaviðskipti
FYRIRTÆKIÐ Upplýs-
ingaþjónustan fer í dag af
stað með tölvuvædda upp-
lýsingaþjónustu fyrir fast-
eignaviðskipti. Upplýs-
ingaþjónustan mun safna
framboðs- og eftirspurnar-
upplýsingum um fast-
eignamarkaðinn, skráir
þær síðan í tölvu sem
vinnur úr þeim. Hún skrif-
ar síðan söluskrár, kaup-
endaskrár og makaskipta
skrár, sem ætlaðar eru
almenningi.
Að sögn Kristjáns Gíslasonar
annars tveggja forsvarsmanna
fyrirtækisins eru tölvuskrárnar
uppfærðar daglega með nýjum
upplýsingum um nýjar eignir og
seldar eignir teknar út, þannig að
útskriftir eru ávallt réttar frá
degi til dags.
Kristján sagði
fasteignasalarnir
að
það yrðu
í myndu
Norsk grafík í
Norræna húsinu
Nú stendur yfir í anddyri og
bókasafni Norræna hússins sýn-
ing á verkum norska grafík-
listamannsjns Dag Arnljot
Rödsand. Á sýningunni eru 70
verk.
Dag Rödsand fæddist árið
1943 í Svolvær í N-Noregi. Hann
stundaði nám við Philadelphia
College of Art 1962—66 og við
Listaakademíuna í Kaupmanna-
höfn 1966—70. Eftir heimkom-
una til Lofoten setti hann á fót
grafíkverkstæðið Atelier-Lofot-
en, síðar nefnt Atelier Vaagan í
Svolvær og stjjornaði daglegum
rekstri þess til ársins 1977, er
hann fluttist til Moss við Óslóar-
fjörð. Hann hélt sína fyrstu
einkasýningu í Svolvær 1966 og
hefur frá 1970 haldið margar
einkasýningar viðs vegar um
Noreg og auk þess tekið þátt í
mörgum samsýningum þar í
landi og víðar.
Dag Rödsand sækir myndefni
sitt að miklu leyti í náttúru
N-Noregs. Hann hefur einkum
lagt fyrir sig litprent, einnig
tréstungu. Hann hefur gefið út
Dag Arnljot Rödsand
bók „Kaflann um Lofoten úr
Norðurlandstrómet Petter Dass,
handskrifaðan, handbundinn og
myndskreyttan og verður eintak
af bókinni til sýnis í bókasafn-
inu.
Sýningin stendur út aprílmán-
uð og er opin daglega virka daga
kl. 9—19, sunnudaga kl. 12—19.
Hætturnar
leynast víða
ÞAÐ ERU ekki litlar vegalengd-
ir, sem smáfuglar ýmiss konar
leggja að baki á ferðum sinum
landa á milli. Einmitt um þessar
mundir eru farfuglarnir að byrja
að hópast hingað til lands mis-
munandi langt að komnir, en
allir eru þeir jafn velkomnir
þessir fallegu sumarboðar. Ekki
komast þeir þó allir til fyrir-
heitna landsins, ferðin er löng og
lýjandi auk þess, sem hætturnar
leynast víða.
Smáfuglarnir tylla sér gjarnan
ofurlitla stund á skip, sem þeir
geta átt samleið með um stund, en
einnig þar geta hætturnar beðið
þeirra. Þannig var það á dögunum
er þessi litli spörfugl hvíldi sig um
borð í nótaskipinu Haferni á
miðunum sunnan við Reykjanes
fyrir nokkrum vikum. Hann hafði
ekki lengi setið og látið þreytuna
líða úr sér þegar smyrill átti leið
hjá og einnig hann þarf að lifa.
Smáfuglinn átti sér engrar und-
ankomu auðið og hans ævi varð öll
í kjafti ránfuglsins. Smyrillinn er
nokkuð algengur varpfugl á ís-
landi og að líkindum sú tegund
ránfugla, sem mest er af hér á
landi, hann er bæði staðfugl og
farfugl.
borga kostnaðinn við þessa starf-
semi nema hvað viðskiptavinir
þyrftu að greiða pappírskostnað-
inn eða 300 krónur fyrir hvern
útskriftarlista sem þeir þyrftu að
nálgast á skrifstofu fyrirtækisins
í Síðumúla 32. Hann sagði að
ítarlegar viðræður hefðu farið
fram milli þeirra og fasteignasal-
anna og hefði þar komið fram
greinilegur áhugi margra þeirra á
þessari starfsemi.
Fyrsta hálfa mánuðinn verða
listarnir gerðir fasteignasölunum
að kostnaðarlausu, þannig að þeir
geti áttað sig á gildi þeirra og
metið hvort þeir hafa áhuga á að
vera með áfram.
Það kom ennfremur fram hjá
Kristjáni að auk hinna hefð-
bundnu úrskriftarlista gætu
viðskiptavinir komið og beðið um
sérstaka lista, t.d. getur maður
sem ætlar að kaupa ákveðið stóra
fasteign í ákveðnu hverfi með
bílskúr fengið lista yfir allar
slíkar fasteignir, sem til sölu eru
hjá þeim fasteignasölum, sem
taka munu þátt í þessu.
Samkvæmt könnun fyrirtækis-
ins eru 5—600 fasteignir til sölu á
hverjum tíma og árlega seljast um
2000 fasteignir á Stór-Reykja-
víkursvæðinu.
Aðspurður um hvort allir fast-
eignasalar bæjarins tækju þátt í
þessu sagði Kristján að svo væri
ekki. Nokkrir teldu sig enn setn
komið er ekki hafa neinn hagnað
af því að taka þátt í þessari
starfsemi. Hann sagði hins vegar
að ef fólk tæki þessari þjónustu
vel myndu hinir fasteignasalarnir
væntanlega koma á eftir.
Fegurð úr
Hólminum
ÞESSI 17 ára yngismær úr
Stykkishólmi varð hlutskörp-
ust i fegurðarsamkeppni
þeirra Vestlendinga. Keppnin
fór fram nýlega og er liður í
fegurðarsamk. ppni íslands.
(Ljósm.: Bæring
Cecilsson).
Brottfarardagar
sumarið 1980:
3. apri'l
18. apríl
9. maí
23. maf
30. maí
13. júní
20. júní
4. júlí
1 1. júlí
25. júlf
1. ágúst
15. ágúst
22. ágúst
5. september
12. september
3. október
SELJUM FARSEÐLA UM ALLAN HEIM Á HAGSTÆÐASTA VERÐI
Ferðamiðstöðin hf.
Aðalstræti 9 — Símar 11255 - 12940
Rafsuða á
sveifarása og öxla
Við rafsjóðum málm á illa Traust og varanleg
úrbrædda og skemmda viógerð sem getur
sveifarása úr bensín- og sparaö stórfé.
dieselvélum.
VÖNDUÐ VINNA — 30 ÁRA REYNSLA
VÉLAVERKSTÆÐI
VARAHLUTAVERSLUN
Þ.JONSSON & CO.
SKEIFUNNI 17 REYKJAVÍK SIMAR 84515/84516